Sleppitúr á merinni minni á laugardaginn.

Ég fór í "sleppitúr" á merinni minni á laugardaginn.  Förinni var heitið í Víðines sem er í Mosfellsbæ. Í stað þess að ríða meðfram Vesturlandsveginum ákvað ég að fara Almannadal þótt sú leið sé lengri.  Hafði heyrt að þessi leið væri mjög skemmtileg og reiðvegur alla leiðina.

Ég ætlaði að reyna að hitta á manninn sem býr á Víðinesi en hann var að koma ríðandi frá Hafnarfirði ásamt fleirum.  Ætlaði svo að vera í samfloti að Víðinesi.   Ég hitti svo reyndar aldrei á hann.  Leiðin var falleg, engin bílaumferð, gott veður og sumarlykt í lofti.  Ég var ekki alveg nógu klár á leiðinni , varð einu sinni að snúa við og einu sinni að spyrja til vegar en þetta hófst.  

Hitti agalega skemmtillegt fólk sem var á leiðinni á hestum að Laxnesi og var samferða þeim góðan hluta leiðarinnar.  Ég  fór reyndar allt of langt, fór yfir Skammadalinn og þá kom ég niður á Þingvallaveginn.  Merin mín var orðin voðalega þreytt og mér var kalt þegar þarna var komið enda farið að kólna og klukkan orðin átta um kvöld.  Reið sem leið lá undir brú á Vesturlandsvegi og sá þar mann á hestbaki sem ég spurði hvar best væri að fara yfir Leirurnar.  Hann leit á mig og spurði" hvað heitir þú"?  Ég hugsaði '" jæja, hvað hef ég gert núna"  ..haha en svaraði spurningunni.  "já" sagði maðurinn þá, "ég hélt það, blessuð Axel frændi þinn hér"!  Þá var þetta hann Axel frændi af öllum!  Ég skammaðist mín niður í tær fyrir að hafa ekki þekkt hann en afsakaði mig með því að ég væri þreytt með ryk í augunum Tounge.

Axel sagðist nú aldrei hafa farið yfir Leirurnar en sýndi mér hvar áin lá og hvar venjulega væri farið yfir.  En þar sem að var að fjara út þá var ekki hægt að fara þar yfir því  sjórinn var það mikill.  Ég kvaddi svo Axel og reyndi að finna þægilegustu leiðina yfir.  Mér stóð nú samt ekki alveg á sama þar sem ég vissi ekkert hvað áin var djúp eða hvernig leiðin lægi.  Því var ég mikið fegin þegar að við Ótta komust yfir í fjöruna hinum meginn.  Reið svo meðfram fjörunni í sandi og stórgrýti og svo þegar ég var að ríða á sandinum þá dettur merin niður!  Svo fór hún í rólegheitum að velta sér með mig á baki! Hún hafði þá ekki dottið heldur lagst niður - alveg búin greyið.  Ég kom mér á fætur og togaði merina upp, og gekk síðasta spölinn að útihúsunum.  Gat ekki lagt meira á Óttu greyið.   Ég hef nú aldrei lent í því fyrr að hestur hendi sér niður með  mig á baki og fari að velta sér í rólegheitunum.  Joyful

En þótt ferðin hafi verið skemmtileg þá var ég mikið fegin að komast upp í Víðines þar sem Danni strákurinn minn beið eftir mér.  Ég var köld, svöng og þyrst og dauðþreytt og hvað má þá segja um merina.  Við höfðum verið fjóran og hálfan tíma á leiðinni. Ég held að hún hafi verið mikið fegin að komast í hagann, hún fékk að sjálfsögðu nammi fyrir dugnaðinn og henni var klappað hátt og lágt. 

Ég skrapp svo að líta á hana í gær - sunnudag og henni leið stórvel innan um hin hrossinn og japlaði vel á rúgbrauðinu sem ég kom með handa henni.  Tók nokkrar myndir á símann minn sem ég set inn síðar :).   

Víðines


Hryssan mín - myndir

Ég er að byrja aftur í hestamennskunni, eftir átján ára hlé! Tími til komin, er óstöðvandi, óhuggandi, sef ekki, borða ekki, nei kannski of djúpt í árina tekið.  En ég hef aldrei misst niður hestabakteríuna og finnst ég hafa tekið of langt hlé.

Er búin að finna hestinn, en það er meri sem heitir Ótta, vel ættuð sjö vetra hryssa, yndisleg í alla staði. Algjört bjútí ..og  eins og hugur manns. Ég geng eflaust frá kaupunum á morgun. Þessar myndir eru teknar í dag, enjoy! Skiljiði hvað ég er að tala um ??? :))Joyful 

 

Falleg hún Ótta Sonja á baki á Óttu Sonja á baki Rosalega fallega fext!Lúkas að leggja kollhúfurÉg og Ótta

Og þá fer Olli að byrja í sex ára bekk!

Olli og Viktor í Borgaskóla Þegar Aron Heiðar miðstrákurinn minn byrjaði í Austurbæjarskóla í sex ára bekk  þá hélt ég að það yrði í síðasta skipti sem ég sæti skólasetningu sex ára barns míns.

En því var nú ekki að heilsa því núna 13 árum síðar stend ég bráðum  frammi fyrir því að sitja sex ára  skólasetningu  yngsta barnsins míns hans Olla litla.   Í öðrum skóla þó.

Ég ætla ekki að segja núna og staðhæfða að  " þetta verði í síðasta skiptið"  sem ég fylgi sex ára barni mínu í skólann á fyrsta skóladeginum ....þar sem maður veit aldrei  Tounge, en þó er ég  99,9 % viss á því að þetta verði í síðasta sinn...alla vega sem móðir barnsins. Vonandi á ég svo eftir að verða  amma sem getur fylgt barnabörnunum mínum í skólann sinn.  

Við foreldrarnir fórum í þessari viku með Olla  í heimskókn í Borgarskóla. Skoðuðum skólann og fengum að vita flest allt um skólann.  Olli var nú býsna heimavanur í skólanum þar sem að leikskólinn hefur verið ötull að fara með elsta árgang leikskólabarnanna í skólann í íþróttahúsið, Hvergiland (frístundarheimilið) og á alls konar skemmtanir í skólanum í vetur.  Frábært!!  Og öll þekkjast börnin sem er bara frábært.

Yndislegt að sjá hvað barnið var öruggt og það var þungu fargi af okkur foreldrunum létt.  Ekki örlaði fyrir kvíða hjá barninu, heldur mikill spenningur og gleði.   Myndin er tekin af heimasíðu Borgaskóla af Olla og Viktori vini hans í heimsókninni til skólans.  


Hún er gráhærð og lítur..

waustria227út fyrir að vera mun eldri en hún er, samkvæmt austurrískum fréttamiðlum.  Kjallarinn , þar sem henni og börnunum var haldið föngnum, samanstendur af tveimur herbergjum, klósetti og eldhúshorni, mjög þröngt  og aðeins 1.70 m. lofthæð.  Dóttirin - Elisabeth F er bogin í baki og getur ekki rétt úr sér.  Hún sýndi alvarlegar geðraskanir við yfirheyrslu. 

   Aumingja konan og börnin sem hafa aldrei litið dagsins ljós fyrr en núna.  Ég er svo slegin yfir þessum fréttum, þetta er með mesta óhugnaði sem um getur. 

Elisabeth F, ung stelpa. 

 

 

 

 

 

mbl.is Beitti dóttur sína kynferðislegu ofbeldi áratugum saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir á toppi Esjunnar (Steinn)19. apríl '08

Ég með skítuga hundinn :)

Laugardag síðasta, þ. 19 apríl, voru þessar myndir teknar (hjá Steini ) næstum á toppi Esjunnar.  Eins og sést var Lúkas hundurinn minn með mér og treysti ég honum ekki í klettana alveg efst.  Eins og Lúkas er fallegur hundur þá verður það ekki sagt um hann þarna ..hahaha, þvílíkt sem hann var skítugur!    Fann lykilinn, sem ég hélt týndan!

 

 

 

 

 

Ég fór með sex mann á Esjuna, hópur sem er að fara á Hvannadalshnjúk núna um helgina.  Sibba dugnarðarforkur, sigurvegari líkami fyrir lífið í vor, hvatti mig til að koma með. Ég var einn og hálfan tíma upp og niður. Klukkutíma upp og hálftíma niður. (hljóp niður)Mæli með þessu Joyful

 

 

 

Frekja og yfirgangur hjá símafyrirtæki!

Í gær var hringt í mig frá ónafngreindu símafélagi:

Maðurinn sem hringdi hljómaði reiður og æstur:

Maðurinn: "Góðan daginn, ég er að hringja frá """"""", það liggur hér á borðinu hjá mér beiðni um að kúpla þig úr gsm þjónustunni hjá okkur, má ég spyrja um ástæðuna fyrir því afhverju þú ert að skipta um símafyriræki? "

Ég (hugsaði mig aðeins um hvort ég ætti að nokkuð að vera að svara, en var forvitin): Hitt fyrirtækið bauð mér mun betri kjör en þið gerið

Maðurinn (enn reiðari): Sögðu þeir þér líka frá því að þú getur farið í mínus á reikningnum hjá þeim og það er rukkað fyrir það eftirá?

Ég ( úps ..hér læddist að mér að ég hafi verið að gera eitthverja vitleysu): nei..en ég verð reyndar með síáfyllingarþjónustu ( man ekki nákvæmlega hvað þessi þjónusta heitir en um leið og frelsist klárast er fyllt á í gegnum kreditkort)

Maðurinn ( mjög frekjulega): Já einmitt. Get ég búist við að fleiri úr þinni fjölskyldu séu að fara yfir í þetta símafyrirtæki ? ..ég get þá sparað mér vinnu og strokað þá út á listanum hjá mér á stundinni.

Ég ( þarna reiddist ég  og var mjög hissa á frekjunni í manninum): Það hef ég ekki hugmynd um.

Maðurinn: jæja , ég kúpla þig þá úr þjónustu hjá okkur.

Ég: Já endilega

Maðurinn: vertu sæl
Ég: vertu sæll.

Eftir þetta símtal er ég alvarlega að hugsa um að færa heimasímann líka yfir í annað símafyrirtæki.

Þvílk frekja og yfirgangur, svona vinnubrög fara alveg öfugt ofan í mig!

untitled


Reyndar er World Class á 15. hæð..

 

IMG_8343

En mikið var gott að enginn slasaðist.

Sjokkerandi að heyra að kviknað hafi í þessu húsi. Hefði getað farið illa ef kviknað hefði í turninum sjálfum.

 

 

 

 

 

IMG_8322

 


mbl.is Enginn í hættu vegna eldsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt aldrei að ég myndi segja þetta en..

14gn4

...mikið er ég ánægð með að Britney og kevin séu að vinna í samandinu sínu.  Það fór í alvöru um mig sæluhrollur þegar ég las þessa frétt.

Æ hún Britney er búin að eiga svo erfitt, og ég gleðst í alvöru yfir þessu.  Er ma'r að verða meyr eða hvað! Joyful 


mbl.is Brit og Kev saman í ferðalag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf enga könnun til að segja mér það.. ;)

Ég telst mjög vinsamleg manneskja sem brosi til allra og er hin almennilegasta.  Hversu oft hef ég ekki lent í því að brosa til karlmanna og ekki meint neitt annað með því en að vera hlýleg og svo fer ég allt í einu að fá sms og jafnvel símtöl frá nánast ókunnugum karlmönnum um miðjar nætur!  Og alltaf verð ég jafn hissa LoL

 Hef reyndar dregið úr vinsemdinni síðustu árin..er að verða svo vitur Halo


mbl.is Greina ekki á milli vinsemdar og daðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Dæs" ..þetta fræga fólk!

Nudd, litameðferð og smáhestar fyrir nýfædd börn Grin.  Veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta.  Getur þetta verið hollt fyrir litlar manneskjur?  Kannski er þetta allt saman mjög eðlilegt í huga þeirra sem eiga sand af seðlum.  Hvað veit ég Whistling.

Sæt óléttJennifer og Anthony


mbl.is Dýrar barneignir hjá Lopez og Anthony
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband