Föstudagur, 15. september 2006
Nálastungumeðferð - Ótrúlegt!!
Ég var að ræða við konu um daginn sem að sagði mér að hún hefði fegnið bót meina sinna í gegnum nálastungur. - Vá, hugsaði ég, þetta þarf ég að prófa! Sérstaklega datt mér eitt í hug sem plagar mig stórkostlega og læknar hafa ekki getað hjálpað mér með. Svo ég hringdi í þennan tiltekna sjúkranuddara og nálastungusérfræðing sem ku vera einn sá besti á landinu með áratuga reynslu í farteskinu.
Og viti menn, fékk tíma samdægurs þar sem einn hafði afboðað komu sína. Dreif mig því til hans og þetta var lífsreynsla út af fyrir sig. Mjög andleg reynsla sem byrjaði um leið og ég gekk inn á stofuna. Reykelsislykt í loftinu og slakandi flaututónlist, mjög róandi andrúmsloft og ég fann að ég slakaði strax á þar sem ég sat á biðstofunni og flétti í blaði.
Eftir smá stund kom maðurinn og sagði mér að koma með sér. Ég fylgdi honum inn í lítið herbergi þar sem hann sagði mér að leggjast upp á bekk og slaka á. Hann fór höndum yfir mig og talaði róandi til mín á meðan. Spurði mig svo hinna ýmsu spurninga, m. a. í hvaða stjörnumerki ég væri og fl. og fl. Það kom mér á óvart að hann spurði mig hvort eitthvað hefði gerst á árinu sem ég var 24 ára. Ég rifjaði aðeins upp og komst að því að þá skildi ég við fyrrverandi manninn minn og stóð uppi sem einstæð móðir. Maðurinn sagðist halda að það ár hefði lífsorka mín farið dvínandi. Hann sagði ( eftir að hafa tekið púlsinn) að grunnorka mín væri mjög lág. Og það þyrfti að koma jafnvægi á orkustöðvarnar. Og svo útskýrði hann fyrir mér í hverju það væri fólgið.
Hann stakk svo fimm nálum í mig, hér og þar um líkamann. Og svo lá ég í tuttugu mín með nálarnar í mér og slakaði á. Svo kom hann og tók nálarnar úr og sagði mér að fara yfir á magann og svo stakk hann nokkrum nálum í bakið á mér. Og það var ekki mjög gott, hann sagði að vöðvarnir í bakinu á mér væru þykkir og þess vegna væri þetta svona vont. Lá svo í smátíma með nálarnar í bakinu. (fann lengi vel fyrir verk eftir nálarnar í bakinu eftir að hann fjarlægði þær).
Síðan tók hann nálarnar og sagði að ég gæti fundið fyrir þreytu eftir meðferðina. Sem passaði alveg, ég fann fyrir dofa og þreytutilfinningu í ck. klukkutíma á eftir , mjög þægileg þreytueinkenni reyndar. Var mjög afslöppuð. Já ég fékk fótanudd líka, hann nuddaði fæturnar á mér fast, hef aldrei fengið svona sérstakt fótanudd áður, það var ekki þægilegt enda var hann að nudda eitthverja punkta og svæði sem voru viðkvæm.
Og viti menn, það sem hrjáði mig og hefur hrjáð mig í mörg ár, lagaðist strax, og er ennþá í lagi. Það er svo stutt síðan ég fór til hans að ég ætla ekki alveg að fullyrða að þetta sé orðið gott en vá hvað þetta lítur vel út! Á að mæta til hans fljótlega aftur í nálastungur þar sem hann sagði að hann teldi að ein meðferð væri ekki nóg.
Ég er ennþá hamingjusöm með þessa meðferð og ef að þetta er varanlegt þá mun ég mæla með nálastungum fyrir alla sem hafa kennt sér meins eitthversstaðar og læknavísindin hafa ekki getað hjálpað til með.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 15. september 2006
Viðtalið við MAGNA og fl. í Kastljósi
Var að horfa á Kastljós þar sem m.a er tekið viðtal við Magna, Jason, Tommy Lee, Dilönu, Toby og Lúkas. Og vá hvað ég er stolt af honum Magna okkar! Þau bera honum öll svo vel söguna, hann var "pabbinn" í hópnum, kunni allt, vissi allt, átti svör við öllu. Það var alltaf leitað til hans ef eitthvað var að osfr. Og viðtalið við Jason toppaði allt. Hann vildi Magna í bandið, fannst þeir ná svo vel saman að öllu leyti. Jason er einmitt sá sem ég virti mest af "vitringunum" þremur, og það var gott að heyra þetta frá einmitt honum.
Tommy Lee er nú bara barn sem vill ekki verða stór.. en mér finnst gaman að honum. Hann er vinalegur en ég held að honum vanti smá ró í beinin. Hann var spurður að því í viðtalinu hvort þeir myndu koma til Íslands og hann sagði ..já bjóðið okkur og við munum koma! Sagðist hafa áhuga á því að koma til landsins en gat ekki alveg útskýrt hvað landið væri staðsett þegar hann var spurður að því:).
Meira síðar..
kv. Ester
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 14. september 2006
TIL HAMINGJU MAGNI!
Vökunæturnar búnar, úrslitin ljós! Frábær árangur hjá Magna og íslensku þjóðinni:). Það fór eins og margan grunaði að Lúkas myndi vinna þetta. Þeir í hásætunum hafa aldrei leynt aðdáun sinni á honum. Dilana í öðru sæti, já ég er þokkalega sátt við það. Stelpan hefur gífurlega rödd og skemmtilega sviðsframkomu. Hún dalaði reyndar um tíma , fólk fékk leið á henni ( eflaust eftir að hún fór yfir strikið í viðtalinu fræga) en hún náðí sér á strik aftur. Toby í þriðja sæti...já hann hefur bætt sig endalaust frá byrjun..frábært hjá drengnum.
Magni og húsbandið..........það vil ég sjá og mér skilst að ég fái ósk mína uppfyllta:)
Ég verð að viðurkenna að ég sofnaði yfir úrslitunum í nótt, enda ekki skrýtið, vaknaði klukkan 05:00 um morgunin til að fara í vinnu, og jafnvel eftir nokkra bolla af svörtu kaffi tókst mér ekki að halda mér vakandi. Vaknaði þó þegar að Magni var að kveðja og þakka fyrir sig.
Kær kveðja
Ester
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. ágúst 2006
Er Dilana "á eitthverju" ?
Vá var að horfa á nýjasta raunveruleikaþáttinn og verð að segja að Dilana missir gjörsamlega stjórn á sjálfri sér þar. Ég fæ alltaf á tilfinninguna þegar ég horfi á Dilönu að hún sé " á eitthverju" kannski vitleysa en þetta er alla vega mín tilfinning. Það gæti líka skýrt stjórnleysi hennar gagnvart sjálfri sér og öðrum. Það fá allir keppendur rosalega góða dóma eftir nýjasta flutning sinn. Ég er orðin ansi uggandi um Magna, hef sterklega á tilfinningunni að hann fari heim næst. Eftir standa frábærir söngvarar/flytjendur og þó að Magni sé alls ekki sístur þá er það bara því miður svo að hann hefur tvisvar verið í botn þremur og ef hann lendir þar í þriðja sinn, þá er úti um hann held ég. Dilana og Lucas hafa ótrúlega marga aðdáendur, ætli Hreimur reynist sannspár ? Í byrjun Rock Star Supernova, sagði hann í blaðaviðtali að það væri pottþétt að Lucas myndi vinna þetta :).
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 24. ágúst 2006
Magna í úrslit 13. sept!!
Þetta fékk ég sent í tölvupósti : Sæl verið þið .
Málið er að nú er strákurinn "okkar" búin að vera 2 vikur í röð í einu af 3
neðstu sætunum þrátt fyrir frábæra frammistöðu, og það eru afar miklar líkur á
því að verði Magni þar þriðju vikuna sé þetta búið hjá honum. Við viljum öll hjálpa
Magna að komast lengra, helst í úrslitaþáttinn 13. sept.
Til að minnka líkurnar á því að Magni verði sendur heim í næstu viku, verða
allir þeir sem finnst "alveg frábært hvað Magna gengur vel" en hafa aldrei
gefið honum atkvæði sitt, að taka nú á sig rögg og kjósa
hann.
Atkvæðagreiðslan fer fram aðfaranótt miðvikudaga á milli klukkan 03 - 06:00 um
morguninn. Næst verður kosið aðfaranótt 30. ágúst .
Nú er ekki hægt að búast við að fólk almennt vaki alla nóttina til að kjósa, en þeir sem á annaðborð vakna um 7 leitið til að fara í vinnu eða skóla,
gætu, án þess að leggja mikið á sig, einum og hálfum tíma fyrr
sest við tölvuna sína, á tæknilandinu Íslandi eru allflestir með tölvu og
nettengingu, og kosið á http://rockstar.msn.com/ þar er hægt að kjósa eins oft
og maður hefur úthald til og kostar ekki neitt.
Sérðu í anda íþróttaáhugamenn, sem hefðu tækifæri til að hjálpa landsliðinu í
handbolta t.d. sleppa þvílíku tækifæri til að hjálpa þeim áleiðis !!!!!!!!!
Nú erum við Íslendingar vön að styðja heilshugar við bakið á okkar fólki sem er
að gera það gott á alþjóðavettvangi - svo gott fólk - brettið upp ermar og
hjálpið Magna til að komast í úrslitaþáttinn , nú ef það tekst ekki getum við
ekki sagt að við höfum ekki reynt !!!!!!!!!!!!
Með baráttukveðjum
Magna aðdáandi
Dægurmál | Breytt 28.8.2006 kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 17. ágúst 2006
Sef ..og það er Pálínu að þakka.
Nei nú er ég aldeilis að svíkja sjálfa mig! Hef ekki bloggað í lengri tíma. Nú skrifa ég bara athugasemdir á bloggið hennar Pálínu..hahaha ;). Hún er nefnilega frábær penni og RockStar Supernova fan nm. eitt! Svo þar fær maður allar fréttir beint í æð! Frábært fyrir fólk eins og mig sem getur ekki vakað yfir þáttunum ..ég þarf að nefnilega að vakna klukkan fimm á morgnanna!
Talandi um RockStar Supernova, þá er ég auðvitað yfir mig heilluð af ísmanninum okkar eins og fleiri íslendingar. Ótrúleg rödd sem þessi drengur hefur. Og þetta er góður drengur, það sést langar leiðir. Ekki skemmir það fyrir. Ég vona samt að hann vinni þetta ekki, sé hann ekki fyrir mér með þessum "kálfum" í bandi, en ég er að vona að hann verði í öðru sæti því þá fær hann að "túra" með húsbandinu! Og þeir eru sko frábærir tónlistamenn! Og svo eru þeir viðkunnarlegir líka, virka heilsteyptir. Ég held líka að Magni nái vel til þeirra og þeir til hans.
Í raunveruleikaþáttunum er lítið sýnt af Magna. Eflaust er það vegna þess að hann er eins og hann er, ekkert vesen, allt gengur vel og fljótt fyrir sig og hann kann sig vel. Ábyggilega mjög þægilegur að vinna með. Það skemmir ekki fyrir honum.
Nóg í bili kæra fólk:) , kveðja Ester.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 4. ágúst 2006
Aldrei aftur Hiroshima!
Í dag er 61 ár síðan bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á Hiroshima. Í fyrradag rakst ég á "Lifandi vísindi" í vinnunni, og fór að blaða í því. Í þessu blaði var grein um kjarnorkusprengjuna sem varpað var á Hiroshima, og viðtal við Japanskan lækni sem lifði þessa hörmung af. Ég las greinina upp til agna og var miður mín eftir lesturinn. Ég hef séð myndir af sprengjunni og ég hef heyrt ýmislegt um þessa kjarnorkusprengju en ég hef aldrei heyrt eða lesið neitt frá fyrstu hendi um Hiroshima.
Það sem aumingja fólkið þurfti að upplifa! Þessi japanski læknir lýsti því mjög vel. Það var á fallegum degi um áttaleytið að morgni til að sprengjunni var varpað á borgina. Allt varð grátt. Japanski læknirinn hljóp út í garð heima hjá sér og áttaði sig svo allt í einu á því sér til undrunar að hann var allsnakinn. Einnig sá hann unga konu með lítið barn og þau voru bæði allsnakin. Sprengjan hafði brætt fötin utan af þeim. Fötin brunnu inn í hold fólks. Allstaðar var brunnið fólk, fólk án andlits, lík út um allt. Hiroshima var jöfnuð við jörðu þennan dag. Tveimur dögum síðar fór að rigna. Þetta var engin venjuleg rigning, heldur svört rigning ..rammgeisluð! Rigningin brenndi hold þeirra sem hún snerti og eyðilagði frumur í líkama fólks svo margir fengu krabbamein af þessum völdum. Það tók á að lesa þetta, og sé ég nú að ég hafði lítla hugmynd um hvað virkilega gerðist í Hiroshima þennan dag.
Eina nótt
með ilmskúf í dökku hári
og hlátra iðandi holds
lýstur því niður
sem eldingu á hemuð augu:
Við munum grafa ykkur.
Og spyrjandi ratsjáraugum
er horft út í hrímfallið
þangað sem elding Þórs
kveikir kalda loga
og himinn brennur við Hiroshima,
gnýr þruma
við gáttir goða og manna:
Við munum grafa ykkur.
Matthias Jóhannessen.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.8.2006 kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 4. ágúst 2006
Úff..keyrði fram á slys í dag ..:(
Hræðilegt! Var mjög brugðið og einnig fólkinu í bílunum við hliðina á mér. Það var eins og tíminn stöðvaðist. Sá að það var fólk komið að sem var að hlúa að hinum slasaða, einn maður var að hringja úr gemsanum sínum, væntanlega á sjúkrabíl. Ég tók á mig rögg og keyrði af stað því ég var fyrsti bíll á eftir slysinu og fullt af bílum fyrir aftan mig. Varð að taka krók upp á umferðareyju til að komast fram hjá kyrrstæðum bíl sem stóð á miðjum veginum.
Nú veit ég ekkert hvernig þetta slys bar að , hvort þetta var bílslys eða eitthvað annað en ætla ekki að lýsa þessu neitt frekar með tilliti til aðstandenda. Eflaust eru aðstandendur búnir að frétta af þessu núna. En mér var mjög brugðið. Vona innilega að þetta hafi ekki verið alvarlegt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. ágúst 2006
Tilgerðarlegur Rock Star Supernova ?
Var búin að ákveða að vaka og horfa á Rock Star Supernova í gærkvöldi. Ég vakna klukkan fimm á morgnanna svo þetta var ansi stór fórn að færa fannst mér. En svo rofnaði útsendingin þegar Dana var að syngja "House of the rising sun" og ég varð ekkert smá fúl. Fylltist vanmáttarkennd að geta ekki haft áhrif á bilunina.
Ég sofnaði yfir sjónvarpinu á meðan ég var að bíða eftir að útsendingin kæmi á aftur og vaknaði stuttu síðar við að það var eitthver þáttur að byrja og mér fannst eins og þetta væri framhald af Rock Star Supernova. En skyldi ekkert í því að ég kannaðist ekkert við fólkið sem var að keppa. Fullt af nýjum andlitum og eitthvað tilgerðarlegt við þáttinn. Ákvað því að horfa aðeins á þetta svo ég missti nú ekki af neinu.
Var komin nokkuð vel á veg inn i þáttinn, þegar það rann upp fyrir mér að þetta var bara hreint ekki Rock Star Supernova sem ég var að horfa á, heldur einhver endursýndur gamanþáttur á Skjá einum! Gáfnaljósið ég, rauk upp og slökkti á sjónvarpinu, slökkti ljósið, skreið undir sæng og steinsofnaði í hausinn á mér. :Þ
Áfram Magni, Dilana og Storm!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 31. júlí 2006
Hugsanir barns...
Elsku pabbi og mamma. Ein fyrsta minningin mín er þegar ég var að ferðast ein í flugvél á leið til útlanda að hitta ykkur. Ég man þegar ég sá ykkur á flugvellinum í kaupmannahöfn , þið breidduð út faðminn á móti mér og ég man að ég vissi ekkert hvort ykkar ég ætti að faðma fyrst, vildi gera hvorugt ykkar leið.
Ég var rétt þriggja ára gömul og strax farin að hafa áhyggjur af að særa ykkur.
Ég lærði snemma muninn á réttu og röngu, lærði að vera kurteis og síðast en ekki síst lærði ég að vera góð manneskja.
Þau ár komu í uppvextinum að ég var svo hrædd um að missa y kkur, hrædd um að þið mynduð deyja frá mér, ég man hvað ofsahræðslan náði tökum á mér þegar ég hugsaði svona en í dag veit ég hræðslan við að missa foreldra sína er eðlileg og nær hámarki á vissum aldri barnsins.
Ég hugsaði líka oft um það að ég ætti bestu foreldra í heimi og ég myndi aldrei vilja skipta um foreldra við nokkurt barn. Það hlytu líka allar vinkonur mínar að öfunda mig af því að eiga þessa frábæru foreldra.
Þetta eru krúttlegar barnshugsanir ..en þessar hugsanir hafa lítið breyst þótt ég sé orðin fullorðin í dag.Ég á ennþá bestu foreldra í heimi .
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)