Þriðjudagur, 14. nóvember 2006
Mýrin, Barcelona og lithimnubólga
Ég fór á Mýrina um helgina. Frábær mynd, vel leikin , fyndin, sorgleg..allur pakkinn. Var rosalega hrifin af leik "Elliða" ( man ekki nafnið á leikaranum), hann var svo sannfærandi í hlutverkinu að það var rosalegt! Minnir að ég hafi lesið eitthversstaðar að hann sé ekki menntaður leikari en endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur. Frábær mynd í alla staði.
Barcelona er það heillin á fimmtudaginn. Já ég er að fara til Barcelona, borg listarinnar. Verð í fjórar nætur, kem heim klukkan 6:45 á þriðjudagsmorgun. Ég hlakka mikið til. Þetta er afmælisferð, ég á víst stórafmæli 28. nóvember og ákvað frekar að fara til Barcelona í slökunar-verslunarferð, frekar heldur en að halda stóra veislu. Verð nú samt með veislu eins og alltaf ( er mikið afmælisbarn) og kannski verður aðeins fleirum boðið en venjulega..fer örlítið út fyrir fjölskyldurammann.
Ég er komin með "lithimnubólgu" ..blessunin kom á versta tíma en ég rauk strax til augnlæknis um leið og ég varð vör við hana. Hef nokkrum sinnum fengið þetta áður og alltaf í sama augað. Augað verður eldrautt og miklir verkir í því. Ef þetta er ekki meðhöndlað, getur það valdið blindu. Stórhættulegt. Þannig að ég sé fram á að geta ekki notað linsurnar mínar mikið á Spáni, fór því í gær og fjárfesti í gleraugum. Gleraugun mín eru nefnilega orðin gömul og lúin. Valdi mjög töff gleraugu - Karen Millen og fékk rosatöff design sólgleraugu með styrkleika í kaupbæti ! Ég mun aldrei skipta um gleraugnaverslun, hann er æði hann Markús!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 6. nóvember 2006
Staffadjamm World Class
Staffadjammið var um daginn á Oliver. Það heppnaðist þvílíkt vel, það er soldið langt síðan staffadjamm var síðast þannig að stemningin var frábær og mjög margir mættu. Höfðum efri hæðina á Oliver út af fyrir okkur frá 8-23:30. Þegar opnað var upp fyrir almenning þá fórum við Hrafnhildur, Eyjó og Davíð á Thorvaldssen. Hitti gamla vini og dansaði eins og vitleysingur. Skemmti mér brjálæðislega vel - þvílíkt vel heppnað kvöld!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 25. október 2006
Flugslys í Keflavík
Var á leið til Keflavíkur þegar að ég fæ sms í símann minn frá mbl.is. Flugvél að nauðlenda vegna bilunar í hreyfli, 172 manns innanborðs. Úff. Stuttu síðar keyra þrír sjúkrabílar framhjá mér á blússandi ferð með ljósin á fullu. Ég sá fyrir mér flugvélina missa flugið og hrapa ofan á íþróttaakademíuna eins og hún leggur sig. Kaos, eldur, sjón heimsins beinist að Keflavík. Íþróttaakademíunni. Var að hugsa um að snúa við. Hætti þó við það á síðustu stundu. Minn tími mun koma. Var ánægð með mig að hafa tekið á þessu á skynsaman hátt ;).
Rétt upp hönd sem finnst líffæra og lífeðlisfræði auðveld? Ekki ég! Sumt er reyndar skemmtilegra og áhugaverðara en annað og þá sérstaklega það sem snýr að þjálfun vöðva og beina í líkamanum. Enda er það mitt áhugasvið. Jú auðvitað er gaman að vita hvernig fullkomnasta vél í heimi starfar og hvað í henni býr. En mér fallast stundum hendur yfir hvað þetta er viðfangsmikið efni.
Það væri ekkert mál að vera í skóla ef maður þyrfti ekki að vinna 100% vinnu með þessu og hugsa um heimili þar að auki. Ef ég byggi heima hjá pabba og mömmu, ætti engan mann og engin börn og væri ck. tuttugu árum yngri...þá væri þetta ekkert mál. En þá er reyndar ekki víst að ég hefði nennt að læra. Ég var ekki alveg í þeim gírnum þegar ég var tuttugu árum yngri. Djamm og hafa sem mest gaman var viðhorfið í þá daga.
En þetta tekst með smá fyrirhöfn. Þarf bara að bæta eins og tíu tímum í sólarhringinn og þá er þetta komið :)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 24. október 2006
Simbi er 10 ára í dag!
Já hann er tíu ára í dag..sætasti kötturinn! Það hlýtur að teljast stórafmæli í kattarheimi. Hann fær því rækjur í matinn í kvöld, uppáhaldið sitt. Hef átt hann frá fæðingu því ég átti mömmu hans líka. Valdi Simba úr kettlingahópnum af því að ég sá strax að þarna var góður heimilisköttur á ferð. Simgi er latur og feitur eins og góðum kötti sæmir, en á það til að taka allt í einu upp á þvi´að fara að leika sér, hleypur íbúðina enda á milli , stekkur upp á sófa og stóla og hlunkast svo niður örþreyttur á eitthverjum stólnum. Einn besti köttur sem ég hef átt og minnir soldið á Garfield :)
Simbi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. október 2006
Regnhlíf í hurðinni!
Var að kaupa nýjan bíl. Skoda Superb 2003 , steingrár með áli allan hringinn, (eitthvað kítti ) Ál á pústinu, vindskeið framan og aftan ..en bíðið...þetta er ekkert á við hvernig hann er að innan! Það er hægt að setja niður borð í aftursætinu og þar er pláss fyrir glös. Bak við borðið er hægt að opna lúgu og þar dregur maður fram skíðapoka. Í einni hurðinni er hólf sem ég opnaði og dró út fínustu regnhlíf merkt Skoda! Það er ljós í öllum hurðum og svo þegar maður stígur út úr bílnum þá kviknar "útstiguljós" svo maður sjái betur hvar maður stígur niður, fínt í myrkri. Ekki það að ég hafi ekki getað verið án þess en þetta er stórsniðugt. Svo eru allskonar hólf hér og þar í bílnum, á eftir að skoða það betur. Já og LOFTÆLING...geggjað!
Tékkar ( Hann er frá Tékklandi) eru víst svo stoltir af Skodanum sínum að þeir vilja hafa hann fullkominn, engu til sparað og hugsað fyrir öllu.
Það eina sem ég get sett út á hann eru græjurnar. Þær eru ekki nógu góðar. Vantar meiri kraft og bassa. Gráni á tíma í ísetningu á nýjum hátölurum á föstudaginn..mikið rosalega verður hann fullkominn þá.
Heilsurækt | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23. október 2006
Einkaþjálfaranám úr íþróttaakademíunni
Ég er í námi. Tveggja anna einkaþjálfaranám í Íþróttaakademíunni í Keflavík. Sniðuglega uppbyggt nám þar sem námið byggist upp á að taka sjálfan sig í gegn, og þá bæði í mataræði + þjálfun. Ég er ekki bara í bóklegu námi heldur líka líkamlegu. Flott að sameina þetta svona. Tókun fittnesstest í byrjun náms til að sjá hvar maður þyrfti að bæta sig og það verður svo gert á sex vikna fresti í allan vetur. Fengum prógram hjá þjálfurum/kennurum okkar til að fara eftir , flott prógram sem tekur ekki of langan tíma en árangursríkt og tekur á öllum vöðvahópum.
Undirstaða mín er einkaþjálfaranám í einkaþjálfaraskóla World Class, sem ég tók vorið 2004. Þetta nám er miklu yfirgripsmeira og dýpra en ég bý þó vel að hafa tekið Worldclass skólann á sínum tíma.
Ég ákvað þetta á síðustu stundu ..þs. að fara í þetta nám, og varð því að hætta við að taka þátt í fitness, en það kemur annað mót eftir þetta mót.
Ég útskrifast svo sem lögggiltur einkaþjálfari og fæ einingar úr háskólanum. Ætli ég geti nokkuð hætt eftir þetta, verð eflaust að læra meira og meira....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. september 2006
Er eitthvað að gerast í Geldinganesi??
Hef sjaldan séð eins mikla umferð í hverfinu mínu eins og þegar að götuljósin voru slökkt í kvöld. Nema ef vera skyldi í umferðateppunni sem myndaðist eftir tónleika Rogers Waters í Egilshöll snemma í sumar. Ég og minn maður fórum út að ganga í "myrvuninni" en bílaumferðin var slík að ljósin á bílunum skáru sífellt í augun og sjarminn fór af herlegheitunum. Mikil umferð var út í Geldinganesið, og þegar maður horfði út í nesið voru bílljósin yfirgnæfandi. Við mættum fólki sem spurði okkur hvort eitthvað væri að gerast á nesinu en ekki vissum við til þess. Allir hafa greinilega fengið sömu hugmyndina á sama tíma.
Voðalega er fólk háð bílunum sínum. Er ekki hægt að leggja bílunum í hálftíma og fá sér göngutúr í ró og friði í skugga götuljósanna. Og ekki var að sjá þegar maður horfði yfir borgina að það hefði verið slökkt á eitthverjum ljósum. Mikil ljósadýrð var yfir borginni og höfnin logaði í ljósum sem aldrei fyrr. Hugmyndin er góð sem slík , tek ofan fyrir Andra Snæ, en þetta þyrfti bara að skipuleggja betur.
Það var gaman að labba meðfram sjónum í niðamyrkri ..og sjá varla niður fyrir fæturnar á sér, það var sjarmi yfir því þótt urmull bílljósa hefði lýst manni mikið á göngunni.
Stórgóð hugmynd engu að síður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 25. september 2006
Geitungarnir eru í Árbæ
Ég fór í apótekið í Árbæ áðan. þar sem ég stend við búðarborðið, þá kemur fljúgandi þessi líka stóri geitungur inn um opnar dyrnar, tekur strikið fram hjá mér og flýgur bakvið hjá afgreiðslufólkinu. Önnur afgreiðsludaman hryllir sig og setur upp skelfingasvip sem mér fannst ekki skrýtið miða við stærð kvikindisins. Ég bjó í Hraunbæ í tvo ár fyrir nokkrum árum og ég veit að geitungarnir lifa góðu lífi í Árbænum. Á sumrin brást ekki að kæmu inn um gluggann 10-15 stykki á dag, sérstaklega síðari hluta sumars eða í byrjun hausts þegar að aðeins var byrjað að kólna úti.
Ég bý í Grafarvoginum í dag og ég hef ekki séð einn einasta geitung þar sem ég bý þessi tvö og hálfa ár sem ég hef búið þar. Skýringin á þessu held ég að hljóti að vera annarsvegar gróðraleysið í mínu hverfi og hinsvegar sá mikli gróður sem er í Árbæ. Ég bjó einu sinni í miðbæ Reykjavíkur og þar er líka ótrúlega mikið af geitungum enda gamallt hverfi og mikið af gömlum háum trjám og gróðri.
Ég er mjög fegin þessu geitungaleysi, var stundum að fara á límingunum á göngutúrum mínum um árbæjarhverfið þegar að geitungarnir svifu í kringum mig og barnið mitt sem þá var bara nokkurra mánaða gamalt. Nú þarf ég bara að berjast við kóngulær í garðinum en sætti mig vel við það.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 25. september 2006
Frí áskrift af Mogganum.
Fyrir nokkrum vikum var hringt í mig frá MBL eða einhver á þeirra vegum og mér boðin áskrift af Mogganum frítt í einn mánuð. Þar sem blöðin hrannast upp hjá mér ..(Fréttablaðið, Blaðið, ásamt hrúgu af auglýsingapósti) og ég kemst yfirleitt ekki yfir að lesa þau, þá afþakkaði ég pent. Þá var mér boðið að fá blaðið um helgar í fjórar vikur. Ég hugsaði mig aðeins um og ákvað svo að þiggja það. Fínt að fá nóg að lesa um helgar.
Fyrstu helgina kom blaðið reyndar ekki, en ég hef fengið það síðustu þrjár helgar. Ágætis tilbreyting, mér hefur alltaf þótt gaman af að lesa Moggan. Í gær var svo hringt í mig aftur frá MBL og mér boðin áframhaldandi áskrift í mánuð á 50% gjaldi. Ég er að drukkna í blöðum svo ég afþakkaði það. Á samt eftir að sakna Moggans um helgar, góður með morgunkaffinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. september 2006
Gömul húsráð
Hafið þið prófað eitthvað af þessu ? 1. Við hálsbólgu og kvefi: Í soðið vatn, setja pressaðan hvítlauk, engifer og hunang, fínt að setja þetta á brúsa og drekka yfir daginn.
2. Við stíflu í nefi, setja soðið vatn í bala, fara á grúfu með höfuðið yfir balann og handklæði yfir höfuðið (og balann) og anda að sér gufunni í 5-10 mín.
3. Til að lýsa hár: Kreista sítrónu í hárið og láta sólina þurrka hárið (ætli ljósabekkirnir dugi ekki)
4. Við eyrnabólgu: setja hvítlauk í grisju og setja grisjuna við hlustina í nokkrar mínútur
5. Við sólbruna : Hreina jógúrt á brunann
6. Við húðþurrk og hárþurrk: Oliviu Olia .
7. Til að verjast frosti: Júgursmyrsl á andlitið.
8. Þrútin augu : gúrkusneiðar á augun ..10-15 mín.
Ef þið munið eftir fleiri húsráðum, endilega skrifið í athugasemdir og ég mun bæta þeim hér inn :)
kv. Ester
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)