Færsluflokkur: Dægurmál
Miðvikudagur, 8. ágúst 2007
Er ég svona klikkuð en...
..mér finnst þetta bráðfyndið ..Lindsay HoHand..Britney Rears og J Ho.
![]() |
Ný klámmynd byggð á ólifnaði Lindsay Lohan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 8. ágúst 2007
Gott hjá stelpunni!
Hver talar um barneignir við kærastann eftir aðeins tveggja MÁNAÐA samband? Hún er auðvitað farin að nálgast aldur ..38 ára gömul og á engin börn. Brad Pitt vildi ólmur eignast börn en þá sagði hún nei! Hvað hefur breyst? Ætli hún sé að fatta að það er ýmislegt annað en starfsframi sem skiptir máli í lífinu?
Samt skil ég hana. Hvað er pointið með því að hanga í sambandi við gæja sem ætlar sér ekki og vill ekki eignast börn? Hún sjálf vill jú ólm eignast barn. Illu er best aflokið - þs. að binda enda á samband sem á sér enga framtíð.
![]() |
Aniston vildi fjölskyldu - Sculfor vildi vinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 27. júlí 2007
Ég fékk lánaða þessa bók.
fyrir mörgum árum síðan. Kunningjakona mín fór að vera með hálfgerðum nasista sem vildi endilega lána mér Mein Kampf. Hálfgerðum nasista segi ég, því ég veit ekki hvort hann var hinn fullkomni nasisti eða ekki, maðurinn var alla vega mjög sérstakur og skoðanir hans hneigðust allar í átt nasismans. Hafði víst verið í fangelsi í Svíþjóð.
Hann var vöðvastæltur og klæddist eins og hermaður. Ég sé hann stundum í dag, hjólandi um bæinn á reiðhjóli í herklæðum. Sambandið hjá kunningjakonu minni og þessum manni entist ekki.Enda er ekki búandi með manni sem er svo stjórnsamur að hann nánast handjárnaði kærustuna sína við eldhúsvaskinn.
Bókin var á sænsku og ég blaðaði aðeins í henni en nennti ekki að lesa hana. Hann kom svo nokkrum dögum seinna til að ná bókina. Honum var mjög annt um þessa bók , það var sem hann væri að heimta barnið sitt úr helju.
![]() |
Verður Mein Kampf endurútgefin? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 27. júlí 2007
Sverige.. Nu kommer jag... :))
Þetta verður eflaust síðasta bloggfærslan mín í bili. Ég er nefnilega að fara til Svíþjóðar á morgun..jibbí! Ég ólst að miklu leyti upp í Svíþjóð þar sem pabbi minn var í námi þar. Mamma vann fyrir heimilinu á Sjúkrahúsinu. Ég var í leikskóla og byrjaði í grunnskóla þar. Þar fæddist líka bróðir minn, hann Kalli.
Lundur er yndislegur bær. Ég og foreldrar mínir hafa sterkar taugar til hans. Við höfum aldrei slitið strenginn alveg við Lund , alltaf verið viðloðandi við bæinn.
Og nú hafa pabbi og mamma stigið stóra skrefið, keypt hús í Lundi. Og meira að segja í sama hverfi og við bjuggum í þegar ég var lítil. Þau eru búin að vera úti í um það bil mánuði að sjæna húsið til, láta setja flísar, parkett og mála.
Og þangað er ég , Helgi og Olli að fara á morgun. Ég hlakka gífurlega mikið til að koma "heim" .
Ég ætla að fara í Kallbybadet ( a með tveimur punktum), skoða nýju flottu verslunarmiðstöðina, keyra upp í Djurslöv þar sem ég vann sem aupair ( fólkið hlýtur að vera flutt), jafnvel að fara í Astrid Lindgren garðinn ef við náum því, fara á ströndina í Lomma og ekki væri leiðinlegt að eyða eins og einum degi í Köben, en það er þó ekki víst að ég tími því.
Elsku bloggvinir, vinir og vandamenn , hafið það æðislega gott á meðan.
Knús og kossar
Ps. smellið á línkinn hér að neðan og hlustið á nýjasta lag Millana sem "lak á netið":
Við elskum þig nú samt
Þetta er skólinn sem ég var í þegar ég var lítil
Á Vildanden. Svona leit húsið út sem við bjuggum í þegar pabbi var í námi.
Gata í Lund
Gata í Lund
Fallega eldgamla Dómkirkjan í Lundi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 26. júlí 2007
Hann var fallegur maður.
Hann dó af of stórum lyfjaskammti, hvaða máli skiptir HVAR? James Douglas Morrison (8 December 1943 3 July 1971) eins og hann hét réttu nafni var frábær tónlistamaður, kvikmyndagerðamaður og skáld en því miður fór hann illa með sig á sukki og eiturlyfjaneyslu.
Val Kilmer, var í hlutverki Jims Morrison í myndinni - The Doors frá árinu 1991. Hann söng sjálfur í myndinni og þótti einmitt mjög líkur Morrisonog það er rétt, þeir eru ótrúlega líkir. Val kilmer
Hann var mjög myndarlegur og ég held að hann hafi verið viðkvæmur eins og svo algengt er um listamenn. Því miður dó hann aðeins 27 ára gamall.
![]() |
Lést Morrison í næturklúbbi eða í baðkarinu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 26. júlí 2007
Minn tábrotnaði
Æ þetta er erfitt - ekki síst fyrir aðstandendur sem heima sitja. Fyrrverandi maðurinn minn tábrotnaði eitt sinn þegar hann var á frystitogara. Fékk ofan á tánna bobbing ( veit ekki hvort þetta er rétt skrifað).
Þegar ég fékk fréttina um að maðurinnn minn hefði slasast, þá leið mér eins og hann væri við dauðans dyr. Fór að gráta og allt. Ég var reyndar tuttugu árum yngri þá, minnir að ég hafi verið ólétt og því viðkvæm í meira lagi. En það er alltaf erfitt þegar að ástvinir slasast. Vonandi er þetta ekki slæmt brot hjá viðkomandi sjómanni.
![]() |
Fótbrotinn skipverji fluttur í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Ég þoli ekki golfbíla..
...sem keyra á gangstéttinni! Og ég ætla að nota tækifærið og pirrast aðeins. Það sem fer mest í taugarnar á mér við golfbíla er þegar að ökumenn þeirra keyra á gangstéttinni sem ætluð er gangandi vegfarendum þar sem ég ( og fleiri) hleyp iðulega.
Þetta getur skapað mikla hættu. Börn og fullorðnir að hjóla, fólk á línuskautum eða að hlaupa. Eldri borgarar í göngutúr. Svo kemur allt í einu GOLFBÍLL brunandi eftir gangstéttinni! Afhverju keyra þeir ekki á grasinu fyrst að það má það??Reyndar er það ekki mjög algengt sem betur fer að sjá golfbíla á gangstéttinni en kemur þó fyrir.
Leiðinlegt að heyra með konuna sem fótbrotnaði þegar hún varð fyrir golfbíl. Hvernig ætli það hafi gerst? Bílarnir keyra nú yfirleitt ekki á mikilli ferð. Kannski sá ökumaðurinn ekki konuna og bakkaði á hana. - Er annars bakkgír á golfbílum? Hef ekki hugmynd.
![]() |
Kona varð fyrir golfbíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Dauðadrukkið lið borið út í bíl.
Ætli afgreiðslufólkið hafi ekki verið í stórvandræðum með að lesa út úr heildarupphæðinni. Þrettán milljónir..hvað eru mörg núll í því?
En hvernig er þetta hægt? Mér er sama þótt flaskan kosti 100.000.- , var fólkið enn með meðvitund þegar leið undir morgun?
Hugmyndaflugið fer á flug og ég sé fyrir mér feitan olíufursta frá arabalöndum, eldrauðan í framan, með gífurlega gott áfengisþol lyppast niður undir morgun af allri drykkjunni um nóttina. Föruneyti hans er löngu sofnað í sófanum.
![]() |
Keypti drykki á barnum fyrir 13 milljónir kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Þú ert svooo flott kona!! En.....
Ég lenti í frábæru atviki í dag! Fór niðrá laugaveg á bílnum í dag að ná í manninn minn og börnin.
Höfðum ákveðið að hittast við Mál og Menningu og lagði því bílnum þar. Þegar ég er
nýkomin út úr bílnum labbar til mín maður..ck. 25 - 30 ára með bakpoka. Leit út eins og
ferðamaður og ég hélt fyrst að hann væri útlendur.
- "VÁÁÁÁÁ" segir hann og horfir á mig!
- "HA ?" .. segi ég á móti .
-"VÁÁÁÁ ÞVÍLÍKT KRÚTT"!!! segir hann þá.
- "Hvað segiru , hver "? ..segi ég.
- "ÞÚÚÚ...þvílíkt flott kona"!!!!! Segir hann uppnumin.
Ég brosti kurteisislega og þakkaði honum fyrir.
- "NEI" ..segir hann þá allt i einu.
- "HA "...? segi ég aftur og horfi á hann undrandi.
"NEI" endurtekur hann, "ÉG VAR AÐ GRÍNAST".
Svo tók hann um hálsinn á sér og lét eins og hann væri að kyrkja sjálfan sig og skar sig svo á háls með látbragði og skaut sig í höfuðið! Svo gekk hann í burtu.
Eftir stóð ég og vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta :)))
Ég bjó í níu ár í miðbænum og var búin að gleyma hvað mannlífið þar er litskrúðugt. Þetta hefði ekki átt að koma mér á óvart en gerði það svo sannarlega. Nú er ég nefnilega orðin úthverfarotta þar sem allir eru svo normal og eðlilegir
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Iss - góða veðrið kemur í vikulok
Æ aumingja danirnir. Mikið rosalega skil ég þá vel. Það hlýtur að vera það sama upp á teningnum í Svíþjóð og Noregi. Þar hefur verið vott sumar líka. Við íslendingar getum hins vegar unað glaðir við okkar fína sumar. Líklega er ég á leiðinni til svíþjóðar eftir nokkra daga. Og þá verður að sjálfsögðu komið sólbaðsveður þar. Svíþjóð tekur alltaf vel á móti mér
![]() |
Huggandi ferðalög til sólarlanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)