Föstudagur, 31. október 2008
Hraustlegra kynlíf
Að taka hraustlega á því minnkar líkur á brjóstakrabba | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 22. október 2008
Hvað var ég þá með?
Hm....Ég taldi víst að ég hefði fengið inflúensuna. Fyrir tveimur vikum síðan veiktist ég hastarlega, fékk í hálsinn, rauk upp í hita og beinverkjum og varð að fara heim úr vinnu. Fékk heiftarlega barkabólgu og var með hita í 6 daga, oft háan. Mætti í vinnu viku seinna alls ekki orðin góð. Og þetta var ekki búið því upp úr þessu fékk ég bronkítis sem ég stend enn í tveimur vikum seinna.
Ef ekki inflúensan hvað þá.....Kreppusótt?
Inflúensan ekki byrjuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sunnudagur, 19. október 2008
Kýs frekar Piparkökulagið
Þegar piparkökur bakast .. það er nefnilega með rétta taktinum. Hvort sem maður hnoðar deig eða bringu. Og svo eru að koma jól...
Piparkökubakaravísur
Þegar piparkökur bakastkökugerðarmaður tekur
fyrst af öllu steikarpottinn
og eitt kíló margarín.
Bræðið yfir eldi smjörið
er það næsta sem hann gjörir
er að hræra kíló sykurs
saman við það, heillin mín.
Þegar öllu þessu er lokið
takast átta eggjarauður
maður þær og kíló hveitis
hrærir og í potti vel.
Síðan á að setja í þetta
eina litla teskeið pipar
svo er þá að hnoða deigið
og breiða það svo út á fjöl.
Thorbjörn Egner
Bee Gees hollir hjartanu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 12. september 2008
Á æfingu í Laugum.
Skyldi ekki hvaðan ég kannaðist við svipinn á Kauða.
En allt í einu kviknaði ljós, hef séð hann í Laugum á æfingu í fylgd Eli Roth og Quentin Tarantino. Minnir meira að segja að þeir hafi oft komið saman. Myndarmaður.
DEAN
Hver var þessi maður með Anitu Briem? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 31. ágúst 2008
Myndir úr Skarðsvík
Mér finnst Skarðsvík svo skemmtilegur og fallegur staður. Þar er sko hægt að busla í sjónum og leika sér í gulum sandi. Var á ættarmóti á Hellissandi í fyrrasumar, læt fylgja nokkrar myndir úr Skarðsvík sem teknar voru þá.
Buslað í sjónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 27. ágúst 2008
Mynd af kisunni
Ég elska svona fréttir. Þar sem allt endar vel. Það er ekki of mikið af góðum fréttum í heiminum. Kisa litla festist undir baðkari og fannst eftir 7. vikur. Hlýtur að vera kraftaverk að kötturinn hafi lifað þetta af. En hún hlýtur að hafa náð sér í vatn, hún getur ekki hafa lifað þetta af vatnslaus. Og hér er mynd af kisu og eigandanum: |
Enginn aukvisi þessi kisi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 22. ágúst 2008
Ekki fjórtán né sextán.
Hún lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en níu ára! Annars myndi ég ekki kalla þetta barn "fimleikakonu", frekar fimleikabarn eða fimleikastelpu.
Mér hrýs hugur við allar æfingarnar sem þessi stelpa hefur gengið í gegnum.. Það var þáttur í sjónvarpinu um daginn um kínversk börn sem eru sett í þjálfunarbúðir MJÖG UNG, því miður missti ég af þeim þætti en heyrði talað um hann og lýsingarnar voru skelfilegar. Börn sett í þjálfunarbúðir tveggja ára, fengu ekki að koma heim til sín í mörg ár og fl. og fl. Þessi börn fá ekki að vera börn.
Stórkostleg fimleikastelpa engu að síður!
IOC rannsakar aldur fimleikastúlku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 11. ágúst 2008
Mér hefur oft verið hugsað til hennar. (mynd)
Dýragarðsbörnin hafði mikil áhrif á mig þegar ég las hana fyrir um tuttugu og fimm árum síðan, þá líklega um fimmtán ára gömul. Og oft hefur mér verið hugsað til Christiane F. , hvar hún væri niðurkomin. Leitt að lesa að hún sé ennþá í vandræðum þrjátíu árum eftir að bókin var skrifuð.
Mynd var gerð eftir bókinni og var hún sýnd í Regnboganum við Hverfisgötu ( að mig minnir) og var hún með þýsku tali og enskum texta. Sá ekki myndina en las bókina oftar en tvisvar. Lifði mig mjög inní bókina og fann svo til með þessari ungu stelpu sem varð að selja sig aumingjum fyrir heróíni.
Varð glöð að heyra í framhaldi af bókinni að Christine væri laus við eiturlyfin, en nokkrum árum seinna las ég eitthversstaðar að hún væri fallin. Eflaust hefur það verið eilíf barátta hjá henni í gegnum lífið að losa sig frá eiturlyfjadjöflinum.
Þessi mynd af Christine F. var á bókarkápu Dýragarðsbarna.
Christiane F. enn í eiturlyfjavanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 8. ágúst 2008
Ég hefði átt að ..
Viðbúnaður vegna Gleðigöngu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 8. ágúst 2008
Sprengjuhótun..
Hvað varð um þessa sprengjuhótun sem lögreglunni (leiðréttið mig ef rangt er með farið) barst um daginn varðandi Hinsegin daga? Ekkert heyrst meira um það?
Ekki laust við að um mig fari kaldur hrollur en kannski á ekkert að hlusta á svona sprengjuhótanir á litla Íslandi.
Ég elska þennan dag, finna aldrei fyrir eins gífurlegri stemningu og gleði eins og á þessum degi niðrí miðbæ, það er eins og allir opni sig - verði glaðir og elski lífið.
Ég verð pottþétt í bænum, sprengjuhótun eða ei ......læt það ekki stoppa mig!!
Áfram Hinsegin dagar........
Ætlaði að setja inn mynd frá Hinsegin dögum í fyrra en fann enga. Fann hinsvegar þessa mynd af brúðarvendinum mínum (hangir í loftinu)og þar sem ég á brúðkaupsafmæli í þessum mánuði ákvað ég bara að setja hana inn
Lækjargötu lokað á morgun vegna hátíðarhalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)