Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Taka trampólín úr umferð eða auka eftirlit.

Hræðilegt slys hefur átt sér stað!  Hvað á að gera?  Ég er mjög hlynnt hreyfingu barn og unglinga en  ég held að það sé tími til kominn að sporna við þessum tækjum.  Það hefur sýnt sig að of mörg slys hljótast af trampólinum.  Og nú dauðaslys.  Ekki hægt að kenna því um í þetta sinn að það hafi EKKI verið öryggisnet. Skelfilegt.


mbl.is Drengur lést í trampólínslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hún líkist......

Pabba sínum!  Svakalegur svipur svo ekki sé meira sagt.  Tounge  
mbl.is Danska konungsfjölskyldan birtir myndir af nýju prinsessunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amman 38 ára og langamman 56 ára

Kisa amma Þetta var mamma mín og amma!  Og ég er sökudólgurinn Blush.  Sæi ég ömmu mína í anda hafa átt von á barni á þessum aldri....ónei.  Amma var hundgömul 56 ára í tvítugum augum mínum.  En núna þegar ég er þroskaðri og veraldarvanari þá sé ég að hún var bráðung á þessum aldri. 

Hvernig ætli ömmu hafi liðið að verða langamma 56 ára gömul?           Í kvöld var sagt frá 54 ára íslenskri konu sem er ólétt af fyrsta barninu sínu.  Komin sjö mánuði á leið.  Ég missti af þessari frétt en frétti það annarsstaðar.  Hlakka til að heyra meira af þessri konu. Sú hlýtur að vera hamingjusöm að eiga von á fyrsta barninu sínu.

  Ég veit ekki hvort þetta barn kom undir á "eðlilegan" hátt eða hvort það var eitthvað hjálpað til.  Þá meina ég glasa..lyf og þess háttar.  Ég gleðst með þessari konu, það er yndislegt að verða mamma og mjög sérstakt í fyrsta sinn.  

 Þegar ég var með eldri strákana mína á leikskóla þá var ég meðyngstu mömmunum þar.  Núna er ég með elstu mömmunum á leikskóla yngsta stráksins.  En samt ekki. 

Ég finn ekkert fyrir því að vera mamma í eldri kantinum þar sem að mjög margir foreldrar í leikskólanum eru á svipuðum aldri og ég.  Fólk er farið að eignast börn fram eftir öllum aldri.  Ég var á 36. ári þegar ég eignaðist þann yngsta.   Ég ætla að láta það duga.   Nú er komið að því að fá sér hvolp.

Hm... amma mín  á séns á að verða langalangamma ...þarf að segja drengjunum mínum að drífa sig..og þó.. ...kannski ekki svo góð hugmynd...þá verð ég nefnilega amma Undecided

Gæti hafa verið amma mín

 


Ég elska súpur..

lobster-luxury1Fór í Hagkaup í gær sem er ekki í frásögur færandi.   Þegar ég fer í búðir og ekki síst Hagkaup þá á ég það til að eyða of miklum tíma í að lesa aftan á umbúðir og skoða nýjar vörur og fleira sem er tímafrekt og óþarfi.    Ég var í sérstöku eyðatímanumstuði í gær, ( átti að vera að læra) og tók upp hverja vöruna á fætur annarri og las og las. 

 Ég var nú komin að frystinum og þar tek ég upp poka af smáhumri.  Las aftan á pokann og þar var þessi snilldarinnar uppskrift af humarsúpu.  Svo mér datt í hug að elda hana í Sunnudagsmatinn. Nú var gaman..loks tilgangur. 

Hljóp út um alla búð að leita að hinu og þessu sem átti að fara í súpuna.  Fann hvergi Estragon .. ogestragon1 fann því starfstúlku sem ég ákvað að spyrja.

Ég :  Veistu hvar ég finn Estrógen?

Starfstúlkan:  hm... er það ekki hormón?

Ég:  Nei það er krydd. 

Hún:  Ja..ertu búin að gá í kryddhilluna?

Ég : já og ég finn þetta ekki.

Starfstúlkan kíkir í bækling sem hangir á hillunni og finnur það loks..

 Hún : Það heitir Estragon.

Ég roðna og rek upp tíst ( átti að vera hlátur) segi :   ó auðvitað, ég ruglaðist -  Estrógen ER auðvitað kvenhormón ( reyni að hljóma gáfulega).

Stelpan fann ESTRAGON í hillunni og rétti mér.  Ég þakka kærlega fyrir og held áfram leiðangrinum og klára innkaupin.  

Það var gaman að elda súpuna.  Fékk kallinn með mér í að taka skelina utan af humrinum og það var tilbreyting  þar sem hann er yfirleitt (alltaf)  sófadýr á meðan ég elda.   Smá tíma tók að ná skelinni af en við fundum að lokum réttu leiðina og þá var þetta ekkert mál.    Fiskkraftur, Mysa, hvítlaukur , smjör, hunangsdionsinnep, rjómi , sýrður rjómi, gulrætur, ESTRAGON, salt og pipar..ilmurinn var guðdómlegur.  Hvítlauksbrauð í ofninn.   800px-Lobster_bisque

Þarf ég að taka það fram að súpan var geggjuð!  Þetta var svona súpa sem maður getur ekki hætt að borða , svona eins og kjötsúpa.   Ég fékk mér aftur og aftur á diskinn.  Kallinn var löngu sestur á sinn stað í sófann.

Kom svo með stóra plastskál með loki til að setja afganginn í ( hann er svo skipulagður), lítur ofan í pottinn og segir að það sé of mikið eftir til að það komist í skálina..fáðu þér tvo diska í viðbót elskan, þá passar þetta.     Blush


Paul og Linda - lovebirds.

mccartney-paul-photo-paul-mccartney-and-linda-mccartney-6206378

Man eftir því þegar hann Paul  missti Lindu sína.  Man hvað heimurinn var sleginn og sorgmæddur. 

 Hann má þó vera fegin að losna við skassið hana Heather Mills samkvæmt því sem maður hefur lesið og heyrt. ( Séð og heyrt LoL). Paul átti ekki sjö daganna sæla og á víst ekki enn. 

linda

  Yndislega fallegt af honum að semja plötu um sína heittelskuðu Lindu.HeartHeart Hún var svo falleg og góð kona ..hún Linda.

 

 


mbl.is Sir Paul samdi plötu um Lindu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinsta kveðja

Falleg rósSvo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.

(Friðrik Steingríms.)


 

Elsku Kristín - gamla vinkonan mín.   Hvíl í friði.


Vigtin sýnir 3 kg. þyngra?!

Grunaði ekki Gvend.  Fann það og sá..vildi bara ekki viðurkenna það.  Er farin að sofa í hausinn á mér, vona að ég vakni þremur kílóum léttari og þetta hafi bara allt verið draumur. 

 ...... á þremur vikum? "#$%!

Feita konan á viktinni

                                               Haltu á töskunni fyrir mig vinur.......


Gerist á heppilegum tíma..

..fyrir mig. Grin  Hjólhýsi veltur á Kjalarnesi.  Ojojoj.  Ég sem er að reyna sannfæra fólk í kringum mig að það sé ekkert meira rok á Kjalarnesi en annarsstaðar.  

 Var nefnilega að skoða íbúð þar í gær og leist svona líka vel á hana!  En ég á erfitt með að sannfæra samferðamenn mína um kosti þess að búa á Kjalarnesi..og oftast notar fólk orðið "ROK" þegar minnst er á Kjalarnes.   

Ég hinsvegar hamast á kostunum, og nota orðin: - náttúra - friður- gott að ala þar upp börn og dýr ......smábæjarstemning ( sem getur reyndar verið galli  ).Tounge  

Huggulegur smábær

 


mbl.is Hjólhýsi valt á Kjalarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband