Laugardagur, 21. júlí 2007
Ætli pabbi sé búin að lesa Harry potter?
Ég er mikill bókaormur. Les flest allt NEMA ævintýrabækur.. sem er svolítið öfugsnúið, því ég er mikil ævinýrakona . Las hins vegar ævintýrabækur á unglingsárunum, ALLT sem ég komst í.
Bækurnar um Harry Potter eru vel markaðsettar bækur og allt verður vitlaust þegar að kemur út ný bók. Sem vekur auðvitað forvitni mína. Það hlýtur að vera eitthvað varið í þessar bækur?! Fyrir nokkru gerði ég tilraun til að byrja á fyrstu bókinni en gafst upp eftir nokkrar blaðsíður. Mér fannst hún bara ekki skemmtileg.
Pabbi minn er mikill lestrarhestur. Les allt sem vekur forvitni hans. Ætli hann sé búin að lesa Harry Potter? Þarf að spyrja hann.
Harry Potter allur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég les flest nema ástarsögur og ég hef lesið eina Harry Potter og mér fannst hún fín. Þessi eina. Nenni ekki að lesa alla RITRÖÐINA. HÍHÍ
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2007 kl. 10:43
Fyrsta bókin er hæg í gang - tók mig 3 mánuði að komast í gegnum fyrsta hluta fyrstu bókarinnar - eftir það fer þetta að renna svo skemmtilega að maður horfir aldrei til baka.
Ólafur Pétursson (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 11:34
Hef heldur ekki fílað þessar bækur en var alltaf lestrarhestur.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 21.7.2007 kl. 13:37
Ég les afskaplega mikið, en Harry Potter er ekki á dagskrá ennþá
Afi minn sálugi gaf mér alltaf kókómjólk þegar við fórum í mjólkurbúðina... það er góða minningin sem gerir bragðið.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.7.2007 kl. 22:38
Var það ekki kókómjólkin í þríhyrndu umbúðunum..ooooo hvað ég sakna hennar;) En ég skil vel þetta með góðu minninguna sem gerir bragðið
Ester Júlía, 21.7.2007 kl. 22:51
Ég las eina á ensku, fannst hún bara mjög fín. Finnst þær vera frekar barnalegar á íslensku, en töluvert meira áhugaverðar á ensku
Lovísa , 21.7.2007 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.