Miðvikudagur, 14. júní 2006
Hvað brennum við miklu við hinar ýmsu athafnir:
Svefn Þú brennir 65 hitaeiningum á klst við svefn
Ganga Þú brennir allt að 250 hitaeiningum á klst við göngu
Hjóla Þú brennir meira en 300 hitaeiningum á klst við það að hjóla
Skokk Þú brennir allt að 400 hitaeiningum við skokk
Sund Þú brennir meira en 500 hitaeiningum á klst við það að synda
Skvass Þú brennir 650 hitaeiningum á klst við að spila skvass
Lyftingar Þú brennir allt frá 500-800 hitaeiningum á klst við lyftingar
Tekið af www.protein.is.
Fríða Rún næringafræðingur fitumældi mig í fyrradag. Það kom mér heldur betur á óvart að eftir að ég byrjaði á þyngingarprógramminu og góðu mataræði , hef ég þyngst um 2 kg! Og það eru bara þrjár vikur síðan ég byrjaði í prógramminu. Jahérna. Enda er ég farin að finna mun á fötunum mínum. Gallabuxur orðnar of þröngar og ég veit ekki hvað og hvað. Öfugt við mjög marga er ég bara nokkuð ánægð með það :D. Ekki er þetta fita, það er eitt sem víst er.
Fituprósentan var 18,4 % sem mér finnst nú heldur mikið, en hún mun að sjálfsögðu fara lækkandi. 'Eg hef verið að lyfta nánast á hverjum degi, ætla aðeins að slaka á í því og taka brennslu frekar á móti. Held það sé of mikið fyrir mig að lyfta þungt prógram á hverjum degi. En kviðvöðvarnir fá að finna fyrir því á hverjum degi, ég SKAL ná sixpakkinu!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 10. júní 2006
Siglt um sundin blá..
Áður en ég byrja þessa bloggfærslu, langar mig að taka það fram að myndin sem tengist færslunni er EKKI af mér :)). Laugardagur ..og ég vaknaði klukkan átta til að fara á æfingu. Haldið að það sé rugl :). En ég er orðin háð æfingunum svona eins og fólk verður háð því að hlaupa. Ég mætti nú samt ekki fyrr en hálfellefu niðrí World Class..var svo værukær eitthvað. Tók Brjóst og þríhöfða í dag ásamt 150 kviðæfingum. Tek alltaf kviðæfingar eftir hverja æfingu og reyni að hafa þær fjölbreyttar.
Þegar ég var í bekkpressunni að hvíla og var að fara að byrja á fjórða og síðasta settinu , þá var ég kölluð upp í kallkerfinu. Ég rölti mér fram í afgreiðslu og haldið ekki að hún Sara mín kæra vinkona hafi staðið þar með fangið fullt af nammi! Hún er nýkomin frá London og keypti handa mér nammi í fríhöfninni þessi elska. Þetta verður að sjálfsögðu laugardagsnammið..ég er nefnilega algjör nammifíkill og verð að reyna að hemja mig og halda mig við laugardagana. Ætla ekki að sleppa nammideginum, frekar að rugla aðeins líkaman ( sem fær sjokk þegar að óhollustan kemur eins og skrattinn úr sauðaleggnum, og setur þá vonandi brennsluna alveg á fullt :). Ég held ég eigi inni einn sukkdag í viku, þar sem ég er rosalega dugleg í hollu mataræði, sex daga vikunnar.
Dagurinn í dag var mjög góður. Við Olli litli skruppum niður í bæ, fórum í kolaportið, svo röltum við um á hafnarbakkanum, fórum og skoðuðum varðskip, það var gaman að fá að kíkja inn í það , fórum meira að segja niður í vélarsalinn.
Síðan ákvað ég að kíkja einn rúnt með Sæbjörgunni, skipi slysavarnarfélagsins. Keypti vöffu og appelsín um borð fyrir Olla og svo stóðum við uppi á þilfari á meðan Sæbjörgin sigldi um sundin blá. Það var rosalega gaman og Olli skemmti sér ekkert smá vel.
Fórum upp í brúnna og Olli horfði út um gluggann hjá stýrimanninum og allt í einu segir hann " vá við erum alveg að koma til spánar" ! .....hahahahahahaha..ég sprakk úr hlátri og sá að fleiri áttu bágt með sig.
Ætla Esjuna á morgun ef veður leyfir, annars verður brunað niður í Laugar :).
Heilsurækt | Breytt 11.6.2006 kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 8. júní 2006
Fitness-dagbók
Datt allt í einu í hug að það væri sniðugt að skrifa fitness-dagbók þar sem ég er byrjuð á fitnessprógrammi. Ég stefni sem sagt á Fitness í haust. Hef aldrei áður tekið þátt í því og það er ekki seinna að vænna þar sem ég er að verða fertug í haust. Það er annað hvort að duga eða drepast ekki satt ;). Arnar Grant sem er margfaldur íslandsmeistari í Fitness , var svo elskulegur að gera fyrir mig lyftingarprógram. Einnig sendi hann mér upplýsingar um hvernig matseðillinn á að vera til þess að allt gangi upp.
Lyftingarprógrammið er fjórskipt. Ég er búin að fara tvisvar yfir það , æfi sex daga vikunnar. Tók strax á mataræðinu og fituprósentan hefur strax lækkað um 2 % skv. rafleiðnifitumælingartækinu (úff langt orð). Ég finn að ég er að breytast, vigtin stendur í stað , er meira að segja nærri kíló þyngri sem er mjög eðlilegt þar sem ég er að taka miklar þyngdir og stækka vöðvana. Vöðvar eru jú um helmingi þyngri en fita en þeir taka líka helmingi minna pláss.
Tók æfingu í morgun fyrir axlir og Trappa ( vöðvar efst á baki, nálægt öxlum). Æfingarnar taka alveg einn og hálfan til tvo tíma í hvert skipti. Tek æfingu á morgun fyrir brjóst og þríhöfða, hvíli á laugardaginn og geng esjuna á sunnudag. Nóg um þetta í bili :).
Miðvikudagur, 7. júní 2006
Þegar fólk stjórnar líðan minni
Mér hefur alltaf þótt gaman að skrifa. Jafnvel svo gaman að ég hef stundum haldið mig hafa hæfileika til þess. En ég hef alltaf efast, og síðast í kvöld þegar ég las stórkostleg skrif vinar míns, sem bloggar á þessum vef. Þetta er vinur sem er mér kær, jafnvel þótt við séum ekki lengur í neinu sambandi hvort við annað. En hann skrifar hreint stórkostlega. Hrein unun að lesa það sem hann skrifar. Og nú fer ég að verða væmin, svo ég ætla að fara yfir í annað.
Ég tek allt of mikið inn á mig annað fólk. Eða þs. það sem annað fólk segir eða gerir. Mér hefur til dæmis ekki liðið of vel í dag og ástæðan er einmitt sú að vissar manneskjur stuða mig og "láta" mér líða illa. Samt veit ég vel að það er nákvæmlega undir sjálfri mér komið hvort ég leyfi þessum manneskjum að stjórna mínum tilfinningum. Þetta þarf ég að skoða vel og vandlega ef ég ætla mér ekki að láta orð eða gerðir annarra stjórna lífi mínu. Ég veit hvað ég þarf að gera til að mér líði betur og það ætla ég mér að gera. Ég sný þessu við , mér í hag, og ég veit hvernig ég ætla að fara að því.
Annars er alltaf gott að skrifa um það sem býr manni í brjósti, það gefur góða líðan.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 6. júní 2006
Fékk far með Egó eftir ball ..
Ég hef alltaf verið leyndur aðdáandi Bubba. Það verður að viðurkennast. Ég var nefnilega að horfa á tónleikana og ég hreifst brjálæðislega með, fékk flashback þegar að Egó var að spila, fór í huganum á sveitaböllin á Hvoli og fleiri stöðum. Ég fékk einu sinni far með Egó eftir ball á Hvoli. Það var mikil ævintýraferð, svo ekki sé meira sagt. Þetta var á þeirra "dóptíma" og mér leið eins og Lísu í Undralandi á leiðinni. En mér varð ekki meint af , komst heil á húfi heim :). Ég var bara sextán ára þarna.
Mér þótti alltaf svo vænt um Þorleif bassaleikara. Gaman að sjá hann þarna í kvöld. Og gaman að sjá öll þessi "gömlu " brýni samankomin - Mike og Danna Pollock, Magga trommara ( hann er æði) og fl.
Já böllin með Egó voru ein kraftmestu böllin sem voru á þessum tíma. Bubbi er ótrúlegur! Hló mig máttlausa þegar að Jón Gnarr sagði " Og aldrei hefði mér dottið í hug að Bubbi myndi halda upp á fimmtugsafmæli sitt" ..hehe.
Sé mest eftir að hafa ekki keypt miða á tónleikana, það hefði verið toppurinn að vera þarna í kvöld
INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ STÓRAFMÆLIÐ BUBBI - ÞÚ ERT FLOTTASTUR!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 4. júní 2006
Það var kalt efst á Esjunni í dag
Ég fór aftur á Esjuna í dag. Er bara nokkuð stolt af mér að hafa staðið við það sem ég hafði lofað sjálfri mér. Var nefnilega búin að ákveða að fara á esjuna um hverja helgi í allt sumar. Hrönn og Arndís úr World Class fóru með mér. Það var milt veður og við vorum ekki mikið klæddar. Þegar við komum upp og áttum bara klettana efst uppi eftir, þá var orðið rosalega kalt og vindasamt, þannig að við ákváðum að sleppa klettunum.
Tókum á rás niður Esjuhlíðar. Það er rosalega gaman að hlaupa niður fjallið, tilfinningin er soldið eins og að fljúga:). En það er mikið álag fyrir hnén og ökklana að hlaupa svona lengi niður halla. Ég fékk miklar harðsperrur í aftanverð læri eftir síðustu helgi, það var td. hræðilega vont að labba bara niður stiga, vona að ég fái ekki eins miklar harðsperrur núna. Við vorum nákvæmlega einn og hálfan tíma upp og niður aftur.
Við Helgi fórum svo með Olla í Elliðarárdalinn, fyrst var hann mjög hræddur við trén (skrýtið, barnið hefur alltaf verið hræddur við tré og plöntur, frá því hann var pínulítill) en svo róaðist hann og allt varð í himnalagi og við hlupum eftir stígunum á milli trjánna, týndum köngla og blóm og litli kallinn skemmti sér konunglega. Æ hann er svo mikið yndi þessi drengur. Aron og Danni eru báðir á Hólmavík núna í fermingu hjá frænku sinni.
Arnar Grant var að senda mér matarprógram, hann er að hjálpa mér með fitnessprógram og er alveg gífurlega hjálpsamur og almennilegur. Matarprógrammið er svo sem ekki mikið öðruvísi en það sem ég hef verið að borða og ég veit hvar mínar veiku hliðar liggja og þar þarf ég að passa mig mjög vel. - Að borða seint á kvöldin þó það sé cheerios eða ristað brauð, það er eitthvað sem ég þarf að leggja af.
Ég er ótrúlega þreytt núna, sofnaði meira að segja áðan yfir Boston legal sem er uppáhaldsþátturinn minn. Er að hugsa um að hátta mig og fara upp í rúm með bókina sem ég er að lesa núna - stórgóð bók sem heitir Skuggi vindsins.
Þar til næst ..:)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 28. maí 2006
Á kosningardaginn fór ég á Esjuna.
Jamm, ég lét loks vera að því , klifraði upp á Esjuna á kosningadag. Svindlaði mér með extreme-hópnum frá World Class ;). Við fengum frábært veður og ég var að sjálfsögðu allt of mikið klædd, í sokkabuxum, þykkum íþróttabuxum, ullarpeysu og úlpu. Ég var meira að segja með vettlinga! Fyrst fuku vettlingarnir og síðan úlpan. Við tókum þetta létt, örkuðum þarna upp á nokkuð góðum hraða , fórum meira að segja útaf stígnum efst uppi og fórum brattari leið upp á topp.
Erfiðasti en jafnframt skemmtilegasti hlutinn voru klettarnir efst uppi. Skýtið, ég finn ekki fyrir lofthræðslu á fjöllum, ég sem hélt að ég væri svo lofthrædd. Mikið ofboðslega var fallegt útsýni uppi á Esjunni! Ótrúlega falleg sjón að horfa yfir borgina. Við ætluðum ekki að tíma niður aftur eftir að hafa arkað alla leið upp. En svo hlupum við niður Esjuna, já alla leið niður. Það voru þung síðustu skrefin, fæturnir ætluðu varla að bera mig.
Ég og ein sem vinnur í WC ákváðum svo að fara Esjuna á hverjum laugardegi í allt sumar. Þetta er nefnilega frábær leið til að þjálfa upp þolið. Og svo er þetta bara svo ótrúlega skemmtilegt og hressandi.
Í dag er ég með heilmiklar harðsperrur í lærum og kálfum sem fara versnandi. Miða við fyrri reynslu þá veit ég að harðsperrurnar verða verri á morgun ...úff..en þetta var þess virði!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 25. maí 2006
Hvað á ég að kjósa ?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 25. maí 2006
Æ hvað Unnur Birna datt illa!
Sátum í sófanum fjölskyldan að horfa á fegurðarsamkeppnina. Allt í einu rennur alheimsfegurðardrottningin á gólfinu og datt ekkert smá illa (virtist vera) - alveg kylliflöt og kórónan féll! Maðurinn minn hljóp inn í herbergi, upp í rúm og hvarf undir sæng hlægjandi og unglingurinn hrundi í gólfið í hláturskasti. - Usssssss - sagði ég , hún datt og meiddi sig, hvurslags eiginlega er þetta að hlægja svona að óförum annara.
En þetta eru víst alveg eðlileg viðbrögð, að sjá aðra detta kemur fólki til að hlægja , það kemur ekkert manngerðinni við.
En æ hvað ég vorkenndi aumingja stelpunni, þetta var auðvitað hrikalegt. Hún gæti alveg sótt skemmtistaðinn til saka fyrir þetta. Við vitum að það yrði pottþétt gert í Ameríku! En hvað var eiginlega á þessum gólfbletti sem fékk fólk til að hrasa eða detta kylliflatt?
Ég vona svo bara innilega að Unnur Birna hafi ekki meitt sig, alla vega bar hún sig vel þegar hún krýndi nýju drottninguna. Og nú er komin ný Ungfrú Ísland.
Til hamingju Sif!
Viðbót: Hjúkk, UB er búin að blogga og hún er óbrotin. Eins og hún segir sjálf þá er "fall fararheill" og ég er viss um að það á við í hennar tilviki. Frábær stelpa hún Unnur Birna sem lætur þetta fall ekki á sig fá, enda verða allir búnir að gleyma því á morgun.
Og innilega til hamingju með afmælið Unnur Birna :))
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 21. maí 2006
Ég er "eurovision" barn.
Ég ólst upp sem "eurovision" barn. Mikil stemning hefur alltaf verið fyrir söngvakeppninni á mínu heimili. Fjölskylda mín er mjög músíksinnuð og oftar en ekki er sungið og spilað á mannamótum í fjölskyldunni. Þó er bróðir minn sá eini í fjölskyldunni sem er starfandi tónlistarmaður. Ja reyndar er hinn bróðir minn í starfi tengdu tónlist. Ég var meira í dansinum en fæ útrás fyrir söngvarann í mér í partýum og "það var lagið" með Hemma Gunn á laugardagkvöldum , lengra nær það víst ekki.
Það er því kannski ekkert skrýtið að ég fíla söngvakeppnina í tætlur. Var engan veginn sátt við að senda skrípaleik til Aþenu, mér finnst að taka eigi þessa keppni alvarlega. Því var ég alveg sátt við að við komumst ekki upp úr undanúrslitunum. Ég vildi senda Regínu Ósk til Aþenu, lagið sem hún flutti er nefnilega lag sem hefði alla vega komist í úrslit.
Og nú er sigurinn ljós - Finnar unnu og ég er hamingjusöm eins og við hefðum unnið keppnina! Mér finnst lagið þeirra æðislegt, þetta er megagott lag og textinn er meira að segja í lagi. Ég er líka rosalega ánægð með að Rússland hafi orðið í 2. sæti, fannst það lag heillandi og flott.
Hard Rock Hallelujah
original English lyrics
music & lyrics: Mr Lordi
arrangement: Lordi
performer: Lordi
Hard Rock Hallelujah!
Hard Rock Hallelujah!
The saints are crippled
On this sinners? night
Lost are the lambs with no guiding light
The walls come down like thunder
The rocks about to roll
It?s the Arockalypse
Now bare your soul
All we need is lightning
With power and might
Striking down the prophets of false
As the moon is rising
Give us the sign
Now let us rise up in awe
Rock ?n roll angels bring thyn hard rock hallelujah
Demons and angels all in one have arrived
Rock ?n roll angels bring thyn hard rock hallelujah
In God?s creation supernatural high
The true believers
Thou shall be saved
Brothers and sisters keep strong in the faith
On the day of Rockoning
It?s who dares, wins
You will see the jokers soon?ll be the new kings
All we need is lightning
With power and might
Striking down the prophets of false
As the moon is rising
Give us the sign
Now let us rise up in awe
Rock ?n roll angels bring thyn hard rock hallelujah
Demons and angels all in one have arrived
Rock ?n roll angels bring thyn hard rock hallelujah
In God?s creation supernatural high
Wings on my back
I got horns on my head
My fangs are sharp
And my eyes are red
Not quite an angel
Or the one that fell
Now choose to join us or go straight to Hell
Hard Rock Hallelujah!
Hard Rock Hallelujah!
Hard Rock Hallelujah!
Hard Rock Hallelujah!
Rock ?n roll angels bring thyn hard rock hallelujah
Demons and angels all in one have arrived
Rock ?n roll angels bring thyn hard rock hallelujah
In God?s creation supernatural high
Hard Rock Hallelujah!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)