Nýji diskur bróður míns.

Loksins komnar inn nýjar myndir Happy.  Heyrði i útvarpinu áðan að Elton John væri að túra um Ástralíu, gott hjá sextugum karlinum.  Nýja lagið hans er þrusugott, hann klikkar ekki.  Heyrði viðtal við yngri bróðir minn á rás tvö í dag, hann ásamt öðrum í Brooklyn fæv  voru að gefa út jóladisk og ég hvet ykkur til að hlusta á hann. Hreint unaðslega fallegur. Þeir tóku hann upp í ágúst, sögðust hafa verið komnir í jólafílingin þegar þeir löbbuðu úr stúdíóinu út í glampandi sólskinið.  Það hefði ekki alveg meikað sens. En jólalegur er diskurinn, enginn undirleikur bara raddaður. Mér finnst það alltaf svo flott.  Voru víst í vandræðum með nafn á diskinn.. allir jóladiskar heita - Gleðileg jól svo þeim datt í hug - Góð jól en það hefur ekki verið notað áður.   Annars er ég í próflestri , fer ekki í jólafílinginn fyrr en prófin eru búinn eða næsta laugardag.  Jólaskemmtun World Class er einmitt á laugardagskvöldið næsta svo maður á eftir að skvetta ærlega úr klaufunum þá. Shocking.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Verð að reyna að heyra þennan disk. knús

Jórunn Sigurbergsdóttir , 10.12.2006 kl. 19:58

2 Smámynd: Ester Júlía

Knús sömuleiðis Jórunn mín, já endilega reyndu að hlusta á þennan disk. 

Ester Júlía, 10.12.2006 kl. 20:07

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Kvitt

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.12.2006 kl. 22:45

4 Smámynd: Ólafur fannberg

kvittó

Ólafur fannberg, 11.12.2006 kl. 08:00

5 Smámynd: Birna M

Kvitt

Birna M, 12.12.2006 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband