Laugardagur, 15. mars 2008
Já það var sko gaman..
Ótrúlega sterkir tónleikar. Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel á tónleikum.Líkja má stemningunni við gott kvöld á þjóðhátíð í Eyjum. Allir sungu með, allir glaðir og hamingjusamir.
Fólk var svolítið að fá sér í tánna en það var bara allt í lagi, allt fór friðsamlega fram enda allir vinir þetta kvöld.Ókunnugir föðmuðust og hylltu Sálina sem var ótrúlega sterk.
Ætli meðalaldurinn hafi ekki verið um 40 - 45..ótrúlega gaman að sjá hvað mikill meirihluti var í "eldri" kantinum, þó slæddust inn á milli yngri andlit enda eru aðdáendur Sálarinnar breiður aldurshópur.
Ekkert hlé var á tónleikunum en engin þreytumerki voru að sjá á Sálarmönnum. Svitinn lak í stríðum straumum niður andlit Stebba og Gumma gítarleikara enda hömuðust þeir á sviðinu allan tímann.
Gospelkór Reykjavíkur söng með þeim í nokkrum lögum og var það frábært.Einnig komu nokkrir meðlimir sinfóníuhljómsveitarinnar og spiluðu með í eitthverjum lögum - snilld. (Stebbi sagði að þeir hefðu ekki haft efni á allri hljómsveitinni) Æðislegir tónleikar, rífandi stemning - Sálin er draumurinn!!
Mikil stemmning á afmælistónleikum Sálarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gaman að því Ester mín. Góða helgi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2008 kl. 11:39
ohhh mig langaði svooo rosalega mikið:) sálin er auðvitað ALLTAF góð
Knús
Ellen Jóns (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 11:43
Já, það er sko óhætt að segja að þeir hafi engu gleymt. Það er vonandi að þeir verði duglegir að spila fyrir landsmenn í nánustu framtíð. Gaman að sjá allan þennan fjölda saman kominn í gær.
Pétur Kristinsson, 15.3.2008 kl. 12:59
Sálin er hluti af æsku minningu minni....
Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.3.2008 kl. 18:13
þeir eru ágætir he he bara grín,,,,,flottir
Einar Bragi Bragason., 16.3.2008 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.