Talking to me???

BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desembermban1533l bleeding_rose_my_desktop__by_mandiscandi

 

Þú þarft ekki að leita uppi vandamál. Þau munu finna þig. Vertu viðbúinn. Þau gætu bankað á dyrnar með blómvönd, og þá skaltu ekki opna. 

 *hóst* .. þetta var sem sagt stjörnuspá dagsins í dag fyrir mitt merki!

 

En hvað !?  Er verið að ýja að því að ég sé að halda framhjá?  Eða á góðri leið með það??  Hvurslags er þetta eiginlega.   

ÉG á semsagt að vera á varðbergi gagnvart ókunnugum mönnum, ekki þiggja neitt frá þeim..og ja, ekki láta mig dreyma um að leggja lag mitt við aðra karlmenn, hversu spennandi og sjarmerandi sem þeir kunna að vera. 

Ég fer nú létt með það Whistlingwoman

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þessar stjörnuspár hjá Mogganum eru æfintýralegar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 19:06

2 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

maður verður bara hræddur

Einar Bragi Bragason., 12.7.2007 kl. 19:25

3 Smámynd: Ester Júlía

Já ég varð líka  hrædd

Ester Júlía, 12.7.2007 kl. 19:50

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ja, nú er ég bara hugsi. Getur maður tekið blómvöndinn og forðast vandamálið?

Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.7.2007 kl. 20:00

5 Smámynd: Ester Júlía

Heyrðu, það er auðvitað ráð!  Maður getur alltaf á sig blómum bætt

Ester Júlía, 12.7.2007 kl. 22:09

6 Smámynd: Ólafur fannberg

mitt merki lika

Ólafur fannberg, 12.7.2007 kl. 22:13

7 Smámynd: Ester Júlía

Já ég veit Ólafur,enda hugsaði ég að þetta hlyti að eiga við þig frekar en mig

Ester Júlía, 12.7.2007 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband