Sumarbústaðaferð og myndir

SumarbústaðurinnYndisleg helgi að baki.    Fékk þá flugu í hausinn á laugardaginn að mig langaði upp í bústað.  Skrýtin þessi þörf sem kom yfir mig.  Ég var svo afslöppuð og sveitin togaði í mig - fast!   Ég tékkaði á hvort bústaðurinn væri laus og það var hann - en maður veit svo sem aldrei, mínir yndislegu foreldrar hefðu alveg eins hætt við að fara fyrir okkur systkinin Woundering.

Skelltum í tösku, hentum barni og hundi út í bíl,  versluðum grillmat og gúmmílaði og brunuðum upp í bústað.  Þvílíkur ró og friður í bústaðinum.  Vá hvað ég naut þess. 

 Lúkas litli Þetta var í fyrsta sinn sem Lúkas (hvolpur) kemur með  okkur og það var áberandi hvað hann var Fallegasturrólegur í bústaðnum alveg eins og við .  Honum leið greinilega jafnvel og okkur á þessum stað.

 

Á þjóðhátíðardaginn vöknuðum við mjög snemma, létum renna heitt í pottinn og skelltum okkur í hann.  Veðrið var æðislegt, algjört logn og um 15-16 stiga hiti.  Sól  öðru hvoru.  Við Olli vorum í tvo tíma í pottinum ( með smá hléum).  

Olli með bleika boltanÍ sólbaði

Að klöngrast undir rafmagnsgirðingu

Að halda stjórninniHahaha

Olli í fjörunni í Hvalfirði

Á leið í fjöruna

Lúkas flotti

Helgi stóri og ..

Að skoða rauða kónguló

 Fórum svo öll í göngutúr niðrí fjöru þar sem hundurinn fékk að hlaupa og Olli skoðaði rauðar kóngulær á steinunum.  Hitinn var þá kominn upp í 18-20 stig.    

Vorum komin í bæinn um kl. 18:00. Misstum af öllum herlegheitunum í miðbænum en ég græt það svo sem ekki.  Við hefðum ekki getað eytt þessari helgi betur.   Joyful  Íþróttaálfurinn

ÁFRAM ÍSLAND!  (horfði á leikinn í gærkvöldi og er svooo stolt)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

flottar myndir

Ólafur fannberg, 18.6.2007 kl. 08:25

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislegt umhverfi og þú megababe í pottinum.  Það er eins gott að sýna ekki of mikið.  Njóttu dagsins ljósið mitt

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 09:14

3 identicon

Ohh lúxus !  Æðislegt að þið gátuð chillað uppí bústað

Kvittós

Melanie Rose (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 19:44

4 identicon

Þetta eru náttúrlega bara æðislegar myndir ... ! Þið eruð öll algjörar dúllur

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 00:08

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæ flotta skotta.Hvar er þessi bústaður..Flottar myndir og alger krútta familía

Já ég horfði á leikinn ...var hérna ein heima öskrandi á sjónvarpið eins og brjálæðingur

Solla Guðjóns, 19.6.2007 kl. 00:55

6 Smámynd: Ester Júlía

Takk fyrir allir .  Ollasak.. bústaðurinn er á frábærum stað í Hvalfirði.  Yndislegt hreiður fyrir familíuna, mátulega langt frá bænum. 

Ester Júlía, 19.6.2007 kl. 11:26

7 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

GAman að sjá hvað þið hafið haft það gott. Flottar myndir Ester mín.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.6.2007 kl. 11:28

8 Smámynd: Kolla

Ohh, langaði í sumarbústað þegar ég sá myndirnar :)

Kolla, 20.6.2007 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband