Mánudagur, 18. júní 2007
Sumarbústaðaferð og myndir
Yndisleg helgi að baki. Fékk þá flugu í hausinn á laugardaginn að mig langaði upp í bústað. Skrýtin þessi þörf sem kom yfir mig. Ég var svo afslöppuð og sveitin togaði í mig - fast! Ég tékkaði á hvort bústaðurinn væri laus og það var hann - en maður veit svo sem aldrei, mínir yndislegu foreldrar hefðu alveg eins hætt við að fara fyrir okkur systkinin .
Skelltum í tösku, hentum barni og hundi út í bíl, versluðum grillmat og gúmmílaði og brunuðum upp í bústað. Þvílíkur ró og friður í bústaðinum. Vá hvað ég naut þess.
Þetta var í fyrsta sinn sem Lúkas (hvolpur) kemur með okkur og það var áberandi hvað hann var rólegur í bústaðnum alveg eins og við . Honum leið greinilega jafnvel og okkur á þessum stað.
Á þjóðhátíðardaginn vöknuðum við mjög snemma, létum renna heitt í pottinn og skelltum okkur í hann. Veðrið var æðislegt, algjört logn og um 15-16 stiga hiti. Sól öðru hvoru. Við Olli vorum í tvo tíma í pottinum ( með smá hléum).
Fórum svo öll í göngutúr niðrí fjöru þar sem hundurinn fékk að hlaupa og Olli skoðaði rauðar kóngulær á steinunum. Hitinn var þá kominn upp í 18-20 stig.
Vorum komin í bæinn um kl. 18:00. Misstum af öllum herlegheitunum í miðbænum en ég græt það svo sem ekki. Við hefðum ekki getað eytt þessari helgi betur.
ÁFRAM ÍSLAND! (horfði á leikinn í gærkvöldi og er svooo stolt)
Athugasemdir
flottar myndir
Ólafur fannberg, 18.6.2007 kl. 08:25
Yndislegt umhverfi og þú megababe í pottinum. Það er eins gott að sýna ekki of mikið. Njóttu dagsins ljósið mitt
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 09:14
Ohh lúxus ! Æðislegt að þið gátuð chillað uppí bústað
Kvittós
Melanie Rose (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 19:44
Þetta eru náttúrlega bara æðislegar myndir ... ! Þið eruð öll algjörar dúllur
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 00:08
Hæ flotta skotta.Hvar er þessi bústaður..Flottar myndir og alger krútta familía
Já ég horfði á leikinn ...var hérna ein heima öskrandi á sjónvarpið eins og brjálæðingur
Solla Guðjóns, 19.6.2007 kl. 00:55
Takk fyrir allir . Ollasak.. bústaðurinn er á frábærum stað í Hvalfirði. Yndislegt hreiður fyrir familíuna, mátulega langt frá bænum.
Ester Júlía, 19.6.2007 kl. 11:26
GAman að sjá hvað þið hafið haft það gott. Flottar myndir Ester mín.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.6.2007 kl. 11:28
Ohh, langaði í sumarbústað þegar ég sá myndirnar :)
Kolla, 20.6.2007 kl. 13:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.