Fimmtudagur, 12. júlí 2007
Þetta er góða veðrið.
Fólk verður kærulaust í sólinni. Kærulaust og værukært. Keyra hratt, hraðar hraðast.
Fá sér bjór og svo annan og þann þriðja.
Fyllerí og allt fer úr böndunum.
Slá til konunnar eða mannsins.
Börnin eru fyrir. Rífast og skammast í þeim.
Sorglegt.
En ég held það sé nærri víst að sól og hiti hafi áhrif á lund landans.
Og enn er spáð hita og sól, framyfir helgi að minnsta kosti.
Slakið á kæru landsmenn ...please!
![]() |
Talsverður erill hjá lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 12. júlí 2007
Talking to me???
BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember
*hóst* .. þetta var sem sagt stjörnuspá dagsins í dag fyrir mitt merki!
En hvað !? Er verið að ýja að því að ég sé að halda framhjá? Eða á góðri leið með það?? Hvurslags er þetta eiginlega.
ÉG á semsagt að vera á varðbergi gagnvart ókunnugum mönnum, ekki þiggja neitt frá þeim..og ja, ekki láta mig dreyma um að leggja lag mitt við aðra karlmenn, hversu spennandi og sjarmerandi sem þeir kunna að vera.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 12. júlí 2007
Ótrúlegt!
Ég hef alla tíð haldið að kínverjar væru mjög lágvaxið fólk. Þess vegna kemur það mér mjög á óvart að hæsti maður heims sé KÍNVERJI!
Kannski eru kínverjar ekkert lágvaxnir , kannski er það bara misskilningur hjá mér að kínverjar séu eitthvað lágvaxnari en td. evrópubúar. Veit ekki hvar ég fékk þessa flugu í höfuðið en ef einhver er fróður um þessi mál þá má sá hinn sami endilega fræða mig betur.
Kínverjinn sem um ræðir er ekki lágvaxinn, síður en svo , heldur 2,36 metrar á hæð. Eiginkona hans er hins vegar svipuð mér á hæð eða 1,68 cm. og er það nú bara meðalhæð á kvenfólki yfirhöfuð.
Ég læt svo fylgja með mynd af einu krúttlegasta dýri jarðar, ættuðu frá Kína.. Pandabirninum.
![]() |
Hæsti maður heims giftir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)