11. ráð til betri heilsu á nýju ári

 nicelady

Þá er að taka fram íþróttaskónna á nýju ári!  1. Ef þú ert kyrrsetumanneskja að byrja að hreyfa þig þá byrjaru rólega með því að fara út stutta göngutúra og svo eykur þú lengdina á göngutúrunum eftir því sem þolið verður betra.  Þú átt eftir að finna mun á þér mun fyrr  en þú býst við. 

2. Drekktu mikið vatn ...Tveir til tveir og hálfur líter af vatni fyrir konur hvern dag og tveir og hálfur til þrír lítrar fyrir karlmenn hvern dag.

3. Minnkaðu kaffidrykkjuna ..kaffi er vatnslosandi og eykur þörfina á ennþá meiri vatnsdrykkju. ( vökvaskortur)

4. Borðaðu sex máltíðir á dag.....þrjár stórar og þrjár litlar ( millibitar)

5. Borðaðu tvo  skammta af ávöxtum á dag,  þrjá skammta af grænmeti.. 1. skammtur er einn bolli.

6.Taktu lýsi til að fá nóg D-vítamín og drekktu tvö glös af mjólk á dag. 

7. Hafðu fjölbreyttni í hreyfingu, synda, hjóla, línuskautar/skautar, fjallganga, göngutúr, skokk,handbolti, fótbolti, spinning, tækjasalur..nóg er til :).

8. Gerðu fjölbreyttar kviðæfingar..svo þú styrkir ALLA kviðvöðvana. 

9. Prófaðu að sleppa sykri, hveiti og óhollri fitu ..auðveldara en þú heldur Wink.

10. Fáðu nógan svefn..mjög mikilvægt fyrir líkama og sál. 

11. Settu þér markmið, en hafðu þau RAUNHÆF, mun auðveldara að standa við þau .

bd4555ph

 GANGI ÞÉR VEL

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

hvað er fyrir klikkaða botnvörpukafara eins og mig ?

Ólafur fannberg, 2.1.2007 kl. 16:31

2 Smámynd: Ester Júlía

æ sorrý, gleymdi þér....þú getur hlaupið á botninum bara..í búningnum..

Ester Júlía, 2.1.2007 kl. 16:35

3 Smámynd: Ólafur fannberg

skemmtileg...heheheh kemurðu ekki með?

Ólafur fannberg, 2.1.2007 kl. 16:56

4 Smámynd: Ester Júlía

Ég ? ....*stórthóstakast* ..ehem..sama og þegið, mætti ég frekar biðja um mount Everest.....please ekki neðansjávar.... *oföndun* ;)

Ester Júlía, 2.1.2007 kl. 17:13

5 Smámynd: Ólafur fannberg

oooo ætlaði að bjóða fáeinum hákörlum i mat hehehehehe bara djók

Ólafur fannberg, 2.1.2007 kl. 17:17

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Takk fyrir þetta ráð...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.1.2007 kl. 17:19

7 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Góð ráð. Ég þarf að auka fjölbreytnina í hreyfingu. Fer alltaf í sund eins og þú kanski veist og syndi  mikið. Verð að minsta kosti að fara út að ganga. Var með álagsverki þegar ég var alltaf í ræktinni. Geri flest hitt sem þú sagðir.  Heyrðu nýja myndin þín er frábær. Sæt lítil stelpa. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.1.2007 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband