Afmælisveislan

Þórdís vinkona segir allt í einu við mig: "  má ég segja nokkur orð" ?  .. og ég spyr:" ætlaru að biðja mig um að giftast þér"?  ..hún hló og sagði nei reyndar ekki " og ég sauðurinn fattaði auðvitað ekki neitt, ætlaði að fara að labba fram, hélt hún ætlaði að segja eitthvað undir fjögur augu. En þá stendur Þórdís upp , slær í bollann sinn með skeiðinni og heldur ræðu!  Um mig auðvitað, ansi skemmtileg ræða hjá henni, Þórdís kann þetta.  Samt hálfvandræðalegt að heyra talað um sig fyrir framan fullt af fólki  þegar maður er ekki vanur því. Við Þórdís erum æskuvinkonur, búnar að þekkjast í  í 37 ár, vorum saman á leikskóla, og bjuggum nánast í sama húsi, síðan kom nokkura ára hlé , þar til ég byrjaði í hlíðarskóla ellefu ára gömul, þá hittumst við aftur og búnar að halda sambandi alla tíð síðan.   

Var sem sagt með afmælisveisluna í gær.   Ótrúlega gaman að hitta allt þetta fólk.  Ég held alltaf upp á afmæli, finnst svo gaman að hitta fólkið en núna bauð ég aðeins fleirum en venjulega.  Nóg var af kræsingum.. ég hef aldrei þurft að hafa eins lítið fyrir bakkelsinu þar sem mamma kom með fullt af tertum  , afgangar frá því úr erfidrykkjunni.  Mamma kom líka með pönnukökur sem hún hafði bakað.  Bestu pönnukökur í heimi!    Ég gerði bara eina stóra brauðtertu og smurði svo litlar snittur ( alltaf mjög vinsælt) .  

Það voru nú samt ekkert rosalega margir , kannski 25 manns, en alveg nóg, fólk sem mér þykir vænt um.  Tók nokkrar myndir úr afmælinu, set þær inn fljótlega.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

til hamingju með afmælið og takk fyrir afmæliskveðjuna

Ólafur fannberg, 4.12.2006 kl. 08:11

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég fæ nú bara vatn í munninn að lesa þetta,Ester mín. Frábært að að var svona gaman hjá þér. Gott að eiga vini sem maður hefur átt alla æfi.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.12.2006 kl. 11:06

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Til hamingju með afmælið... og ég geri bestu pönnukökur í heimi

Gunnar Helgi Eysteinsson, 4.12.2006 kl. 12:56

4 identicon

Til hamingju með afmælið Ester.

Kveðja Díana 

Díana Ósk (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 14:19

5 identicon

Til hamingju með afmælið Ester.

Kveðja Díana 

Díana Ósk (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband