Ljót og gömul strætóskýli í úthverfunum

mbl0033522.jpg

   Ég held að starfsmenn reykjavíkurborgar  planti niður eldgömlu og ljótu ryðguðu járnstrætóskýlunum í úthverfin þar sem þau eru nógu góð fyrir auga úthverfamannsins.  Á fjölförnum umferðagötum eins og td. á laugaveginum eða Suðurlandsbraut, þar er ekki að sjá þessi ljótu gömlu strætóskýli..þar eru falleg græn glerstrætóskýli sem gleðja augu ferðamannsins og allra þeirra sem eiga leið um fjölfarnar umferðagötur.   Ég á heima í mjög fallegu nýlegu úthverfi í Reykjavík , þar  er ósnortin náttúra og falleg fjallasýn, og falleg hús en það eina sem skemmir útsýnið eru þessi forljótu gráu ryðguðu strætóskýli sem plantað er niður með 100 m. millimili.  'Eg viðurkenni fúslega að þetta pirrar mig óstjórnlega.  Ég væri alveg til í að hafa grænt glerstrætóskýli fyrir utan gluggann  hjá mér en í staðinn blasir við eitt af þessum ljótu gráu hálfmygluðu strætóskýlum.  Ég held að gatan mín yrði miklu fallegri með græn glerstrætóskýli sem plantað væri hér og þar í götunni. 

En á móti kemur að gráu ljótu strætóskýlin vekja upp gamlar sætar minningar frá því ég var lítil og hélt í hendurnar á mömmu og pabba í sitthvora litlu hendina mína inní einu slíku.  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Sammála þér með strætóskýlin. en það er líka galli við þau fallegu grænu. Þau skýla ekki þeim sem bíða. Það blæs undir þau.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 17.4.2006 kl. 22:47

2 Smámynd: Ester Júlía

Já það blæs undir þau.. man það núna. Það er ekki gott að standa inní þeim með ískaldar fæturna. Kannski er bara gott að hafa þessi ljótu gráu gömlu í úthverfunum. Það er líka alltaf kaldara þar. Fegurðarsjónarmiðið ræður áfram ríkjum í miðborginni. Skítt með kuldann.

Takk fyrir heimsóknina :)

Ester Júlía, 17.4.2006 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband