Þriðjudagur, 14. nóvember 2006
Mýrin, Barcelona og lithimnubólga
Ég fór á Mýrina um helgina. Frábær mynd, vel leikin , fyndin, sorgleg..allur pakkinn. Var rosalega hrifin af leik "Elliða" ( man ekki nafnið á leikaranum), hann var svo sannfærandi í hlutverkinu að það var rosalegt! Minnir að ég hafi lesið eitthversstaðar að hann sé ekki menntaður leikari en endilega leiðréttið mig ef þið vitið betur. Frábær mynd í alla staði.
Barcelona er það heillin á fimmtudaginn. Já ég er að fara til Barcelona, borg listarinnar. Verð í fjórar nætur, kem heim klukkan 6:45 á þriðjudagsmorgun. Ég hlakka mikið til. Þetta er afmælisferð, ég á víst stórafmæli 28. nóvember og ákvað frekar að fara til Barcelona í slökunar-verslunarferð, frekar heldur en að halda stóra veislu. Verð nú samt með veislu eins og alltaf ( er mikið afmælisbarn) og kannski verður aðeins fleirum boðið en venjulega..fer örlítið út fyrir fjölskyldurammann.
Ég er komin með "lithimnubólgu" ..blessunin kom á versta tíma en ég rauk strax til augnlæknis um leið og ég varð vör við hana. Hef nokkrum sinnum fengið þetta áður og alltaf í sama augað. Augað verður eldrautt og miklir verkir í því. Ef þetta er ekki meðhöndlað, getur það valdið blindu. Stórhættulegt. Þannig að ég sé fram á að geta ekki notað linsurnar mínar mikið á Spáni, fór því í gær og fjárfesti í gleraugum. Gleraugun mín eru nefnilega orðin gömul og lúin. Valdi mjög töff gleraugu - Karen Millen og fékk rosatöff design sólgleraugu með styrkleika í kaupbæti ! Ég mun aldrei skipta um gleraugnaverslun, hann er æði hann Markús!
Athugasemdir
Skemmtu þér ofsalega vel í Barcelona!!! Vonandi verður bólgan farin. Þú ert nú bara barnung ennþá Ester mín en til hamingju með afmælið þegar það verður. Jórunn
Jórunn Sigurbergsdóttir , 14.11.2006 kl. 17:15
Góða skemmtun í Barcelona Ester mín
Þú ferð létt með líffærafræðina....víst að ég gat það þá getur þú það hehehe. þú hefur nú alltaf verið vel gefin, man alltaf hvað þú last mikið í gamla daga þegar við vorum ungar og vitlausar....alltaf bók á eldhúsborðinu þínu
Bestu kveðjur frá mér til þín
Olga (IP-tala skráð) 17.11.2006 kl. 07:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.