Nýjar myndir af Lúkasi

Lúkas sæti Mér finnst hann alltaf vera að fríkka. Stór og falleg augu, snoppufríður með eindæmum. Finnst ykkur það ekki ?Joyful.  

  Nú er hann átta vikna   ..kátur, fjörugur og algjör töffari Tounge.  Ég fæ hann til mín eftir átta daga. Og þarf ég að taka það fram að ég sef varla á nóttinni fyrir tillhlökkun!  

Búin að kaupa búr og nú þarf að kaupa matardalla, bæli fyrir hann að sofa í, leikföng og sitthvað fleira. 

Bæ í bili , Ester.

Sofandi systkinLúkas 8 vikna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Hann er svo sætur. Mikið óvenjulegur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 10.5.2007 kl. 22:37

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Lúkas er voða sætur og heillandi augnayndi.

ENNN ég er svo yfir mig spæld með júró.Það skiptir engu að Eiríkur var flottastur al-al besti söngvarinn.Um hvað snérist þessi keppni eiginlega

Knús á þig.

Solla Guðjóns, 11.5.2007 kl. 00:12

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Megakrútt!

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.5.2007 kl. 00:19

4 identicon

Hann er hrikalega krúttlegur!

Ragga (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 07:05

5 Smámynd: bara Maja...

Yndisfallegur !!!

bara Maja..., 11.5.2007 kl. 10:06

6 identicon

Hann er alger dúlla:)

Ég fékk símtal áðan frá konu sem byrjaði á því að kynna sig og spurði mig svo hvort hún mætti merkja mig sem jákvæða gagnvart sjálfstæðisflokknum.

Ég lifnaði öll við og sagði af fullum krafti "NEI" þú mátt merkja mig sem mjög neikvæða gagnvart sjálfstæðisflokknum. Þá spurði hún mig hvort mér fyndist núverandi stjórn ekki hafa gert eitthvað gott og ég sagði ja... svo sem en það er bara mun þyngra á hinni skálinni. Hún spurði mig hvort ég héldi virkilega að einhverjir aðrir gætu gert betur og hvort þessi kosningaloforð hinna yrðu ekki bara svikin? Ég var fljót að vitna í sjónvarspþátt þar sem fulltrúi sjálfstæðismanna var kaffærður nokkrum sinnum vegna svika þeirra við landsbyggðina þar sagði hann ásamt því að viðurkenna svikin að þeir hefðu ákveðið að fresta því að fylgja þessu loforði eftir í tvígang. þá sagði ég að ég teldi að þá væru hlutirnir fullreyndir og tími til kominn að leyfa öðrum að spreyta sig. Ekki víst að allir geri eins og þessi stjórn0

Svipað og að vinna hjá fyrirtæki sem svíkur mann um launin í tvígang en gefa ekki nýrri vinnu séns því líklega geri þetta allir aðrir.

Konan reyndi sem hún gat að týna til hluti eins og "þeir eru komnir með svo góðan grunn því að rífa niður tré sem hefur verið lengi að vaxa? Ertu búin að gleyma hvernig þetta var fyrir 12 árum?" Svo skaut hún þetta sjálf niður með því að segja "það tekur auðvitað langan tíma að byggja upp, svo því að stoppa núna?" Þá gat ég sagt henni þrátt fyrir ungan aldur minn að ég myndi það að stjórnin sem endaði fyrir 12 árum fékk aðeins 4 ár til að setjast í stólana og hefði auðvitað þurft mun lengri tíma.

Ég er á því að ný stjórn gæti vel sinnt okkar málum og gert það vel ef hún fengi aðeins svigrúm til þess og þá er ég að tala um fleiri ár en fjögur. Þá fór konan að tala um aukinn kaupmátt og ég stundi bara... þá sagði hún þessi fínu orð "já áherslurnar eru auðvitað misjafnar" Þar hitti hún naglan á höfuðið0 Ég vil ekki stjórn sem vill lækka áfengiskaupa aldurinn!! Og setja vín í matvörubúðirnar á sama tíma!! Hver er hin eiginlega forvarnarstefna? Að foreldrar sitji með börnum sínum í tvo tíma á dag? Hvaða fyrirmynd er í þessu? og bíddu hvað með Árna? tæknimistök hans? Ég vil ekki stjórn sem hraðsiglir í enn frekari stéttaskiptingu!! Stóriðju - stóriðju - stóriðju og skemma náttúru okkar sem er framtíðin... Ég vil að efnishyggjan víki fyrir fjölskyldunni og að ríkistjórnin keppi eftir gæðum í þeim flokki.......sinni gamla fólkinu okkar vel og börnum okkar enn betur... og þar með gaus ég og endaði ræðu mína á því að segja

"jæja þú heyrir líklega að ég er algerlega vinstrisinnuð og mátt merkja mig neikvæða í ykkar garð0"

4 ástæður til að kjósa að skipta um ríkisstjórn



Lýðræði?

2 menn settu Íslendinga á lista þjóða sem studdu stríðið í Írak. 35 komu í

veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun.

Fjársterkir aðilar hafa eytt milljónatugum til að hlutast til um

ákvarðanatöku sveitarfélaga í Hafnarfirði, Reyðarfirði og víðar.

Samfélag fyrir alla?
Einkavæðing heilbrigðisþjónustunnar er komin á dagskrá og unnið er að sölu
Landsvirkjunar, og þar með orkuauðlinda þjóðarinnar.
1. nóvember á þessu ári taka gildi lög þar sem einkaeignaréttur á vatni er
festur í sessi og vatn gert að markaðsvöru.

Græn framtíð?
Álver verða reist við Húsavík og í Helguvík og virkjanir í Þjórsá og
Skjálfandafljóti.
Losun gróðurhúsalofttegunda hefur aukist hraðar hér en í nokkru öðru landi
í Evrópu.

Kvenfrelsi?

Kynbundinn launamunur er 16% og hefur ekki minnkað um eitt einasta prósent.

23 af 63 þingmönnum eru konur, 4 af 12 ráðherrum.

Díana (IP-tala skráð) 12.5.2007 kl. 00:45

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hann er algjört krútt

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2007 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband