Óska eftir tillögum á nafni!!

Þá er það komið á hreint!  Ég verð hamingjusamur hvolpaeigandi 24 mai. InLove.  Brýt nú heilann í sameindir  og reyni að finna nafn á krúttið.  Ég óska hér með eftir nafna-hugmyndum,  frumlegum sem ófrumlegum.  Og koma svo kæru bloggvinir, allt sem ykkur dettur í hug!

  Hvolpurinn minn er lengst til hægri  í körfunni og er strákur.  Á myndinni til hægri er pabbi hvolpsins, svona til að gefa ykkur hugmynd um hvernig hvolpurinn gæti mögulega litið út þegar hann stækkar Heart

og hvolparnir Hermann

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krúttmundur Djóns skal hann heita Ester mín (segi sonna).  Var að blogga um fjallið Gletting.  Finnst það flott nafn á litlu dúllunni.  Töff nafn ha? Til hamingju með vóffa

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.4.2007 kl. 11:17

2 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Æji hvað þeir eru krúttlegir og sætir. Þetta er fín nafnatillaga hjá Jennýju. Glettingur væri flott nafn, pínu öðruvísi samt en það er allt í lagi. Mér finnst líka Tryggur alltaf flott nafn á hundi - kannski bara af því að frænka mín átti einu sinni hund sem hét það.

Björg K. Sigurðardóttir, 9.4.2007 kl. 11:25

3 Smámynd: Ester Júlía

Frábær hugmynd elsku Jenný!  Sérðu mig ekki  í anda að kalla á hundinn... : Krúttmundur Djóns, Krúttmundur Djóns..hvar ertu kallinnn minn ... Eða var það Glettingi... ? Takk fyrir innleggið

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 11:26

4 Smámynd: Ester Júlía

Björg:  Tryggur er alltaf flott nafn á hundi..en mér finnst það eitthvernveginn hæfa betur íslenskum fjárhund , veit ekki afhverju . Kannski af því að allir íslensku hundarnir í sveitinni í gamla daga hétu annað hvort Tryggur eða Snati.  

Thank you

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 11:28

5 Smámynd: Gissur Pálsson

Kátur. Pabbinn lítur allavega þannig út

Gissur Pálsson, 9.4.2007 kl. 12:32

6 Smámynd: Ester Júlía

Kátur er nafn sem myndi passa vel við kátan hund já.  Papillon hundarnir eru einmitt kátir og lífsglaðir.  Takk fyrir þetta Gissur  

Vil fleiri tillögur að velja úr ...koma svo..

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 13:10

7 Smámynd: bara Maja...

Cruzo....(hann er bara Krútt - Krúsidúlla - Crúsidulla - Cruzo...) eða Coby...allavegana til hamingju með hann !!!

bara Maja..., 9.4.2007 kl. 13:54

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Snati er flott nafn ... á hestum. Kátur er náttúrlega snilld! Kátur Krúttmundur, kallaður Krútti á sunnudögum. 

Guðríður Haraldsdóttir, 9.4.2007 kl. 15:53

9 Smámynd: Ester Júlía

Cruzo er flott ... ætti kannski að kalla hann Tom Cruz ? Kátur Krúttmundur er  bara tær snilld......

 Fleiri tillögur??  Dælið í mig hugmyndum ....

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 16:08

10 Smámynd: Kolla

Elsku Ester, þakka þér kærlega fyrir fallegu orðin þín. Og innilega til hamingju með litla krúttið.

Mér datt eitt nafn í hug þar sem þetta er fiðrildahundur, hvað með butterfly.

Knús og klem 

Kolla, 9.4.2007 kl. 16:13

11 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Cujo --- snilldarnafn á hund

Halldór Sigurðsson, 9.4.2007 kl. 17:25

12 Smámynd: Ester Júlía

Kolla : það var ekkert dúllan mín, vona að þér líði þokkalega . Butterfly er stórsniðugt nafn á þennan hund en vandinn er að það eru ansi margir hundar af þessari tegund sem heita þessu nafni.  Verður maður ekki að velja nafn sem enginn ( eða fáir) hundar heita? .   Halldór:  geggjuð hugmynd!  Cujo eins og hundurinn í bókinni eftir Stephen King!  Frábær bók og snilldarnafn!  Tek þetta til umhugsunar...takk

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 17:55

13 identicon

Zorro....vaskur...bóbó.....

stúlkukind (IP-tala skráð) 9.4.2007 kl. 18:47

14 identicon

Peppi

Guðborg (IP-tala skráð) 9.4.2007 kl. 19:10

15 identicon

Tumi er náttúrulega bara krúttað :)
Heikir er svo alltaf flott ;) Svo mikil reisn yfir því ;)

kv. barbara.

barbara (IP-tala skráð) 9.4.2007 kl. 19:39

16 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta er nú bara hnoðri.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 9.4.2007 kl. 19:42

17 Smámynd: Ester Júlía

Hm..það gengur eitthvað illa að fá alla hér í húsi að verða sammála um nafnið..dæs...Oliver kom sterklega til greina, en komst svo að þeirri niðurstöðu að það er of líkt "Olli".  Ég er mjög hrifin af Gutta-nafninu en Helga finnst það ekki flott.  Nú er verið að gæla við nafnið : Leo ..sem við virðumst nokkuð sammála um, þjált og gott nafn..og dáldið sætt

Ester Júlía, 9.4.2007 kl. 23:31

18 identicon

Pjakkur fær mitt atkvæði

Þóra (IP-tala skráð) 9.4.2007 kl. 23:50

19 Smámynd: Ester Júlía

Pjakkur er sætt nafn..ætla að nefna það við hinn helminginn...

Muhahaha... DÚI er FULLKOMIÐ!  Afhverju var mér ekki búið að detta þetta nafn í hug 

Ester Júlía, 10.4.2007 kl. 00:01

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Pap.  Dúi er flott.Castró er flottara.Svo gæti hann heitið Snúlli Snoppufríði Ollason

Solla Guðjóns, 10.4.2007 kl. 03:06

21 Smámynd: Margrét M

til hamingju með hvutta .. við vorum að fá okkur voða sætan dverg snauzer skoðaðu nöfn,    http://nemendur.khi.is/krismoll/Hundan%F6fn.htm  

Margrét M, 10.4.2007 kl. 10:11

22 Smámynd: Ester Júlía

TAKK fyrir allar tillögurnar!! Ég er komin með fullt af hugmyndum að vinna úr!!  Til hamingju Margrét með nýja hvutta.. .  

Ég er heitust fyrir Óliver ( þó það sé líkt Ollanafninu), Jökull, Leo og Ástrík.

Ester Júlía, 10.4.2007 kl. 10:37

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ester viltu droppa Oliversnafninu.  Barnabarnið mitt heitir OLIVER for craying out loud!!!

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.4.2007 kl. 12:49

24 identicon

Til lukku með að vera hundaeigandi.

Mér finnt Pjakkur rosalega flott við fiðrildahund.

Eða Polli,Bobby,Amor,

Það er svon mín hugmynd....

Kv lena 

Lena (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 07:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband