Heimsókn til Papillonræktanda

 Olli vinsæll Fórum austur á Hvolsvöll í dag í yndislegu veðri.  Þvílík falleg fjallsýnin í glaða sólskini.   Við vorum sem sagt að fara til að skoða hunda og hvolpa.  Papillon.  Og urðum hreint ekki fyrir vonbrigðum!  Langar ykkur .. Fullt af hundum , þvílíkt fallegum og skemmtilegum. Ég er fallegur Þetta eru yndislegir hundar, svo kátir, lífsglaðir og vinalegir.  Og rosalega fallegir. InLove.

Þeir voru með stórt gerði þar sem þeir gátu hlaupið og leikið sér og það gerðu þeir svo sannarlega.

  Ég varð strax ástfangin.  Skemmtilegt að sjá karaktereinkennin, einn var stærstur og hrikalegur töffari, ein var ofvirk og á FULLRI ferð, önnur var algjör prinsessa sem nennti ekki þessum látum, vildi bara láta klappa sér og kjassa - fá athygli.   

Svo fengum við að sjá hvolpana og mömmu þeirra.  Hvolparnir voru hreint yndislegir.  Steinsváfu enda bara þriggja vikna kríli.  Tvær stelpur og einn strákur.  Ég varð skotin í stráknum InLove.  Skil ekki þetta með mig og karlkynið, ég er eina kvenkynsveran á móti fjórum ( með kettinum) karlkyns á mínu heimili.  LoL

Mamma hvolpana er sko algjört rassgat, mjög lítil og nett, blíð og góð.  Hún er svört og hvít en pabbinn er meira brúnn.  Pabbinn býr í Reykjavík og ætlum við að heimsækja hann við tækifæri, verðum auðvitað að fá að sjá hann líka Wink.  Þetta var virkilega skemmtileg ferð, kíktum svo  til tengdó í Hveragerði á leiðinni heim og fengum kaffi og norska lappa..Pínulítil

 

.slurp!!   

og hvolparnir

Nei..ég er fallegri..

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolla

Þetta eru nú meiri krúttin, enda skil ég vel að þú hafir orðið hrifin af þeim. Svona lítið fallegt dýr getur gefið manni alveg ótrúlega mikið.

Kolla, 5.4.2007 kl. 23:32

2 Smámynd: bara Maja...

Jæks hvað þeir eru sætir... ég er meiri kattakona, en þessir gætu nú alveg snúið mér

bara Maja..., 6.4.2007 kl. 00:17

3 Smámynd: Ester Júlía

Kolbrún mín, þú þekkir hvað þessi litlu dýr geta gefið manni mikið.   María, ég er líka mikil kattarkona, en ekki síðri hundakona...veistu, þessi litlu krútt myndu algjörlega kveikja í þér

Ester Júlía, 6.4.2007 kl. 00:37

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ofsaleg krútt eru þetta, eins gott að mín sjái ekki þessar myndir, fórstu bara til að sjá hundana eða var svona verslunar skoðunarferð?

Sigfús Sigurþórsson., 6.4.2007 kl. 01:24

5 Smámynd: Ólafur fannberg

voffvoff

Ólafur fannberg, 6.4.2007 kl. 01:50

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Æ hvað þeir eru sætir.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 6.4.2007 kl. 10:53

7 Smámynd: Ester Júlía

Sigfús: Ég fór bara til að skoða en er alveg ákveðin í að fá mér hvolp.  Þeir eru svo litlir eins og er, bara þriggja vikna, en ef af þessu verður þá fæ ég hann líklegast um 25 mai. ( Ræktendurnir velja nefnilega líka væntanlega eigendur)

Ester Júlía, 6.4.2007 kl. 12:22

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ofsa dúllulegir hundar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 20:20

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Þvílík dásemd þessi kríli

Solla Guðjóns, 8.4.2007 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband