Laugardagur, 21. júlí 2007
Ætli pabbi sé búin að lesa Harry potter?
Ég er mikill bókaormur. Les flest allt NEMA ævintýrabækur.. sem er svolítið öfugsnúið, því ég er mikil ævinýrakona
. Las hins vegar ævintýrabækur á unglingsárunum, ALLT sem ég komst í.
Bækurnar um Harry Potter eru vel markaðsettar bækur og allt verður vitlaust þegar að kemur út ný bók. Sem vekur auðvitað forvitni mína. Það hlýtur að vera eitthvað varið í þessar bækur?! Fyrir nokkru gerði ég tilraun til að byrja á fyrstu bókinni en gafst upp eftir nokkrar blaðsíður. Mér fannst hún bara ekki skemmtileg.
Pabbi minn er mikill lestrarhestur. Les allt sem vekur forvitni hans. Ætli hann sé búin að lesa Harry Potter? Þarf að spyrja hann.
![]() |
Harry Potter allur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)