Mánudagur, 25. september 2006
Geitungarnir eru í Árbæ
Ég fór í apótekið í Árbæ áðan. þar sem ég stend við búðarborðið, þá kemur fljúgandi þessi líka stóri geitungur inn um opnar dyrnar, tekur strikið fram hjá mér og flýgur bakvið hjá afgreiðslufólkinu. Önnur afgreiðsludaman hryllir sig og setur upp skelfingasvip sem mér fannst ekki skrýtið miða við stærð kvikindisins. Ég bjó í Hraunbæ í tvo ár fyrir nokkrum árum og ég veit að geitungarnir lifa góðu lífi í Árbænum. Á sumrin brást ekki að kæmu inn um gluggann 10-15 stykki á dag, sérstaklega síðari hluta sumars eða í byrjun hausts þegar að aðeins var byrjað að kólna úti.
Ég bý í Grafarvoginum í dag og ég hef ekki séð einn einasta geitung þar sem ég bý þessi tvö og hálfa ár sem ég hef búið þar. Skýringin á þessu held ég að hljóti að vera annarsvegar gróðraleysið í mínu hverfi og hinsvegar sá mikli gróður sem er í Árbæ. Ég bjó einu sinni í miðbæ Reykjavíkur og þar er líka ótrúlega mikið af geitungum enda gamallt hverfi og mikið af gömlum háum trjám og gróðri.
Ég er mjög fegin þessu geitungaleysi, var stundum að fara á límingunum á göngutúrum mínum um árbæjarhverfið þegar að geitungarnir svifu í kringum mig og barnið mitt sem þá var bara nokkurra mánaða gamalt. Nú þarf ég bara að berjast við kóngulær í garðinum en sætti mig vel við það.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 25. september 2006
Frí áskrift af Mogganum.
Fyrir nokkrum vikum var hringt í mig frá MBL eða einhver á þeirra vegum og mér boðin áskrift af Mogganum frítt í einn mánuð. Þar sem blöðin hrannast upp hjá mér ..(Fréttablaðið, Blaðið, ásamt hrúgu af auglýsingapósti) og ég kemst yfirleitt ekki yfir að lesa þau, þá afþakkaði ég pent. Þá var mér boðið að fá blaðið um helgar í fjórar vikur. Ég hugsaði mig aðeins um og ákvað svo að þiggja það. Fínt að fá nóg að lesa um helgar.
Fyrstu helgina kom blaðið reyndar ekki, en ég hef fengið það síðustu þrjár helgar. Ágætis tilbreyting, mér hefur alltaf þótt gaman af að lesa Moggan. Í gær var svo hringt í mig aftur frá MBL og mér boðin áframhaldandi áskrift í mánuð á 50% gjaldi. Ég er að drukkna í blöðum svo ég afþakkaði það. Á samt eftir að sakna Moggans um helgar, góður með morgunkaffinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)