Fimmtudagur, 29. júní 2006
"FLUGSLYSIÐ MIKLA" - nú gerist það!
Ég er að fara til Spánar eftir nokkra daga. Við fjölskyldan. Ég er flughrædd með eindæmum og býst alltaf við að hvert flug verði mitt síðasta. NÚNA gerist það, FLUGSLYSIÐ MIKLA! Ég er samt að reyna að hugsa ekkert um flugið, óþarfi að magna upp hræðsluna. Eða hvað? Ég hef líka áhyggjur af ýmsu öðru sem getur valdið ótímabærum dauða fjölskyldunnar. Las frétt um daginn um móskítóflugur sem bera í sér banvæna veiru..þessar móskítóflugur eru á Indlandi..ég sé vel fyrir mér að nokkrar hafi slæðst með moskítóflugunum á Spáni og við fjölskyldan séum í bráðri lífshættu.
Eins með fjarstýrðar eldflaugar bandaríkjamanna og Kóreu...eða var það ekki annars Kóreu..(?) ..þeim verður skotið upp á leið minni til spánar og lenda í árekstri við flugvélina MÍNA.
Og ekki orð um það meir;)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)