Laugardagur, 10. júní 2006
Siglt um sundin blá..
Áður en ég byrja þessa bloggfærslu, langar mig að taka það fram að myndin sem tengist færslunni er EKKI af mér :)). Laugardagur ..og ég vaknaði klukkan átta til að fara á æfingu. Haldið að það sé rugl :). En ég er orðin háð æfingunum svona eins og fólk verður háð því að hlaupa. Ég mætti nú samt ekki fyrr en hálfellefu niðrí World Class..var svo værukær eitthvað. Tók Brjóst og þríhöfða í dag ásamt 150 kviðæfingum. Tek alltaf kviðæfingar eftir hverja æfingu og reyni að hafa þær fjölbreyttar.
Þegar ég var í bekkpressunni að hvíla og var að fara að byrja á fjórða og síðasta settinu , þá var ég kölluð upp í kallkerfinu. Ég rölti mér fram í afgreiðslu og haldið ekki að hún Sara mín kæra vinkona hafi staðið þar með fangið fullt af nammi! Hún er nýkomin frá London og keypti handa mér nammi í fríhöfninni þessi elska. Þetta verður að sjálfsögðu laugardagsnammið..ég er nefnilega algjör nammifíkill og verð að reyna að hemja mig og halda mig við laugardagana. Ætla ekki að sleppa nammideginum, frekar að rugla aðeins líkaman ( sem fær sjokk þegar að óhollustan kemur eins og skrattinn úr sauðaleggnum, og setur þá vonandi brennsluna alveg á fullt :). Ég held ég eigi inni einn sukkdag í viku, þar sem ég er rosalega dugleg í hollu mataræði, sex daga vikunnar.
Dagurinn í dag var mjög góður. Við Olli litli skruppum niður í bæ, fórum í kolaportið, svo röltum við um á hafnarbakkanum, fórum og skoðuðum varðskip, það var gaman að fá að kíkja inn í það , fórum meira að segja niður í vélarsalinn.
Síðan ákvað ég að kíkja einn rúnt með Sæbjörgunni, skipi slysavarnarfélagsins. Keypti vöffu og appelsín um borð fyrir Olla og svo stóðum við uppi á þilfari á meðan Sæbjörgin sigldi um sundin blá. Það var rosalega gaman og Olli skemmti sér ekkert smá vel.
Fórum upp í brúnna og Olli horfði út um gluggann hjá stýrimanninum og allt í einu segir hann " vá við erum alveg að koma til spánar" ! .....hahahahahahaha..ég sprakk úr hlátri og sá að fleiri áttu bágt með sig.
Ætla Esjuna á morgun ef veður leyfir, annars verður brunað niður í Laugar :).
Heilsurækt | Breytt 11.6.2006 kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)