Færsluflokkur: Dægurmál
Mánudagur, 14. júní 2010
Eitt vandræðalegasta "sturtu"móment mitt í Laugum!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. september 2009
Minning um fallega góða vinkonu sem lést 25.ágúst '09.
Soffía Margrét Jónsdóttir.
Þegar ég gekk með mitt fyrsta barn, fyrir 22. árum, þá var ég lögð inn á meðgöngudeild Landspítalans sökum þess hvað meðgangan gekk illa. Mér hundleiddist þetta tvítugri stelpunni en í rúmi við hliðina á mínu var stelpa þremur árum yngri en ég og eftir nokkrar augngotur okkar á milli þá fórum við að tala saman. Það er ekki orðum aukið en þessi stelpa bjargaði sálarheill minni á meðan ég lá á spítalanum. Hún var svo hlý og skemmtileg með smitandi hlátur og ótrúlega þroskuð miða við aldur. Við fífluðumst og stálumst fram á gangana og alla leið i sjoppuna sem var í öðru húsi. Báðar rétt með klósettleyfi! Hlógum mikið og höfðum gaman. Úr varð hinn skemmtilegasti tími á spítala sem hefði af öðrum kosti átt að vera hundleiðinlegur.
Við héldum sambandi eftir að við útskrifumst og svo eignuðumst við börnin okkar með 11 daga millibili (hún á undan), hún stelpu og ég strák. Það var gaman að eiga vinkonu sem átti barn á sama aldri og mitt barn og við héldum miklu sambandi eftir að við eignuðumst börnin.
Eitthverra hluta vegna flosnaði svo upp úr sambandi okkar þegar börnin okkar voru um það bil 3. ára. En lífið hélt áfram en alltaf öðru hvoru hugsaði ég til þessarar vinkonu minnar. Lífið er óútskýranlegt og 15 árum seinna var ég mætt í mæðraskoðun á Heilsuverndarstöðina , þá gekk ég með mitt þriðja barn. Ég sat í biðstofunni og beið eftir að kæmi að mér þegar ég allt í einu rek augun í þessa gömlu vinkonu mína þar sem hún sat rétt hjá mér - kasólétt eins og ég!
Það urðu miklir fagnaðarfundir og við hlógum mikið af þessari furðulegu tilviljun. Ck. þrjár vikur eru á milli drengjanna okkar og nú var það ég sem varð á undan. Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið og kíktum á hvor aðra í kaffi, fórum í göngutúra saman með börnin og héldum símasambandi fyrstu mánuðina. En því miður skildu leiðir okkar aftur , það var eins og örlögin ætlaði okkur bara þennan tíma saman.
Síðan við hittumst á meðgöngudeildinni eru liðin sjö ár og ég hitti Soffíu þegar ég heimsótti hana á Líknardeild Lanspítalans fyrir tveimur vikum síðan þar sem hún barðist við illkynja krabbamein. Það var yndislegt að hitta hana og við áttum stutta en góða stund saman. Spjölluðum um börnin okkar og fleira. Yndi að hlusta hana tala um börnin sín. Hún var svo stolt af þeim. Þetta var í síðasta sinn sem ég hitti Soffíu. Kynntumst á spítala og kvöddumst á spítala.
Ég bið góðan guð um að styrkja og blessa börnin hennar Soffíu og alla hennar ástvini á þessum erfiðu tímum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Lúkas minn er í áttunda sæti á listanum.
Þetta eru tíu greindustu hundarnir samkvæmt rannsókninni :
Border Collie
Poodle
German Shepherd
Golden Retriever
Doberman Pinscher
Shetland Sheepdog
Labrador Retriever
Papillon ( - Lúkas )
Rottweiler
Australian Cattle Dog
Og þetta er listinn yfir 10. "minnst" gáfuðustu hundarnir :
Least intelligent breeds
Afghan Hound
Basenji
Bulldog
Chow Chow
Borzoi
Bloodhound
Pekinese
Beagle
Mastiff
Basset Hound
Jafn greindir og 2 ára börn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 21. júlí 2009
Myndir frá helginni 17-20 Júlí '09.
Kíkið á nýjasta (efsta) albúmið. Og endilega stækkið myndirnar eins og hægt er - sérstaklega landslagsmyndirnar :).
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 12. júlí 2009
Hér eru nokkrar nýjar myndir fyrir fjölskyldu og vini í útlöndum :-)
Vorum að taka garðinn í gegn, setja þökur og færa til hellur. Er ótrúlega ánægð með garðinn eftir breytingu!
Olli og Óliver besti vinur hans í brekkunni fyrir ofan húsið okkar.
Olli í fótbolta
Stákarnir mínir í garðinum okkar.
Fór og heimsótti Óttu í hagann. Hér er hún að rölta á móti mér, orðin vel feit þessi elska :).
Elísa og Árni komu við hjá okkur á leiðinni í matarboð til Þurý systir Elísu. Hyske og Erling (frændi Helga) eru í heimsókn á Íslandi og eru hjá Elísu og Árna núna. Hyske býr til skartgripi úr steinum og er mjög hrifin af íslensku steinunum. Ég fékk mjög fallegt steinahálsmen að gjöf frá Hyske.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 12. maí 2009
Ég veit lausnina!
Forðast bað í 35 ár í von um að eignast þá son | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 22. febrúar 2009
4.sætið í Vetrarleikum Fáks
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. febrúar 2009
Svaðilför í Heiðmörk fyrir mörgum árum.
Hestar ríða í fylkingu á ísnum þegar að ísinn brestur skyndilega undan þeim og enginn fær neitt við ráðið og hestar og menn steypast niður í jökulkalt vatnið. Verður uppi fótur og fit, menn vita ekki hvað á þá stendur veðrið og halda fast i tauminn, þora ekki að sleppa. Fólk á tjarnarbakkanum horfir á sem steinrunnið. En einn var það sem áttaði sig fljótt, hann lætur frá sér myndavél , fer úr úlpu og hendir sér útí ískalda vökina. Þar stendur hann í ströngu með að koma hestunum upp úr og gefa fyrirskipanir, lætur hestana spyrna sér upp úr vatninu með því að nota lærið á sér sem spyrnu. Fjölnir Þorgeirsson heitir maðurinn og vann hann þrekvirki að mínu viti þennan dag í tjörninni í fimbulkulda. Við svona aðstæður sannast úr hverju menn eru gerðir.
Ég minnist þess þegar ég sjálf lenti undir ís á hesti fyrir mörgum árum síðan. Vorum við nokkrir krakkakjánar - um það bil sextán ára í útreiðartúr í Heiðmörkinni. Þetta var í apríl í góðu veðri en þó var nokkuð kalt og þunnur ís yfir vötnum og ám. Allt í einu dettur einum af okkur í hug að sundríða yfir mjóu ánna sem þarna liggur, nú er ég ekki viss á nafninu á ánni , líklega Hólmsá eða Suðurá en það er þó ekki aðalatriðið. Þunn ísslikja var á ánni en okkur fannst það ekkert tiltökumál. Sundríða skildum við.
Við völdum stað þar sem auðvelt var fyrir hestana að fara útí en þegar til kastanna kom þá þorði enginn að fara fyrstur. Þannig að "hetjan" ég ákvað að fara fyrst og hvatti hestinn sem óð útí ánna. Eftir það gerðist allt mjög hratt, allt í einu varð áin botnslaus, hesturinn hvarf undan mér ofan í vatnið og ég var allt í einu ein á báti , fann hvernig ég sogaðist niður og stígvélin mín urðu blýþung. Einhver hélt yfir mér verndarhendi því allt í einu var ég komin með hendina á spýtu sem stóð á bakkanum og vinkona mín náði taki á mér og dró mig upp úr. (Skil ekki enn í dag hvernig mér tókst að ná að bakkanum og ná taki á þessari spýtu, ég sem var útí miðri ánni.) Rennandi blaut og skjálfandi leit ég út í ánna og sá í hófana á hestinum mínum og svo hvarf hann í iðuna en allt í einu var hann kominn með hausinn upp úr og tókst að koma sér upp sömu leið og hann fór útí.
Þetta var lífsreynsla sem ég hefði gjarnan vilja vera án. Hvorki mér né hestinum varð meint af volkinu en þetta hefði svo sannarlega getað farið ver, mun ver.
En mikið er ég fegin að hestum og mönnum varð ekki meint af á Reykjavíkurtjörn í gær.
Einn í einu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 5.2.2009 kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 10. desember 2008
Ótta mín komin í hús og á skaflana ;)- nokkrar myndir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 14. nóvember 2008
Það sem poppar upp í hausinn á manni stundum.
Þetta er bræðingur en læt það flakka ...
Margur er sár, já margan ég þekki
Sem misst hafa bílinn, húsið og allt
Ísland er gjaldþrota , bundið í hlekki
skuldin er milljónir þúsundfalt.
Hvað er að gerast,hvar endar þetta
Hver svarar spurningum okkur í vil
auðnmenn og ríkið almenning pretta
Fari þeir allir fjandans til.
Estro
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)