Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Föstudagur, 4. ágúst 2006
Aldrei aftur Hiroshima!
Í dag er 61 ár síðan bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á Hiroshima. Í fyrradag rakst ég á "Lifandi vísindi" í vinnunni, og fór að blaða í því. Í þessu blaði var grein um kjarnorkusprengjuna sem varpað var á Hiroshima, og viðtal við Japanskan lækni sem lifði þessa hörmung af. Ég las greinina upp til agna og var miður mín eftir lesturinn. Ég hef séð myndir af sprengjunni og ég hef heyrt ýmislegt um þessa kjarnorkusprengju en ég hef aldrei heyrt eða lesið neitt frá fyrstu hendi um Hiroshima.
Það sem aumingja fólkið þurfti að upplifa! Þessi japanski læknir lýsti því mjög vel. Það var á fallegum degi um áttaleytið að morgni til að sprengjunni var varpað á borgina. Allt varð grátt. Japanski læknirinn hljóp út í garð heima hjá sér og áttaði sig svo allt í einu á því sér til undrunar að hann var allsnakinn. Einnig sá hann unga konu með lítið barn og þau voru bæði allsnakin. Sprengjan hafði brætt fötin utan af þeim. Fötin brunnu inn í hold fólks. Allstaðar var brunnið fólk, fólk án andlits, lík út um allt. Hiroshima var jöfnuð við jörðu þennan dag. Tveimur dögum síðar fór að rigna. Þetta var engin venjuleg rigning, heldur svört rigning ..rammgeisluð! Rigningin brenndi hold þeirra sem hún snerti og eyðilagði frumur í líkama fólks svo margir fengu krabbamein af þessum völdum. Það tók á að lesa þetta, og sé ég nú að ég hafði lítla hugmynd um hvað virkilega gerðist í Hiroshima þennan dag.
Eina nótt
með ilmskúf í dökku hári
og hlátra iðandi holds
lýstur því niður
sem eldingu á hemuð augu:
Við munum grafa ykkur.
Og spyrjandi ratsjáraugum
er horft út í hrímfallið
þangað sem elding Þórs
kveikir kalda loga
og himinn brennur við Hiroshima,
gnýr þruma
við gáttir goða og manna:
Við munum grafa ykkur.
Matthias Jóhannessen.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.8.2006 kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)