Þriðjudagur, 28. nóvember 2006
Ég er 40 ára í dag og ..
óska því eftir hamingjuóskum.."kvitt kvitt" ..=o). Vó hvað mér finnst skrýtið að vera komin á fimmtugsaldurinn! Mér fannst ekki nærri svona furðulegt að komast á fertugsaldurinn . Og henni mömmu finnst þetta stórfurðulegt líka og þá aðalega afþví að það eru fjörutíu ár síðan og hún kom mér í heiminn. Mamma er reyndar þrælung, bara 18 árum eldri en ég.
En mál málanna í dag er sími sem maðurinn minn gaf mér í fyrradag. Voða flottur Samsung sími. Eftir sólarhringshleðslu var símakortið sett í hann og þá kom í ljós fullt af myndum af einhverju fólki, vídeó og minnislistar i dagbókinni. Þetta eru íslenskir krakkar, það heyrist í vídeóinu.
Mér finnst til háborinnar skammar að vinnubrögðin séu ekki vandaðri en þetta hjá Símanum, og algjört virðingaleysi gagnvart kúnnanum. Mistök eða ekki mistök.
Ég er að vinna til kl. 18 í dag , svo það er lítill tími í afmælisveislu, held því bara upp á það um helgina. Ég er í raun búin að halda upp á afmælið, ferðin til Barcelona var afmælisferð .
Eigið frábæran dag í dag - það ætla ég að eiga
Athugasemdir
Kvitt Kvitt og Til Hamingju! Barcelona er frábær borg. Ekki slæm afmælisveisla það.
Villi Asgeirsson, 28.11.2006 kl. 08:59
Til hamingju.
Sigrún Sæmundsdóttir, 28.11.2006 kl. 09:16
Til hamingju með afmælið sæta spæta..........þú lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 25 :o)
Luv...........Lilja
Lilja (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 09:52
Til hamingju með afmælið! Kv, Daisy Bell
Daisy Bell (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 10:08
Innilega til hamingju með daginn , ég er líka að fara að halda stórveislu á laugardaginn næsta, ég verð nefnilega 30 ára þann 6. des og við tvíbba systurnar ætlum að vera með veilsu, við skemmtum okkur bara allar vel um helgina :o)
kveðja GORRA
GORRA (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 11:37
Til hamingju Ester mín. Þú ert bara stelpa.
Skömm með simann. 'I Dagblaðinu í dag las ég um konu erlendis sem fékk nýjan síma en hann var fullur af klámmyndum!
Jórunn Sigurbergsdóttir , 28.11.2006 kl. 12:08
Til hamingju Ester, lífið er rétt að byrja!!!
Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 28.11.2006 kl. 12:59
hjartanlega til lukku.
Birna M, 28.11.2006 kl. 14:53
Innilega til hamingju með dginn sæta.
Tobba (barnalandsfélagi)
Þórhildur (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 16:29
Geimveran óskar jarðarbúanum til hamingju með afmælið Nú geturðu farið að segja forthy something hehehe
Ólafur fannberg, 30.11.2006 kl. 16:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.