Sunnudagur, 21. október 2007
Sveppaþema á veitingastað í Róm og myndir komnar.
Fyrsta daginn okkar í Róm þá var ég í sambandi við Kalla bróðir minn og Önnu mágkonu sem voru af einskærri tilviljun stödd í Róm í nokkra daga. Við ákváðum að hittast og fara og fá okkur að borða saman um kvöldið.
Íbúð Kalla og Önnu með stóru svölunum :Íbúðin sem þau voru með á leigu var yndisleg, pínulítil að vísu en ofboðslega ítölsk að öllu leyti. Eldgömul húsgögn, litlar styttur ( hálgerð líkneski) gamlar myndir og krossar á veggjum. Hjónarúmið var útskorið og eins svefnherbergið eins og lítil kapella..svo var íbúðin á sjöttu hæð með risastórum svölum sem lágu í U í kringum íbúðina og voru mikið stærri en íbúðin sjálf. Útsýnið af svölunum var stórfenglegt!
Veitingastaðurinn.
Við drifum okkur svo á labbið að leita að veitingastað sem Anna og Kalli höfðu fengið vitneskju um í e-h bók sem þau höfðu meðferðis. Þræddum litlar götur og komum loks að veitingastaðnum sem var troðfullur af ítölum ( ekki túristum). Í ljós kom að einu sinni í mánuði var þemakvöld hjá veitingastaðnum og akkúrat þetta kvöld var eitt slíkt í gangi. Þemað voru sveppir . Ákváðum að fá borð og pöntuðum þema dagsins sem samanstóð af fjórréttuðum matseðli á 25 evrur á mann, sem þykir nú ekki dýrt í Róm. Anna talar góða ítölsku og gat því tjáð sig á máli heimamanna og fyrir vikið fengum við persónulegri og betri þjónustu.
Mér láðist að taka myndir af þessum stórkostlegu réttum sem við fengum, en á þó mynd af eftirréttardisknum tómum ;).
Já maturinn var stórkostlegur. Sveppir, sveppir og allskyns fylltir sveppir, matreiddir á hina ýmsu vegu, og jafnvel ein tegundin smakkaðist eins og besta kjöt!
Við áttum öll mjög erfitt með að koma niður þriðja réttinum þar sem að maginn var orðinn troðfullur. En þó rann ísinn og heita súkkulaðisósan ljúft niður í restina.
Þetta var góð byrjun á annars skemmtilegri ferð til Rómar, yndislegur sérstakur matur á stað sem var staður heimamanna ekki túrista. Þetta var mikil upplifun og vorum við öll sammála um það. Sjáið málverkið á veggnum , það er gert úr púsli - ekkert smá flott!
Á leið í bæinn fyrsta daginn
Pantheon
Colosseum
Helgi í hliðargötu við Pantheon
Ég við bakhlið Pantheon
Helgi fyrir framan hótelið okkar
Ég við vatnsbrunn í hótelgarðinum
Helgi við fallegu ánna Tiber.
Stórfenglegt! Tekið á leiðinni í Colosseum.
Með bleiku regnhlífina (regnhlíf nm. 1)á Pantheontorgi
Má ég kynna: Ítalskt vatn
Rústirnar fyrir framan húsið sem Anna og Kalli bróðir voru með íbúð á leigu. Hér voru kettir með athvarf og var gaman að sjá alla kettina innan um rústirnar. Það er greinilega hugsað um þá því þeir voru gæfir og vel haldnir. Ilmurinn úr "garðinum" var þó ekki mjög góður.
Hér var hægt að fara í "tour" kl. 16:30 frá mánudegi til föstudags.
Létum okkur nægja að horfa á rústirnar og fylgdumst með köttunum í smá tíma.
Og svo eru miklu fleiri myndir í albúminu , endilega kíkið á þær : http://estro.blog.is/album/Romeioktober2007
Kalli bróðir : TIL HAMINGJU MEÐ 35 ÁRA AFMÆLIÐ SEM ER Í DAG
Eigið frábæran dag gott fólk
Athugasemdir
Algjörlega æðislegar myndir, dúlla. Takk fyrir þær. Og til hamingju með Kalla bróður!
Kossar og knús frá Akureyri!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 23:18
Takk fyrir æðislega skemmtilega ferð um Róm. Gaman að þessum myndum. Og þær eru svo flottar. Til lukku með bróður þinn ljúfust.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.10.2007 kl. 12:43
Vá hvað þið eruð glæsileg hjón og fallegar byggingar þarna sem þið skreytið svo vel hjónin
Til lukku með bróðir.
Langar svo í sveppi.......
Solla Guðjóns, 22.10.2007 kl. 15:53
Ohh þetta hlítur að hafa verið æði ! Takk fyrir að leyfa okkur að skoða flottu myndirnar !
Knús til þín sæta
Melanie Rose (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 15:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.