Laugardagur, 18. ágúst 2007
Shokk skokk og latabæjarhlaup.
Yndislegt veður og mikill mannfjöldi sem tók þátt í Maraþoninu í dag. Ég hljóp 3 km. með Skokk-Shokk hópnum okkar í World Class , krakkarnir stóðu sig allir frábærlega.
Eitt fannst mér skrýtið og það var að þegar ég kom í gegnum marklínuna hleypur strax að mér maður og rétti mér bók! Áður en ég gat sagt nokkuð - var hann farinn en hann brosti til mín og vinkaði. Hann var greinilega að vinna eitthvað við hlaupið þar sem hann stóð við marklínuna þar sem hlaupararnir koma. Þessi bók heitir "Fréttaljósmyndir ársins 2006" og er þetta vegleg og flott bók.
Ég er virkilega þakklát en gaman væri að vita afhverju ég öðlaðist hana
..kannski var bara verið að gefa hlaupurum af handahófi bók.. án þess að ég viti það
.
Við Olli tókum svo þátt í Latabæjarhlaupinu klukkan 15:30. Það var frábær stemning og ótrúlega margir sem tóku þátt.
Svona daga í miðborginni elska ég. Þar sem miðbærinn er undirlagður af fólki og stemningu. Allir ánægðir og glaðir. Við pöntum því miður ekki veðrið en reykvíkingar hafa verið sérstaklega heppnir í ár, dásamlegt veður helgi eftir helgi. Gay-Pride um síðustu helgi og svo nú á menningarnótt, ekki síðra veður.
Við skruppum svo aðeins í World Class eftir Latabæjarhlaupið, þar var skemmtun fyrir starfsfólkið, maka og börn. Hoppukastali, leikir og frábærar veitingar.
Er að spá í hvort ég nenni aftur í bæinn, alveg spurning um að skreppa í smástund til að upplifa stemningu kvöldsins og horfa á flugeldasýninguna. Sé til .
![]() |
Ljúf stemmning í miðbæ Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ætli hann hafi ekki verið smá skotin í þér
Gunnar Helgi Eysteinsson, 18.8.2007 kl. 21:59
Ég viðurkenni að ég hljóp ekkert í dag, en ég var á þönum samt
Hefði örugglega gefið þér bók líka hefði ég verið í sporum mannsins ... knús knús að norðan! 
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.8.2007 kl. 02:26
Mikið ert þú alltaf dugleg Ester mín. Fallegar mynidir. Já við vorum heppin með veður í gær.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.8.2007 kl. 17:22
Flotta gella
já þetta gekk allt mjög vel,ég mætti í bæinn um 19/30......en sá bara fólk og flugeldasýninguna....útaf dottlu
Solla Guðjóns, 20.8.2007 kl. 14:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.