Sunnudagur, 3. júní 2007
Hryllilegt að vita af svona fólki undir stýri!
Það eru margir óábyrgir ökumenn í umferðinni. Það geta því miður allir lent í því að vera í sunnudagsbíltúr með fjölskyldunni og átt sér einskins ills von og mætt einum slíkum. Og bíltúrinn sem átti að vera svo notarlegur með fjölskyldunni endar svo upp á slysadeild.
Ég hef einu sinni verið tekin fyrir of hraðan akstur. Það var á Nýbýlaveginum árið 1988. Þá var ég tekin á 70 km. hraða þar sem var 50 km. hámarkshraði. Er ekkert stolt af því en það hefði getað verið verra. Ég er nú samt að ekki að segja að ég sé einhver engill í umferðinni , síður en svo. Ég hef átt mína spretti, sérstaklega þegar ég var yngri. Elskaði að keyra hratt á tímabili og ögra sjálfri mér. Ég þakka guði fyrir að ekki hlaust slys af.
Ég er hætt þessu núna. Tel mig ábyrgan ökumann í dag. Gott að við búum við ágætis löggæslu, ég er alltaf glöð að heyra þegar að lögreglan nær svona mönnum og tekur þá úr umferð. En því miður getur maður aldrei verið öruggur.
Stöðvaður ökuréttindalaus og undir áhrifum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já þetta hefur tíðkast árum saman að fólk undir áhrifum eituflyfa hefur verið á ferðinni í bílum. Hættulegt.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 3.6.2007 kl. 11:12
Gangandi tímasprengjur og enginn veit hver lendir í þeim.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.6.2007 kl. 11:50
Já, þetta er ótrúlegt. Manni er kennt að vera ábyrgur í umferðinni, og það er maður ... en svo verður maður að vera vakandi fyrir þeim óábyrgu þar sem þeim skýtur snögglega upp og geta breytt lífi einhverra um framtíð með glæfralegum akstri. Ég var t.d. í dag að heimsækja ömmu og var á hjólinu. Ég er að fara þegar ég heyri skrans og læti og þá eru þar ungir herramenn á bíl og beygja með stæl þannig að hjólför eru í götunni (sjálfur veit ég ekki hvernig er hægt að skransa og beygja svona ... ) ... en það hefði ekki þurft nema lítinn krakka eða einhvern aðeins smá utanviðsig til að geta lent í slysi við þessa fávita.
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 19:19
Já sko ég er búin að blogga í kommentabox hjá einni í dag og já ég á mörg orð og ljót um þessi málefni og læt það duga
Solla Guðjóns, 4.6.2007 kl. 20:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.