Fimmtudagur, 17. maí 2007
Þvílíkur dásemdardagur..
Bráðum get ég farið að lifa "eðlilegu" lífi aftur. Ég trúi því varla að síðasta prófið sé á laugardaginn! Þetta er búin að vera strembinn vetur en þegar ég lít til baka þá hefur hann verið fljótur að líða.
Ég veit ekki hvernig mér kemur til með að ganga í prófinu nk. laugardag, þetta verður eflaust soldið erfitt próf. Lífeðlisfræðileg þjálfræði ásamt fleiru svona góðgæti. Aflfræð, prógrammagerð -styrktar og þolæfingar..plýómetrískar æfingar.. og fl. ..nammi namm.
Eftir prófið ætla krakkarnir að halda upp á próflokin með því að fara í klifur. Síðan verður farið í baðstofuna í Laugum og þar á eftir heim til einnar úr skólanum. Það verður náð í mat frá Austur-Indíafélaginu og svo verður bara haft gaman og klukkan hálfeitt á að fara á NASA.
En ég ætla að vera félagsskítur því eftir prófið á laugardaginn þá er ég farin á Hvolsvöll að ná í LÚKAS. Það verða mín verðlaun.
Ætla að koma við á Stokkseyri og fara á "Við fjöruborðið" og fá mér humar. Er það ekki stórkostleg hugmynd
Verð að láta þetta fljóta með að lokum. Olli spurði mig í gær: "Mamma, er til Skotland? - Já elskan, það er til. - En er til byssuland? - Nei sagði ég og hló - Það er ekki til.
- Víst, sagði litli karlinn þá " það er til byssuland ef það er til Skotland!" og þar hafið þið það
Athugasemdir
Algjörlega rökrétt hjá Olla. Krútt! Mér finnast þín verðlaun mun eftirsóknarverðari en hin. En ég er orðin svo undarleg með árunum. Smútsj.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.5.2007 kl. 22:47
Mmm...humar ! Ohh æði að þið eruð loksins að fá Lúkas til ykkar !! Það eru góð verðlaun fyrir síðasta prófið
Hahaha....góð spurning hjá Olla ! Sneddi gaur. Hver veit....kannski er til byssuland...kannski ætti að breyta nafninu á Ameríku í Byssuland híhí...
Knús
Melanie Rose (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 23:01
humar nammi namm
Ólafur fannberg, 17.5.2007 kl. 23:29
Gangi þér súper vel á laugardagin, alltaf gaman að lesa bloggið þitt.
Iris (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 10:21
Olli frábær. Gangi þér vel í prófunum og gangi þér vel með Lúkas.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 18.5.2007 kl. 13:39
Frábær hann Olli - auðvitað meikar þetta sens ! ekki spurning, skarpur strákur
bara Maja..., 18.5.2007 kl. 14:08
Börn eru frábær og við eigum að hlusta miklu meira á þau. En mér lýst vel á humarsúpuna Ester mín. Og til hamingju með prófin og Lúkas og allt saman.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.5.2007 kl. 20:27
Litli snúllinn veit hvað han syngur..gullkornasnáðiMæli hiklaust með fjöruborðinu..mamm.Nú ertu líklega búin í prófinu..til hamingju með það.
Trúi að það verði mikil gleði að fá Lúkas heim.
Knús á duglega stelpu.
Solla Guðjóns, 19.5.2007 kl. 13:26
Ég geri ráð fyrir að þú sért búin í prófum og óska þér þess vegna innilega til hamingju með það. Kærar kveðjur að norðan!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 14:45
Bíddu...á ekkert að fara að blogga um hann Lúkas ! Kom hann ekki heim núna um helgina...ég er svo forvitin híhí...
Knús
Melanie Rose (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 19:21
Takk kærlega fyrir hamingjuóskirnar kæru bloggvinir! Þórdís..Lúkas er nýji fjölskyldumeðlimurinn..meira um hann í nýjasta blogginu
Ester Júlía, 21.5.2007 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.