Miðvikudagur, 18. apríl 2007
Hvað þrífið þið baðherbergið oft?
Fjórir tippalingar hér á bæ með ketttinum sem reyndar notar baðherbergið minnst.
Ekki veitir af að þrífa baðherbergið oft í viku, en ég er ekki að segja að það sé tippalingunum
að kenna. Margir vilja meina ( aðalega konur) að karlmenn pissi oft útfyrir, sé voðalega erfitt að hitta ekki í skálina.
Ég er ALLTAF að flýta mér, þvæ reglulega á mér hárið, hár út um allt ( með sítt hár) og skipti iðulega um föt á baðherberginu en "hef ekki tíma til að ganga frá fötunum" og því Þarf að ganga frá fötum reglulega.
Og svo eru það snyrtivörurnar sem oftast rata ekki aftur upp í skáp eftir notkun og hárvörurnar sem eru á baðkarinu .. er með shampó og hárnæringasyndrome sem lýsir sér í MIKLUM kaupum á hárvörum og þessu þarf að ganga frá reglulega í skápa.
Ég hef ekki getað komið mér upp þeim vana að nota tissjú eða þvottapoka til að þvo mér um andlitið, ( þrífa af mér meikið ) og nota því handklæði til þess í stórum stíl. Mikil þrif á handklæðum á þessum bæ og oftar en ekki "gleymist" að setja þau strax í órhreina tauið.
Tippalingarnir eru duglegir að hitta í klósettskálina.
Var að lesa umræðu á ónefndum vef um baðherbergishreingerningar og þess vegna er bloggið mitt í dag um baðherbergishreingerningar. Margar konur á vefnum sem um ræðir voru hissa á því að sumar konur "og menn " þrífa baðherbergið 4-5 sinnum í viku. Hvað finnst ykkur?
Ps. HVAÐ ER AÐ BLOGGINU Í DAG ??
Athugasemdir
Fyrir utan tippalingana 4.þá hélt ég að þú værir að lýsa mínu baðherbergi.Og líg þar engu og við erum 2.pjöllur á móti einum típpó sem er sjaldan heima,Báðar með sítt hár snyrtidót og snirtipinnar,,,Ójá En ég er með þá áráttu að þrífa alltaf klóið sjálft á kvöldin og heimilisfólkinu er uppá lagt að strjúka yfir klóið ef sét á því eftir notkun
Solla Guðjóns, 18.4.2007 kl. 12:11
Ólafur fannberg, 18.4.2007 kl. 12:13
Sniðug árátta Ollasak.
Ég ætla að taka hana upp..svo lítið mál að gera þetta..
Ester Júlía, 18.4.2007 kl. 12:21
Ég er nú ekki sú aktívasta þegar kemur að þrifum en það sem mér þykir afskaplega þægilegt er að vera með WC blautþurrkur frá Cif eða Ajax eða einhverju slíku inn í skáp á baðherberginu og þá er svo fljótlegt að grípa til þeirra þegar manni ofbýður útgangurinn á blessuðu klósettinu.
Jóna Á. Gísladóttir, 18.4.2007 kl. 18:19
Á nógu erfitt með klósettþrif vegna klígjugirni, og vill helst ekki lesa um þau. Það er búin að vera bilun í allan dag.
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2007 kl. 18:29
Held að verið sé að breyta kommentakerfinu. Þegar óskráðir lesendur kommenta sést nú IP-talan þeirra. Svona breytingar ætti að gera á meðan bloggarar sofa ... sofa þeir kannski aldrei?
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.4.2007 kl. 19:52
Ég reyni að þrífa það 1 í viku ef mér tekst það *hóst* Erum bara 3 dömur hér...engir tippalingar Og það er svo lítið að það er varla hægt að hafa drasl þar. Þá er það ekki nema nokkur föt á gólfinu í hornin og mar er enga stund að taka það upp og láta í þvottakörfuna við HLIÐINÁ !! Og svo bara hár útum allt eftir mig
Melanie Rose (IP-tala skráð) 18.4.2007 kl. 21:28
Gat ekki kvitað áðan, reyni nú. Þríf baðherbergið einu sinni í viku og svo efir þörfum.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 18.4.2007 kl. 22:59
Einu sinni í viku, eftir að ég henti karlinum út! Alltaf skínandi hreint
Heiða Þórðar, 19.4.2007 kl. 02:36
Við erum þrjár á móti einum... og veistu hvað, það er hann sem þrífur baðherbergið, af því að hann er bestur í því !!! og baðherbergið er alltaf spikk and span
bara Maja..., 19.4.2007 kl. 11:25
Gleðilegt sumar dúlla.
Solla Guðjóns, 19.4.2007 kl. 15:29
Híhí. Málingardótið mitt er út um alt og fötin mín á gólfinu. Karlinn er svo lítið heima að ég bara tek varla eftir dótinu hans þarna inni :). En hann hittir allavegana altaf í klósettið.
Gleðilegt sumar :9)
Kolla, 19.4.2007 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.