Miðvikudagur, 4. apríl 2007
Hvað á að gera um páskana?
- Á ekki að fara eitthvað? urrr....Hver einasta manneskja sem ég hitti spyr mig að þessu.
Ég sem hef aldrei nokkurn tímann farið eitt eða neitt um páskana. Mér líður alveg eins og ég EIGI að fara eitthvað um páskana - finnst ég vera að svíkjast um ef ég fer ekki eitthvað. Ég umla og segi : " neei held ekki, jú ætla að fara á Hvolsvöll að skoða hvolpa". - já og á að gista þar?? Ég: ..uh..nei, ég þekki þetta fólk ekki neitt ,skrepp bara í bíltúr þangað, en kem örugglega við hjá tengdó i Hveragerði á leiðinni heim". - " já svoleiðis" segir svo fólk áhugalaust þannig að ég bæti við : En ég fæ nú kannski bústaðinn lánaðann hjá pabba og mömmu eins og yfir eina nótt. Þá glaðnar yfir fólki aftur, það brosir og segir: - sniðugt .
Til dæmis á mánudaginn var. Þá ætlaði ég að fá að skoða íbúð. Hringdi í manneskjuna en nei hún er farin út úr bænum og kemur ekki heim fyrr en annan í páskum. Sagði að allir sem hún þekkti væru farnir úr bænum svo ekki hefði verið hægt að finna neinn til að sýna íbúðina. Svo ég get víst ekki skoðað íbúðina fyrr en eftir helgina.
Ég spyr: hvaða fólk er þetta sem er að fara úr bænum um páskanna? Ég þekki engan sem er að fara úr bænum þá. Þekki ég ekki rétta fólkið ? Mér finnst yndislegt að vera í nokkura daga fríi frá vinnu og skóla og geta þess vegna gert ekki neitt...það er alveg hægt að láta sig hlakka til þess.
Athugasemdir
Já það er búið að bjóða mér í sumarbústað en mig langar helst að vera heima og dingla mér,elda góðan mat og svoll
Solla Guðjóns, 4.4.2007 kl. 16:06
Ég fer ekki neitt um páska ef ég fæ einhverju um það ráðið. Þetta er einhver fjöldahysteria sem fer í gang. Skemmtilegast að fara eitthvað á EKKI ferðahelgum allrar þjóðarinnar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2007 kl. 23:28
Já á ferðahelgum á maður að vera heima . Góða skemmtun Guðjón minn, sé þig alveg fyrir mér sitjandi á eldhúskolli, þú hallar þér dreyminn á svip að veggnum og horfir á innréttinguna með stolti karlmannsins.
Ester Júlía, 4.4.2007 kl. 23:42
Er líka alltaf heima um páska, verslunarmannhelgar og svolieiðis.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.4.2007 kl. 00:30
vinna....
Ólafur fannberg, 5.4.2007 kl. 02:19
Hlakka til að vera bara ! vera heima, vera afslöppuð, vera að borða súkkulaði alla páskana !!!
bara Maja..., 5.4.2007 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.