Mánudagur, 11. júní 2007
Sumir geta bara ekki flogið...
...sama hvað þeir reyna! Ég hef sjálf reynt þetta .. en mér tókst aldrei að fá bílinn til að fljúga. *hóst* stundum veit ég ekki hvort blaðamenn mbl. eru að reyna að vera fyndnir, tvíræðir eða einfaldlega allt of oft klaufalegt orðalag?
![]() |
Ökumaður á ofsahraða reyndi að ná flugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 11. júní 2007
Útskrift og veisla...
Jæja gott fólk! Nóg búið að vera að gera, er hálfslöpp að blogga en kannski verður maður bara svona á þessum árstíma. Útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari sl. laugardag.
Útskriftin var haldin með viðhöfn í Íþróttaakademíunni Keflavík, snittur og herlegheit. Þetta var ægilega gaman og mikil stemning.
Ég var ekki með neitt útskriftarboð (enda búin að halda upp á próflokin) en fékk þrjá blómvendi og svakalega fallegan módelhring frá foreldrum mínum. Svo á víst ein gjöf eftir að koma.
Á laugardagskvöldinu var okkur svo boðið í grillútskriftarveislu til Kalla og Önnu mágkonu. Anna var nefnilega að útskrifast sem tölvunarfræðingur úr HR. Í yndislegu veðri í garðinum stóðu Kalli og Jón Pétur ( danskennari og nágranni) og grilluðu á þremur grillum.
Þvílíkur dásemdarmatur..grillaðar nautalundir, kjúklingabringur, svínasteik, fylltir tómatar, grillaðar kartöflur, æðislegt salat..ofl. ofl. Ég vildi vera eiturhress á sunnudeginum svo við drifum okkur heima rúmlega tólf á miðnætti.
"Vaknaði líka hálfátta á sunnudagsmorgninum og fór í göngutúr með hundinn "
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)