Föstudagur, 2. mars 2007
Ferðasagan og myndir
Rosalega var þægilegt að ferðast með Saga Class! Hengt upp af manni, dinnertónlist í farþegarýminu áður en vélin tók á loft, fordrykkur þegar maður settist, öll íslensku dagblöðin, betri matur, gat valið um tvo rétti, hverja öðrum betri. Þrírréttuð máltíð.
Ferðin gekk rosalega vel, reyndar var seinkun á ferðatöskunum, við vorum 10 manns sem fengum ekki töskurnar. Eftir smá stapp fengum við að vita að út af "ófærð þá gengi illa að koma töskunum frá borði. En ég er að meina það þegar ég segi "það var nánast auð jörðin!! "
En taskan kom að lokum og þá fór ég að ná í lestina til Óðinsvé. Mjög þægilegur ferðamáti en hálfleiðinlegur, var að mygla úr leiðindum, sá eftir að hafa ekki tekið með mér góða spennusögu.
Komst í klukkutíma í búðir í óðinsvé, skaust í H&M, keypti geggjaðar Spiderman kvartgallabuxur á Olla litla, spidermanbol og töff skyrtu. Eitt pils handa mér.
Ofsalega er ég hrifin af þessum bæjum út á landi. Gömul hlýleg húsin og litlu múrsteinsgöturnar
Gisti á notarlegu hlýlegu hóteli í Óðinsvé og svo kom Kim að ná í mig klukkan níu næsta morgun.
Var á fundi í fimm tíma í Óðinsvé með níu manns sem vinna sem leiðbeinendur í Shokk á hinum ýmsu líkamsræktarstöðvum í Danmörku. Fróðlegur og skemmtilegur fundur.
Strax á eftir fór ég með Monu til Horsens. Cirka einn og hálfur tími í bíl. Mona var með æðislegan hvolp með sér sem hún var nýbúin að fá , tegundin heitir Lhasa apso. Hann var níu vikna og eins og tvistur viðkomu, þvílíkt krútt!! Ég dýramanneskjan varð auðvitaðalveg veik
.
Ekki var Horsens síðri bær en Óðinsvé. Ofsalega vinalegur staður.
Ég fór strax með Monu á stöðina sem hún vinnur á - Equinox, sú stöð er í eigu World Class. Þetta var virkilega fín stöð, mikið pláss og frábært Spa.
Æðisleg innilaug sem var 33-34 gráðu heit.
Ég skoðaði Shokk-stöðina hjá þeim, mjög fín og alls ekki ólik eins og er hjá okkur í World Class.
Fékk fullt af upplýsingum hjá Monu og skrifaði heilmikið niður.
Gisti á fínasta hóteli þessa nótt ( var kosið fallegasta hús í Horsens e-htímann) og daginn eftir kom Kim að ná í mig klukkan níu. Við fórum í Equinox og héldum fund, eða námskeið fyrir mig.
Síðan keyrði Kim mig á aðalgötuna í miðbænum og þar rölti ég um í klukkutíma og labbaði svo á lestarstöðina. Rúmlega þriggja tíma ferð til Kastrup þar sem ég átti bókað flug heim um kvöldið.
Fór í röð, þar sem örugglega hundrað manns biðu, var búin að bíða þar í 25 mín. þegar mamma hringdi og spurði hvort röðin á Saga Class væri ekki miklu styttri. " Ha, nei" sagði ég , " það er sama röðin". - Nei , sagði mamma , það getur ekki verið! Í því heyrði ég í íslendingum í röðinni og spurði þá hvort Saga Class röðin væri ekki á þessum sama stað. "Nei" sögðu þeir og benti yfir í hinn endann á salnum, "Saga Class er þarna"! Hahaha..þar voru fjórar hræður í röð! Týpískt ég! .
Klukkutíma seinkun á vélinni en ferðin heim gekk eins og í sögu (enda á Saga Class). Ég er ánægð með ferðina, náði mér í haldgóðar upplýsingar sem við getum notað fyrir Shokk hjá World Class. En mikið er nú samt alltaf gott að koma heim .
__________________________________________
Og ein hrakfallasaga úr ferðinni að lokum :
Var nýlent að fara að ná i ferðatöskuna mína.
Er alltaf frekar rugluð á flugstöðvum ..
Er á leið niður rúllustiga en allt í einu fannst mér að ég sé að fara vitlausa leið, og
varð dauðhrædd um að ef ég færi niður þá kæmist ég ekki upp aftur að ná í töskuna.
Svo ég byrja að hlaupa UPP rúllustigann (sem var sem sagt á leiðinni niður), var í
háum stigvélum með hæl svo ferðin gekk frekar seint.
Þegar ég var komin mjög ofarlega - þar sem tröppurnar fara að jafnast út, þá missi ég jafnvægið, dett kylliflöt og rek hnéð heiftarlega í eina stáltröppuna...leit upp og sé að fólk er að fylgjast með mér ..mig langaði í alvöru að hverfa af yfirborði jarðar..........*roðn* En eftir á var þetta brjálæðislega fyndið.
Dægurmál | Breytt 3.3.2007 kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)