Laugardagur, 17. mars 2007
Umhyggjusamur rútubílstjóri ..
..eða þá hitt þó heldur! Það fauk verulega í mig þegar ég las þessa frétt. Gat þessi rútubílstjóri ekki hleypt drengnum út að pissa?? Okey hann þarf að halda áætlun en stoppaði hann ekki hvort sem er í Hveragerði, hefði nokkuð mál verið að hleypa drengnum þar út svo hann gæti hægt á sér? Drengir eiga oft erfitt með að halda i sér lengi, trúið mér, ég á þrjá stráka sjálf. Hvað átti aumingja drengurinn annað að gera en að pissa á rútugólfið, ja nema hleypa pissi í brók. 
Ég sárvorkenni aumingja drengnum , þetta var örþrifaráð hjá honum og eflaust þykir honum þetta skammarlegt með eindæmum. Svona lagað getur haft verulega skaðleg áhrif á barnssálina, bílstjórinn ætti að skammast sín!


![]() |
Pissaði á rútugólfið þegar bílstjórinn neitaði að stoppa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)