Núna er ég á sjötta degi á nýju mataræði. Það gengur ótrúlega vel þótt ég sé oft svöng inn á milli. Ég er að borða meira en helmingi minna en ég er vön að gera daglega. Og í dag er ég um 2 kg. léttari en ég var bara fyrir fimm dögum síðan. Þetta er mikið til vatn sem ég er að losa, ég er vön að vera með smá bjúg ( ættgengur ansk. og svo auðvitað mataræðið) en eftir fyrsta daginn í nýju mataræði var bjúgurinn svo til horfinn. Ég sé mikinn mun á mér strax, vöðvarnir að birtast einn af öðrum, vöðvar sem ég sá aldrei en voru þarna. 
Þetta er miklu minna mál en ég hélt. Málið er að TAKA ÁKVÖRÐUN og hafa eitthvað til að stefna að. Staðfestu er líka gott að hafa, vera ákveðinn í því sem maður ætlar sér að gera. Ég er staðföst svo ég er heppin. Bloggin mín hér eftir fram að keppni munu væntanlega snúast mikið ef ekki alfarið um æfingar, mataræði, keppnina, föt, hárgreiðslu, neglur, brúnkukrem, glimmer, æfingaföt, skó osfr. Það er að ótrúlega mörgu að huga. Og ekki er þetta ókeypis. Eins gott að ég haldi á bikar eftir þessi peningaútlát og eftir allt streðið.  Ég hef ekki breytt æfingaáætluninni minni mikið, en hef bætt brennslu við æfingarnar. Arnar mun svo taka þetta allt út á föstudaginn, hann sér þá hvort td. eitthvað mætti betur fara , ef ég er td. að missa of mikið af mér, td. farin að brenna vöðvum , þá breytir hann matarprógramminu + eða æfingaáætluninni. ÉG er ánægð með að hafa ákveðið þetta þó fyrirvarinn sé stuttur, þetta er rosastemning og rosagaman . |