Þriðjudagur, 28. nóvember 2006
Ég er 40 ára í dag og ..
óska því eftir hamingjuóskum.."kvitt kvitt" ..=o). Vó hvað mér finnst skrýtið að vera komin á fimmtugsaldurinn! Mér fannst ekki nærri svona furðulegt að komast á fertugsaldurinn . Og henni mömmu finnst þetta stórfurðulegt líka og þá aðalega afþví að það eru fjörutíu ár síðan og hún kom mér í heiminn. Mamma er reyndar þrælung, bara 18 árum eldri en ég.
En mál málanna í dag er sími sem maðurinn minn gaf mér í fyrradag. Voða flottur Samsung sími. Eftir sólarhringshleðslu var símakortið sett í hann og þá kom í ljós fullt af myndum af einhverju fólki, vídeó og minnislistar i dagbókinni. Þetta eru íslenskir krakkar, það heyrist í vídeóinu.
Mér finnst til háborinnar skammar að vinnubrögðin séu ekki vandaðri en þetta hjá Símanum, og algjört virðingaleysi gagnvart kúnnanum. Mistök eða ekki mistök.
Ég er að vinna til kl. 18 í dag , svo það er lítill tími í afmælisveislu, held því bara upp á það um helgina. Ég er í raun búin að halda upp á afmælið, ferðin til Barcelona var afmælisferð .
Eigið frábæran dag í dag - það ætla ég að eiga
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)