Kíktu á stjörnuspánna þína..hahaha...

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp
og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið.
Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi
eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur
sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað,
með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.
Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig,
nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum.
Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur
og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt
og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú
hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki,
en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar
en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan
í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur,
enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því
einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er
annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr
einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika
þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum,
alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn,
enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig
eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan
innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða
í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir
ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Þori varla að segja í hvaða merki ég er - þetta passar svo svakalega vel við mig ..híhí!  Jú okey..er bogmaður...Blush.  Einhverjir fleiri sem fundu sig þarna????? Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brilljant.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.6.2007 kl. 14:32

2 identicon

Ég er naut og mig langar að greina þessa stjörnuspá svona:

- "Þú ert latur og þrjóskur, ..." = ókei, ég er þrjóskur en latur ...? Ekki alltaf alla vega
- "enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu." = Hmm... lítið sannleikskorn.
- "Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um," = alls ekki!!
- "... enda háður nautnum, mat," = já og já ...
- "... sykri og skynörvandi efnum." = Ó mig auman ... já  í fyrra tilfelli en hvað er meint með 'skynörvandi efnum' ... er ekki alveg sáttur við það ...
- "Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda." = So wrong! (en ég ætla samt að liggja kyrr og horfa á vídeó í kvöld!)
- "Þú ert lítið betri en stífluð rotþró." = Damn, mig vantar gott comeback svar á þetta ... en er ósammála.

Góða helgi, dúlla!!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:22

3 Smámynd: Ester Júlía

Hahaha Doddi þú ert frábær! 

Ok .  Ætla að greina mína spá. Er Bogmaður.  : - Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr
einu í annað. = Já ég grauta í öllu og er á hlaupum úr einu í annað, þetta passar vel við mig en ég get EKKI verið sammála því að ég kunni ekkert .

-   Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika
þína.= Rétt þetta með takmörkin og ég er stundum agalaus, flý stundum óþægindi en er samt duglegri að takast á við þau.  En ég held ég VITI nú nokkurn veginn hvernig ég á að nota hæfileika mína, ég bara veit ekki alveg hvaða hæfileika ég hef .

- Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.= Þetta á OFT við mig
en sem betur fer ekki algilt.




Góða helgi nautnaseggur

Ester Júlía, 15.6.2007 kl. 19:55

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2007 kl. 20:22

5 Smámynd: Ester Júlía

  Ég var einmitt að lesa þetta áðan.  Pabbi er nefnilega meyja..hahaha..hann myndi hlægja sig máttlausan við þennan lestur .  Vonandi passar þetta ekki við þig Ásthildur mín frekar en hann

Ester Júlía, 15.6.2007 kl. 20:29

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég hef séð þessa spá áður og segji það sama og þá "ÞETTA ER EINFALDLEGA UM MIG"og meira tilOg ég gæti skilgreint mig undanteknungarlaust eins og þú enda Bogamaður

Solla Guðjóns, 15.6.2007 kl. 22:14

7 Smámynd: Ester Júlía

Híhí..við bogmenn erum nánast eins!  Ég las spánna upp fyrir kallinn minn í kvöld og hann var hálfvandræðalegur þegar hann sagði : ehem..Ester..þetta er UM þig!  

Ester Júlía, 15.6.2007 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband