Eru kennarar að meiða börn í dag?

Ég hitti stelpu í dag , stelpu sem er að komast á unglingsárin.  Hún sýndi mér stórt ljótt  mar á handleggnum á sér og sagði að kennarinn sinn hefði klipið sig.  Ég varð alveg steinhissa og spurði hvort hún hefði ekki kvartað í skólastjórann. - "jú" sagði hún , "ég gerði það en hann skammaði mig bara.  Reyndar var kennarinn búin að segja við mig að ef ég myndi kvarta í skólastjórann þá þyrfti ég alltaf að sitja eftir hjá henni"    - Ég var svo hissa að ég átti ekki til orð, ekki grunaði mig að svona lagað viðgengist enn í dag !  Mér finnst það jaðra við heimsku að beita ofbeldi í skólum. Ég sagði við stelpuna  að kennarar mættu ekki gera svona og hún sagðist vel vita það.    Ég veit ekki ástæðu þess að kennarinn kleip hana svo sá á henni en sama hver ástæðan var, ofbeldi  er aldrei réttlætanlegt.

angry-teacher


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gerða Kristjáns

fojjj þetta er ljótt

Gerða Kristjáns, 1.3.2007 kl. 22:52

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Ljótt að heyra En velkomin heim,þú hefur sloppið áður en allt varð vitlaust þarna í danaveldi

Solla Guðjóns, 2.3.2007 kl. 01:37

3 Smámynd: Ólafur fannberg

velkomin heim

Ólafur fannberg, 2.3.2007 kl. 08:20

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Velkomin heim Ester. Fáum við ferðasöguna?

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.3.2007 kl. 11:14

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já og auðvitað þetta var ljótt að heyra

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.3.2007 kl. 11:14

6 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Það er sko til ofbeldi í skólum, sonur minn kom einusinn heim með fingrafara marbletti um hálsinn eftir aðstoðar skólastjórann 'eg gerði auðvitað allt vitlaust en hann var ekki látinn fara en lét son minn í friði allavega. Ömurlegt að heyra þetta, vonandi fær stelpan aðstoð með að afgreiða þetta mál og verður ekki lögð í einelti af þessum kennara fyrir bragðið

Klem og knús og velkominn heim

Sigrún Friðriksdóttir, 3.3.2007 kl. 15:08

7 Smámynd: Ester Júlía

Takk innilega kæru bloggvinir!

Ester Júlía, 4.3.2007 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband