Yndislegar gamlar myndir

Mamma Mamma.                              Agnes langamma Agnes langamma

Bróðir hennar mömmu var að senda mér gamlar myndir sem hann var að skanna inn.   Yndisleg tilfinning sem fylgir því að skoða þessar gömlu myndir.   Margar myndir af langömmu minni í móðurætt, gamlar myndir af mömmu og ömmu, þarna var 20 ára gömul mynd af mér og bróður mínum og fleira.  Það er ljúfsárt að skoða þessar myndir, fylltist söknuði (  væntanlega fortíðarsöknuði - finn enga aðra skýringu :) .  Ég vistaði nokkrar af myndunum á bloggið, gaman að hafa góðan aðgang af þeim. 

Amma á HraunbrautinniAmma sama ár og ég fæddist.

Afi og Gréta frænka Afi og Gyða systir ömmu - bæði látin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gaman af þessu Ester mín. Ég var að skoða albúmið. Mikið var hún mamma þín falleg.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.2.2007 kl. 10:56

2 Smámynd: Ester Júlía

Og er ...hún er svakalega sæt kona og svo er hún bara svo góð ..takk fyrir það Jórunn mín

Ester Júlía, 12.2.2007 kl. 12:48

3 Smámynd: Ólafur fannberg

skemmtilegar myndir....er að pæla i að setja inn myndir úr fortiðinni þegar ég get látið skannann virka.....

Ólafur fannberg, 12.2.2007 kl. 13:48

4 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Já það getur verið ljúfsárt að minnast látina ættingja, sérstaklega þeirra sem manni þótti og þykir vænstum. Flottar myndir.

Knús

Sigrún Friðriksdóttir, 12.2.2007 kl. 15:20

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Kærleikurinn kemur fram í mörgum myndum eins og söknuði og ljúfum minningum.Gaman hlítur að hafa verið fyrir þig að fá þessar myndir.Mér finnst alltaf svo mikill sjarmi yfir þessum með hvíta munstraða kantinum.

Knús á þig.

Solla Guðjóns, 12.2.2007 kl. 20:38

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já, estre mín. 'Ég var einmitt viss um að hún væri það. knús.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.2.2007 kl. 21:17

7 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ætlaði að skrifa Ester. Er alltaf svo fljót á mér.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.2.2007 kl. 21:17

8 Smámynd: Ester Júlía

Ég var alveg sátt við Estre..finnst það reyndar soldið flott ..

Ester Júlía, 12.2.2007 kl. 21:55

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hæ Estre, já þetta er flott, myndirnar eru voða skemmtilegar. Ég varð sjúk þegar ég sá veggljósin, lampana og gluggatjöldin ... mmmmm! Er alveg vitlaus í svona hluti og á ágætt safn af þeim. 

Guðríður Haraldsdóttir, 12.2.2007 kl. 23:02

10 Smámynd: Ester Júlía

Já það var yndislegt að fá þessar myndir.  Gurrý. tók einmitt eftir því að ég var einu sinni með grænu síðu gardínurnar sem eru á einni myndinni, heima hjá mér á Rauðarárstígnum þegar ég bjó þar.  Fékk þær hjá ömmu, þær voru grænar , þykkar og síðar og hvað kallaði amma aftur efnið í þeim.... æ man það ekki, það var eitthvað voða flott

Ester Júlía, 12.2.2007 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband