Gamlárskvöld byrjaði ekki vel.

 Á gamlárskvöld buðum við  ömmu og móðursystur minni í mat.  Afi nýdáinn og Hafdís fjölskyldulaus þar sem börnin hennar eru bæði erlendis þessi áramótin og því ekki nokkur hemja að þær sætu tvær einar heima hja´ömmu, fyrst að pabbi og mamma voru í sumarbústaðnum.  Því miður byrjaði kvöldið ekki vel.  Ég var með matinn tilbúinn klukkan sjö og lít þá út um gluggann akkúrat á þeim tímapunkti þegar að amma dettur í hálkunni beint á andlitið. 

Ég hleyp út á inniskónum og sé Hafdísi stumra yfir ömmu sem situr á gangstéttinni hálfvönkuð.  Það er spungið fyrir á augabrúninni og blóð lekur niður kinnina á ömmu.  Við tókum undir sitthvoran handlegginn á henni og hjálpuðum henni að standa upp.  Vissum ekki hvort hún væri brotin og hún gat ekki sagt um það sjálf.  En hún gat staðið upp sem betur fer og við hjálpuðum henni upp tröppurnar. 

Þegar inn var komið, settist amma í sófann til að jafna sig og ég náði í hreinan þvottapoka og þreif blóðið úr andlitinu og setti svo plástur á sárið.  Amma var með skurð beint í augabrúninni, ck. 2 cm. langan.  Það hefði þurft að gera betur að þessu en amma harðneitaði að fara upp á slysó.  Hún hafði fengið högg undir rifbein og misst andan í smá stund þegar hún datt en hafði jafnað sig fljótt á því sem betur fer. 

Maturinn var góður, var með hamborgarhrygg frá Ali og einnig þennan danska sem var fluttur inn í fyrsta skipti þetta ár.   Báðir voru góðir þó mér hafi þótt Ali-hryggurinn betri.  Var svo með heimatilbúinn ís og súkkulaðifoundue og jarðaber.  Rosalega gott. Eftir matinn, var slakað á og svo horft á innlendan og erlendan annál.  Strákarnir vildu þó fara strax út í garð að skjóta upp rakettum og fengu þeir það , svaka gaman.

Amma var bara nokkuð hress, enda er amma ótrúlega hörð af sér og með duglegustu konum sem ég þekki.  Lætur ekki svona "smámuni" hafa áhrif á sig.  Held þetta hafi haft meiri áhrif á okkur hin heldur en hana.  Frown

Klukkan tólf var skotið upp sem aldrei fyrr .. þetta var mjög skemmtilegt kvöld þrátt fyrir óhappið fyrr um kvöldið, allir ánægðir og glaðir.

 Gleðilegt nýtt ár kæra fólk , takk fyrir gamla áriðSmileSmile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég var svo inní þessari færslu þinni að ég var næstum því viss um að þið munduð skjóta ömmuna með flugeldum... smá spaug  

Það var gott að það fór ekki ver... GLEÐILEGT NÝTT ÁR! 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.1.2007 kl. 12:02

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Æ Æ ekki var þetta gott að amma þín skyldi meiða sig svona. Vona að henni líði vel núna. Það er samt gott að kvöldið var svona ánægjulegt. Gleðilegt nýtt ár Ester mín. Þessi vísa er aldrei ofkveðin.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.1.2007 kl. 12:11

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=141200903S. Maturiinn hefur verið æðislega góður hjá þér. Ég bara fæ vatn í munninn við lesturinn.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.1.2007 kl. 12:12

4 Smámynd: Ester Júlía

Hahahaha... nei ekki fór það svo ...  

Ester Júlía, 2.1.2007 kl. 12:13

5 Smámynd: Ester Júlía

Þetta var svar til Gunnars ;) 

Ester Júlía, 2.1.2007 kl. 12:14

6 Smámynd: Ester Júlía

Jórunn.. já amma er miklu betri, eins og þetta hafi ekki gerst, reyndar kvartar sú gamla aldrei :). 

Ester Júlía, 2.1.2007 kl. 14:30

7 Smámynd: Ólafur fannberg

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Ólafur fannberg, 2.1.2007 kl. 14:43

8 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Gleðilegt nýtt ár Ester mín !!

Þeir segja að fall sé fara heill og við skulum bara vona að amma þín eigi dúndur ár í vændum !!!

Kær kveðja Sigrún.

Sigrún Friðriksdóttir, 2.1.2007 kl. 15:04

9 identicon

Gleðilegt ár og gangi þér vel og sjáumst í skólanum  kveðja Svava skólapæja!!

Svava (IP-tala skráð) 3.1.2007 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband