Hallgrímur alltaf góður

Hallgrímur HelgasonÞessa bók þarf ég að lesa.  Ein af fyndnari bókum sem ég hef lesið er 101 Reykjavík og vona ég að þessi sé ekki síður fyndin. Hallgrímur er með fyndnari mönnum þegar hann tekur sig til. Ekki veitir manni af smá hlátri á þessum tímum þegar hver fréttin slær annarri við í svartsýnisböli.  

 

Umfjöllun : "Ný skáldsaga Hallgríms Helgasonar, sem kemur út á þriðjudag, fjallar um leigumorðingja króatísku mafíunnar í New York, Toxic að nafni. Hann neyðist til að flýja Bandaríkin og fyrir röð tilviljana endar hann í flugvél á leið til Íslands. Við komuna til Keflavíkur lendir mafíósinn í fangi íslenskra trúboðshjóna sem halda að hann sé amerískur sjónvarpsprestur kominn til að predika á sjónvarpsstöð þeirra, Amen.

Fyrsti kafli bókarinnar, sem heitir 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, birtist í Lesbók Morgunblaðsins á morgun."

 Hljómar vel ekki satt ? Smile


mbl.is Hallgrímur Helgason skrifar um króatískan leigumorðingja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Jórunn Sigurbergsdóttir , 7.11.2008 kl. 17:43

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

10 ráð til að hætta að drepa fólk og verða prestur... þetta gæti orðið skemmtilegt. Það vanar einhverskonar Amazon síðu fyrir íslendinga erlendis.

Villi Asgeirsson, 8.11.2008 kl. 06:32

3 identicon

Hallgrímur Helgason er einn skemmtilegasti og fyndnasti maður Íslands ... sem höfundur skáka honum fáir.

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 16:10

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 10.11.2008 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband