Líkamsrækt og heilbrigði

Man ég þá tíð er ég var að æfa í líkamsræktarstöðum eins og Gym 80 og fleirum sem ég man ekki einu sinni nafnið á.  Þetta var fyrir um ..*hugs*..20 - 25 árum síðan ( VÁ) .  Ég var lítil og mjó písl, jú ég var svo sem með ágæta líkamsburði þar sem ég hafði æft íþróttir frá því ég var ellefu ára gömul en  samt sem áður var ég lítil og mjó písl miða við þá risavöxnu menn sem voru að æfa á þeim tíma. Stæltur Þegar ég hugsa til baka þá man ég ekki eftir neinni konuBodyfitness nema - Möggu massa , fyrir utan hana þá man ég aðalega eftir stórum og breiðum - hálslausum kraftlyftingamönnum  sem heyrðist hátt í þegar þeir lyftu níðþungri bekkpressunni eða tóku gífurlega þyngdir í réttstöðulyftu.   

Þvílík breyting sem hefur orðið á.  Í dag er öll mannsflóran í likamsrækt, frægir sem ófrægir, stórir sem litlir , ungir sem gamlir, meira að segja afinn og amman taka á því!    Flestir mæta í ræktina 3-5 sinnum i viku, sumir á hverjum degi og þó nokkrir tvisvar á dag. Frábært er að sjá hversu margir hafa gert heilsuræktina að lífstíl.  Sumir eru að stefna að eitthverju sérstöku takmarki, td. að keppa í Fitness, aðrir eru að keppa við sjálfan sig, setja sér takmörk um að ná ákveðnu markmiði.   Hvort tveggja er gott og gilt.  

 Styrktaræfingar styrkja bein, vöðva, bæta líkamsstöðu, eru vaxtamótandi.  Hollt og gott er að stunda  þessa íþrótt.   Persónulega finnst mér fallegri - tónaðir sterkir kvenlíkamanar þar sem vöðvar koma vel í ljós.  Þó má það ekki ganga út í öfgar.  Og sama gildir um karllíkama.   

út að hlaupa Ekki má svo gleyma þolæfingunum, sem styrkja hjarta og lungu.  Hver vill ekki betra þol, stærra hjarta og því mögulega lengri lífdaga.   Ganga og hlaup utandyra eru auðvitað það albesta, en þegar að veður er vont er gott að grípa til þeirra þoltækja sem líkamsræktarstöðin bíður upp á. 

Lifið heil Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

innlitskveðja

Ólafur fannberg, 18.3.2007 kl. 14:21

2 Smámynd: bara Maja...

Æji já ræktin er snilld í hvaða formi sem er, hef sjálf reynt að gera ræktina að lífstíl, ekki einhverju sem þarf að klára...

bara Maja..., 18.3.2007 kl. 16:06

3 identicon

flott grein hjá þér :) nú er ég eða hmm á að vera að lesa um hjartað og æðakerfið.. jájá ég er að gera það.. bara smá bloggpása híhí.. sé þig á morgun skvísa!!!

Svava (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 18:20

4 Smámynd: Ester Júlía

Takk Svava mín . Hei ..ég á sko líka að vera að lesa um hjarta og æðakerfið ..hehe.. það gengur hroðalega að halda sér að verki sko

Ester Júlía, 18.3.2007 kl. 19:05

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Hvar náðir þú í þessa mynd af mér???

Solla Guðjóns, 19.3.2007 kl. 08:55

6 Smámynd: Ester Júlía

Nú ég sló bara inn nafnið þitt á Google og þá kom þetta upp

Ester Júlía, 19.3.2007 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband