Vondar vatnsdeigsbollur

Ekki eru allar bollur góðar..dæs.   Ég borðaði eina í gær, hafði keypt tilbúnar vatnsdeigsbollur frá ónefndu fyrirtæki, en það átti eftir að setja á þær.  Ég bjó til bananarjóma og smurði innan í bollurnar og bætti sultu við.  Varð fyrir gífurlegum vonbrigðum með bollurnar, þær voru þurrar eins og sandpappir og gjörsamlega bragðlausar ( fyrir utan eðalrjómann minn og sultuna).  Kannski ég geri tilraun í dag og kem við í (öðru) bakaríi og kaupi mér eins og eina tilbúna bollu - bara til að smakkaTounge.

SimbiÞetta er Simbi, hann hefur ekki gott af bollu! Wink

Annars skil ég ekki hvað vatnsdeigsbollur eru vinsælar, ég er sjálf miklu meira fyrir hinar ...þær eru bragðmeiri og þéttari í sér.   

Ég held ekki uppi þeim sið  að flengja börnin á bolludag með vendi.  Þessi stærri ( 18ára) myndi í fyrsta lagi drepa mig ef ég birtist eins og skrattinn sjálfur inni hjá honum með bolluvönd á lofti, og ég held að sá litli ( að verða 5 ) myndi pissa í sig af hræðslu.      Ég skoðaði nú samt vendina í búðinni um helgina  og mér blöskraði nú eiginlega verðið -  299 kr fyrir prik með pappírsstrimlum á.  Kaupi frekar bollu fyrir þann pening, kannski fæ ég jafnvel tvær bollurKissing  

Bollur

Eigið frábæran bolludag!! Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

bolla bolla bolla

Ólafur fannberg, 19.2.2007 kl. 07:53

2 Smámynd: Ester Júlía

Varstu að flengja mig ?  ..

Ester Júlía, 19.2.2007 kl. 08:00

3 Smámynd: Ólafur fannberg

hehehehe...á ekki að gera það á svona degi?

Ólafur fannberg, 19.2.2007 kl. 08:02

4 Smámynd: Ester Júlía

'Eg hélt að ég slyppi

Ester Júlía, 19.2.2007 kl. 08:07

5 Smámynd: Ólafur fannberg

ó nei ekki svona vel.....rafræn flenging...

Ólafur fannberg, 19.2.2007 kl. 08:14

6 identicon

Iss fáðu þér bara 2 stykki  *hóst* ég borða fullt í gær og örugglega í dag líka..einhver þarf að klára þessar bollur sem ég fékk gefins í gær...þaggi annars  hehe... Ég fékk bolli boll á rassinn af minni 6 ára í morgun hehe....bara gaman  Hafðu það gott í dag á Bolludeginum

Melanie Rose (IP-tala skráð) 19.2.2007 kl. 09:16

7 Smámynd: Ester Júlía

:)) Ef að bollan er góð þá fæ ég mér alla vega tvær..segi ekki meir ..  Hafðu það gott sömuleiðis í dag .. æ dúllan hún dóttir þín, hefur haft gaman af að bolla mömmu sína

Ester Júlía, 19.2.2007 kl. 13:02

8 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Leiðinlegt að bollurnar voru ekki góðar. Já bolluvendir eru dýrir.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.2.2007 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband