Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Löggan á eðluveiðum..(híhí)

 Hvar annarsstaðar í heiminum myndi lögreglan koma að handsama eðlu nema á Íslandi?  Fyndin og krúttleg frétt en ekki eins krúttlegt að eðlugreyinu hafi svo verið fargað. 

Já ég veit, hún getur borið með sér ýmsa sjúkdóma og allt það en hún gæti þess vegna hafa verið sjúkdómalaus.  Annars var þetta ofboðslega falleg eðla, með þeim fallegri sem ég hef séð, litrík mjög og gerðarleg.

 Edla_Heidarbol_m2

 


mbl.is Eðla á ferð í Keflavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Doktor Dauði fundinn?

Ég las þessa frétt á Visi.is : 

 

"Segjast hafa fundið nasistaböðulinn Doktor Dauða

mynd

Starfsmenn Simon Wiesenthal stofnunarinnar segja að þeir hafi fundið Aribert Heim þekktan nasistaböðul frá tímum seinni heimstyjaldarinnar.

Heim sem þekktur var undir nafninu Doktor Dauði sé í felum ásamt dóttur sinni í smábænum Patagonia í Chile. Tveir menn frá stofnuninni eru nú á leið til bæjarins til að staðfesta þessar upplýsingar.

Heim var yfirmaður í Mauthausen útrýmingabúðunum í Austurríki þar sem hann framkvæmdi skurðaðgerðir og aflimanir án þess að deyfa eða svæfa viðkomandi. Einnig mun hann hafa pínt marga af föngunum í búðunum áður en hann myrti þá "

  ------------

Í framhaldi af lestrinum gúgglaði ég Aribert Heim (Dr. Dauða) og las ýmsar greinar og skoðaði myndir tengdum böðlinum. 
Og þvílík grimmdarverk sem þessi böðull framkvæmdi!  Aflimanir án deyfingar, opna fólk og taka úr því líffæri án deyfingar, skera af fólki höfuðleðrið án deyfingar osfr.  Skipti engu hvort um var að ræða lítil börn eða gamalmenni. 

Ég vona innilega að þessi mannskepna náist og hann fái sem harðastan dóm fyrir verk sín þótt sá dómur muni að sjálfsögðu aldrei fullnægja þeim grimmdarverkum sem hann er sekur um. 

 Dr. Dauði er 93 ára (jafnvel eldri) og hvort sem hann finnst eða ekki þá sleppur hann ekki við dóm frá þeim sem öllu ræður.  Og þess er varla langt að bíða.  


Hann var falleg kona (myndir)

Thomas Beatie, maðurinn sem gekk með barn er orðinn léttari. Hann fæddist kvenkyns og var falleg kona sem tók m.a þátt í fegurðarsamkeppni en honum leið aldrei vel í eigin líkama.  Tók m.a inn karlhormóna og lét fjarlægja brjóst sín.  Lét ekki fjarlægja kvenkynfærin því honum langaði alltaf til að eignast barn.  Hann er giftur, spurning hvort að konan hans hafi ekki getað gengið með barn eða hvort þetta hafi bara verið samkomulag hjá þeim. Cool Alla vega, þetta er spes, ekki á hverjum degi sem karlmaður eignast barn. 

ThomasBeatie1WENN_468x301 Thomas Beatie

 

 

 

 

 

 

470_pregnantman_1,0Thomas Beatie 

með konunni sinni, í sónar, hjá Ophru.  


mbl.is Karlmaður fæðir dóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband