Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

"Dæs" ..þetta fræga fólk!

Nudd, litameðferð og smáhestar fyrir nýfædd börn Grin.  Veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta.  Getur þetta verið hollt fyrir litlar manneskjur?  Kannski er þetta allt saman mjög eðlilegt í huga þeirra sem eiga sand af seðlum.  Hvað veit ég Whistling.

Sæt óléttJennifer og Anthony


mbl.is Dýrar barneignir hjá Lopez og Anthony
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningsamgöngur slæmar hér á landi

Hér er gjörónýtt stætókerfi, engir sporvagnar, engar lestarsamgöngur. Ef við ætlum að taka fram reiðhjólið þá hjólum við í öfuga átt undan vindi þs. ef við náum upp brekkurnar. Hvernig förum við að án bílsins í borg eins og Reykjavík? Mig dauðlangar að leggja bílnum ..en strætó er ekki farinn að ganga á morgnanna þegar ég mæti í vinnu klukkan 06:00.

Ég á það reyndar til að hjóla í vinnuna á sumrin en það er illmögulegt ef ekki ómögulegt á veturna. Eigum barn sem er á leikskóla, ekki séns að ná í vinnuna á réttum tíma ef farið er með strætó þar sem leikskólinn opnar hálftíma fyrr og við búum langt frá vinnustöðunum.

comic_singer11

 


mbl.is Bensín dýrara í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndarlegasta kvikindi

barnsfaðir hennar Halle Berry.  32 ára gamall, tæp tíu ár á milli þeirra skötuhjúa.  Barnið er eflaust gullfallegt eins og öll ungabörn eru reyndar.  

gabriel-aubry-


mbl.is Halle Berry eignast stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngutúr á Úlfarsfelli og nýfæddur Davíðssonur

Af Úlfarsfelli

Fór á Úlfasfellið með hundinn (og kallinn) í gær.  Já mér tókst að fá karlinn með , hann stakk reyndar sjálfur upp á göngutúr og ég valdi gönguleiðina (hehehe) .  Það var yndislegt veður , sól, svolítið frost og algjör stilla. 

Helgi á Úlfarsfelllinu

 

 

 

Ég á Úlfarsfellinu (Helgi klikkaði á útsýninu)

 

 

 

 

 

Lúkas á (sínum) toppi

 

 

 

 

 

 

Davíð bróðir minn og Tinna kærastan hans voru  að eignast sitt fyrsta barn saman sl. föstudag og kíktum við svo í heimsókn til þeirra.  Davíðsson er yndislegur, læt ég myndirnar tala sínu máli. 

Stoltur pabbi

 

Svo hrikalega sætur..

 

 

 

 

 

 

 

 

Stolt mamma

 


Já það var sko gaman..

Kalli bróðir að spila í anddyrinu á höllinniÓtrúlega sterkir tónleikar. Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel á tónleikum.Líkja má stemningunni við gott kvöld á þjóðhátíð í Eyjum. Allir sungu með, allir glaðir og hamingjusamir.

Fólk var svolítið að fá sér í tánna en það var bara allt í lagi, allt fór friðsamlega fram enda allir vinir þetta kvöld.Ókunnugir föðmuðust og hylltu Sálina sem var ótrúlega sterk.

Ætli meðalaldurinn hafi ekki verið um 40 -  45..ótrúlega gaman að sjá hvað mikill meirihluti var  í "eldri" kantinum, þó slæddust inn á milli yngri andlit enda eru aðdáendur Sálarinnar breiður aldurshópur.

Ekkert hlé var á tónleikunum en engin þreytumerki voru að sjá á Sálarmönnum. Svitinn lak í stríðum straumum niður andlit Stebba og Gumma gítarleikara enda hömuðust þeir á sviðinu allan tímann.

Gospelkór Reykjavíkur söng með þeim í nokkrum lögum og var það frábært.Einnig komu nokkrir meðlimir sinfóníuhljómsveitarinnar og spiluðu með í eitthverjum lögum - snilld. (Stebbi sagði að þeir hefðu ekki haft efni á allri hljómsveitinni) Æðislegir tónleikar, rífandi stemning - Sálin er draumurinn!!

Stebbi í ham

 

ljósashowið var geðveikt!

mbl.is Mikil stemmning á afmælistónleikum Sálarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tröppuhlaup upp 15. hæðir og Esjuganga - myndir

1nordur_vestur_view_small

Ég var að vinna í turninum í Kópavoginu á laugardaginn og þar manaði Arnar Grant mig í að hlaupa upp fimmtán hæðirnar þar sem að þennan laugardag var keppnin í tröppuhlaupinu sem World Class stendur fyrir. Ég var kotroskinn þar sem að ég trítlaði á eftir Grantinum af fimmtándu hæð niður á þá fyrstu. Þetta yrði nú ekki mikið mál. Wink

Hann startaði mér svo og ég rauk upp tvær tröppur í einu, sprengikrafturinn gífurlegur en þegar ég var komin upp á sjöttu hæð þá var mér hætt að lítast á blikuna! Krafturinn dvínaði óðum og það hægðist verulega á mér og þegar ég var komin á níundu hæð var ég í alvörunni að spá í að hætta og þykjast hafa meitt mig eða eitthvað Whistling, hehe..nei nei en auðvitað hélt ég áfram þótt ég væri komin með blóðbragð í munninn og verki í framanverð lærin.

Síðustu hæðina fannst mér ég skríða upp, var gjörsamlega búinn þegar ég náði efstu tröppunni. Og tíminn; 1. mínúta og 56 sekúndur. Það voru um 10 - 15 manns sem hlupu upp og ég náði besta kvennatímanum þann daginn. Ég var sex sekúndum of lengi til að ná árskortinu af Nínu Dögg sem á metið frá byrjun - 1. mínútu og 50. sekúndur. Jæja hvað hef ég svo sem að gera við árskort. Smile En ég ætla þó að reyna við stigana aftur , næst þegar verður hlaupið í byrjun næsta mánaðar. Og þá SKAL ég bæta það!

SP_A0041

Það var frábært veðrið og ég ákvað að fara á Esjuna með Lúkas minn. Það var hreint yndislegt á Esjunni. Ég hafði þó klætt mig allt of vel og svitnaði þvílíkt, það er svo erfitt að vita hvernig maður á að klæða sig á þessu landi. Það var mikill snjór á fjallinu og því erfiðara yfirferðar en á sumrin en alveg ofboðslega fallegt að sjá yfir. 

SP_A0047

Ég fór ekki alveg á toppinn, treysti hundinum ekki til þess, var svo hrædd um að hann myndi bara hrapa þar sem fjallið er sem brattast. Hann hefði aldrei komist upp klettana efst.

En þetta var samt flottur göngutúr og ég reyndi að hlaupa svo niður en það var mun erfiðara en á Úlfarsfellinu þar sem brattinn var meiri og oft mjóir stígarnir og hætta á að misstíga sig og renna í snjónum. Æðislega gaman ... og ég ætla að gera þetta að venju um helgar.

Fórum í matarboð á laugardagskvöldið til vinarfólks og við skyldum ekkert í því hvað Olli var eitthvað niðurlútur og rólegur. Hann var þá kominn með hita og sofnaði bara í fanginu á pabba sínum í sófanum. Var funheitur um nóttina með mikinn hita en mun skárri í dag. Ég er heima hjá honum í dag. 

 Kær kveðja , Ester.

SP_A0051

 

SP_A0054

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband