Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Stórir hundar geta ráðist á litla hunda

 Ég á sjálf hvolp af Papillonkyni.  Hann er fimm og hálfsmánaða og hugaður með eindæmum  því ég ákvað það strax að vera mikið með hann innan um aðra hunda og hlífa honum ekki við útiveru - göngutúrum og lausagöngu þar sem má hafa hunda lausa.   Hundurinn minn er því enginn "kjölturakki."  Happy  Ég er nefnilega sjálf mikið fyrir stóra hunda, hef átt Schäfer hund og langar í Rottweiler en ákvað að fá mér frekar lítinn hund sem hentar mínum aðstæðum í dag. 

Litli hvolpurinn minn hræðist ekki stóra hunda og finnst þeir mjög spennandi.  Og stórum hundum finnst hann spennandi.  Sumir ráða sér ekki í leik og átta sig ekki á því að með því að skella litla niður og hamast á honum geta þeir hreinlega stórslasað hann og jafnvel drepið.  Oft koma stórir hundar á fleygiferð að litla og ætla gjörsamlega að éta hann. 

Ég hef því alltaf varann á og ef ég er á svæði þar sem má hafa lausa hunda þá fylgist ég vel með honum og er fljót að setja tauminn á hann ef ég sé lausa stóra hunda nálgast.  Þá get ég gripið hann í fangið ef það er hætta á ferðum.  Lenti síðast í því á sunnudaginn var að þurfa að grípa hvolpinn í fangið til að verja hann fyrir stórum boxer sem gjörsamlega ætlaði í hann. 

Aldraða konan sem um ræðir í þessari frétt var að vinna í garðinum sínum með hundinn sinn bundinn rétt hjá sér.  Þá æðir að stærri hundur og ræðst á litla bundna hundinn.  Eigandi stærri hundsins var skiljanlega miður sín eftir þetta atvik og hugsar sig líklega tvisvar um áður en hann í framtíðinni  ákveður að hafa hundinn lausan í íbúðarhverfi.  

Ég skil það vel að það er freistandi að hafa hundinn sinn lausann við hlið sér í göngutúrunum.  En svona lagað getur alltaf komið fyrir.  Hundurinn sér eitthvað sem honum þykir mjög spennandi og tekur á rás.  Í þessu tilfelli lítill hundur sem gat enga björg sér veitt. 

Sýnum tillit og höfum hundana í taumi þar sem bannað er að hafa hundana lausa.  Nóg er af stöðunum þar sem má hafa hundana lausa - þarf kannski að keyra aðeins útfyrir borgarmörkin til að finna góðan stað en það er örugglega þess virði. 


mbl.is Eigandinn beinbrotnaði og tvísýnt um líf hundsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð börnin :(

Pabbi að keyra börnin í skólann.  Börnin sitja í alsakleysi sínu í bílnum. Pabbi var eitthvað skrýtinn en þau átta sig ekki á afhverju.  Börnunum leið undarlega. Bíllinn sveiflast furðulega til á veginum. En í leikskólann komust þau þrátt fyrir að oft á leiðinni hafi munað litlu að illa færi.

Maður  var stöðvaður í Kópavogi í gærmorgun en hann átti mjög erfitt með að halda bíl sínum á veginum. Segir lögregla, að maðurinn megi teljast heppinn að hafa ekki lent í alvarlegu umferðaróhappi en hann var nýbúinn að aka börnum sínum í leikskóla þegar lögreglan stöðvaði för hans. Þessi maður var undir áhrifum fíkniefna!!!!!  

 Ég á ekki orð og langar helst  að gráta. Börnin velja sér ekki foreldra og ekkert barn á þetta skilið.  Fólk missir dómgreind undir áhrifum hvort sem er undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.  Guð einn má vita hvað börn þessa manns mega þola. 

Barn í höndum

 

 


mbl.is Þrir teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villimannslegar aftökur á Íslandi

Bandaríska réttarkerfið er grimmdarlegt og ómannúðlegt.   Aftökur þykja sjálfsagðar í Bandaríkjunum.  En það er mín skoðun að slíkt réttarkerfi  er ekkert skárra en þeir sem fremja glæpina á götum úti.  Aftökur eru manndráp. Manndráp gerðar í skjóli kerfisins.

  Árið er 2007.  Við ættum að vera orðin þróaðri en svo að taka  fólk af lífi. En það eina sem breytist eru morðaðferðirnar.  Sem betur fer búum við á Íslandi ekki lengur við aftökur.  En vorum lítið skárri hér áður fyrr. Villimannslegar aftökur voru framkvæmdar hér á landi.  

 Smá fróðleikur:  

Aftökur

Árið 1564 var Stóridómur lögtekinn á Íslandi og þá breyttust refsingar. Refsingar urðu harðari og Þingvellir fengu það sorglega hlutverk að verða einn helsti aftökustaður landsins. Það eru ekki til margar frásagnir um hvernig dauðarefsingar voru framkvæmdar en vitað er að fólk var dæmt til hengingar, drekkingar, að hálshöggvast og brennast. Á Þingvöllum voru einnig staðfestir dómar sem settir voru á héraðsþingum. Til dæmis þá voru staðfestir dómar í galdraofsóknum á 17. öld. Það voru 22 manneskjur sem fengu þann dóm að vera brenndar. Á Þingvöllum var saklaust fólk brennt í Brennugjá.

Myndin hér að ofan er af Drekkingarhyl en í honum var konum drekkt sem voru fundnar sekar um hórdóm og sifjaspell. Karlar sem voru fundnir sekir um hið sama voru hálshöggnir. Hylurinn var dýpri hér áður fyrr en í dag. Þegar brúin var gerð var hann hálffylltur af vatni.


  

 


mbl.is 400. aftakan í Texas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahaha..SNILLD.. Verðið að lesa!

arabian princess3Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið
og taka vel til í öllu herberginu.

Hún sá að það var umslag á miðju
rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið
og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman.


Ég geri þetta
svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína.


En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa
hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af
eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur.

Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það.


Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og
E-töflum handa okkur báðum.


En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!!


En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa.
Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera.
Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín
dóttir Guðrún.

PS:
Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni.
Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.


Nóg af fíkniefnum á Litla Hrauni.

Fangelsid_Litla-HraunÞað hefur maður heyrt í gegnum tíðina. Ekkert mál að nálgast dóp þar.  Ætli þetta sé aðferðin sem notuð er til að smygla eiturlyfjum til fanganna?  Hún verður þá varla notuð mikið lengur. Annars held ég að algengara sé að gestir smygli dópi á sér innan klæða -  hvíslaði  að mér lítill fugl.Wink littlebird


mbl.is Reyndi að kasta fíkniefnum yfir fangelsisgirðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Shokk skokk og latabæjarhlaup.

Shokk- SkokkYndislegt veður og  mikill mannfjöldi sem tók þátt í Maraþoninu í dag.  Ég hljóp 3 km. með Skokk-Shokk hópnum okkar í World Class , krakkarnir stóðu sig allir frábærlega. 

Eitt fannst mér skrýtið og það var að þegar ég kom í gegnum marklínuna hleypur strax að mér maður og rétti mér bók! Áður en ég gat sagt nokkuð - var hann farinn en hann brosti til mín og vinkaði. Hann var greinilega að vinna eitthvað við hlaupið þar sem hann stóð við marklínuna þar sem hlaupararnir koma.  Þessi bók heitir "Fréttaljósmyndir ársins 2006" og er þetta vegleg og flott bók.  

Ég er virkilega þakklát en gaman væri að vita afhverju égÉg með bókina öðlaðist hana Woundering..kannski var bara verið að gefa hlaupurum af handahófi bók.. án þess að ég viti það Cool.

Við Olli tókum svo þátt í Latabæjarhlaupinu klukkan 15:30.  Það var frábær stemning og ótrúlega margir sem tóku þátt.  

Svona daga í miðborginni elska ég.  Þar sem miðbærinn er undirlagður af fólki og stemningu. Allir ánægðir og glaðir.  Við pöntum því miður ekki veðrið en reykvíkingar hafa verið sérstaklega heppnir í ár, dásamlegt veður helgi eftir helgi.  Gay-Pride um síðustu helgi og svo nú á menningarnótt, ekki síðra veður.  

Olli með medalíuna sína Við skruppum svo aðeins í World Class eftir Latabæjarhlaupið, þar var skemmtun fyrir starfsfólkið, maka og börn.  Hoppukastali, leikir og frábærar veitingar.  

Er að spá í  hvort ég nenni aftur í bæinn, alveg spurning um að skreppa í smástund til að upplifa stemningu kvöldsins og horfa á flugeldasýninguna.  Sé til Wink. Olli í hoppukastalanum


mbl.is Ljúf stemmning í miðbæ Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir frá Svíþjóðarferðinni.

Við skruppum til Svíþjóðar eins og einhverjir vita, í eina viku um daginn.  Ferðin var yndisleg - bara frábær, get varla beðið eftir að fara aftur þar sem nú á fjölskyldan hús í Lundi.  Set inn nokkrar myndir hér annars eru fullt af myndum í myndaalbúminu merkt Svíþjóð - ef einhver vill skoða.

Olli og Gabríela Krúttbörnin, Olli og Gabríela.

 

 

 

 

 

 

 

 

Fína borðstofuborðið Fína borstofuborðið

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég Ég við borðstofuborðið

 

 

 

 

 

 

 

 

Morgunverður Við morgunverðarborðið

 

 

 

 

 

 

 

 

Dásamleg hús Yndisleg hús í gamla bænum

 

 

 

 

 

 

 

 

Varning för hunden Passið ykkur á hundinum!!

 

 

 

 

 

 

 

 

Olli - Emil? Olli eða Emil?

 

 

 

 

 

 

 

 

Broddgölturinn Broddgölturinn sem ég sá eitt kvöldið

 

 

 

 

 

 

 

 

Sjáið stærðina!! Minni hesturinn var stór en sá stærri var BIG!!

Varð að fá að taka mynd af þeim!  

 

 

 

 

 

 

 

Olli með bangsamótorhjólahjálm. Olli í mótorhjólabúðinni með bangsamótorhjólahjálm

 

 

 

 

 

 

 

 

Mamma og pabbi Pabbi og mamma á Lomma-strand

 

 

 

 

 

 

 

 

  MoiWHO?

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hahaha..gaman

 Þarna er búið að grafa Olla í sandinn

 

 

 

 

 

 

 

 

Helgi með nýja hlaupahjólið sitt.. Helgi með nýja hlaupahjólið sitt, ofsalega glaður..hehe... 

Nei..ok..bara fíflmynd Wink

 


Aumingja Mette-Marit

Reykjandi prinsessaGvöð minn góður..þvílík afskiptasemi!  Ef eitthvað vit er í manneskjunni þá þrjóskast hún við frekar en hitt.. LoL.  Nei í alvöru talað þá eru reykingar hættulegar og skaðlegar heilsu þeirra sem reykja og annara..veit ég vel. En að skipa reykingamanni að hætta reykja er ekki af hinu góða. 

"Þú tekur nefnilega  ekki flöskuna af alkanum og ætlast svo til þess að hann sé hættur - sísona. Wink"

 

 


mbl.is Mette-Marit krónprinsessa átalin fyrir reykingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparneytni vinnubíllinn minn lítur svona út:

Hvað er í gangi?  Bensínlíterinn kominn upp í 132 kr???  Hvar eru stjórnvöld?  Sem betur fer er ég á mjög sparsömum vinnubíl, annars myndi ég hjóla í vinnuna.  Karlinn er á mótorhjóli , alla vega fram á haustið.  En það þarf í alvöru að fara að gera eitthvað í þessu háa bensínverði.  

motorshow-smartSvona lítur vinnubíllinn minn út Wink

 


mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er hörkumyndarleg dama - myndir

Blogg um ekki neitt...og þó..Kissing

Hálf hallærislegt að fara með svona yfirlýsingar í blöðin.  En hvað veit maður. Maður þekkir mann..

Og hvað er gellan að pæla?  Að vilja EKKI giftast Justin Timberlake?! Ætli hann hafi eitthvað um þetta að segja? 
timberlake-biel-date-400a020107

jessica-bieltn2_Jessica_Biel_2


mbl.is Jessica Biel vill ekki giftast Justin Timberlake
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband