Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Það er yndislegt að ganga á Esjuna

Ég er ánægð með hvað hefur orðið mikil aukning á  áhuga íslendinga á hreyfingu og útivist.  Allstaðar eru Esjuklúbbar, það er td. einn hjá okkur í World Class. 

 Ég held að þessi áhugi sé mér í blóð borin, hef alltaf verið mjög mikið fyrir útivist og hreyfingu.  Frá því að ég man eftir mér.  Samt fór ég í fyrsta skiptið á ESJUNA í fyrrasumar.     Hafði aldrei farið áður.  Og mér fannst það svo rosalega  gaman að ég ákvað að fara allar helgar það sumarið.  En fór reyndar bara þrisvar.  Alltaf eitthvað sem kom upp á.  En ætla að fara MJÖG fljótlega á Esjuna aftur. 

Mæli með Esjugöngu.  Það er svo gaman að ganga þessa leið, vera með eitthvað gott á brúsa ( kakó, kaffi) eða bara kaldan orkudrykk.  Taka smá pásu þegar komið er að læknum, fá sér að drekka  og klára svo gönguna upp á toppinn.  Smá klifur þarna í efstu hlíðunum..en bara gaman.  Útsýnið er glimrandi fallegt af toppnum í góðu veðri.  Stórkostlegt 

Svo tekur það skemmtilegasta við gönguna við..og það er hlaup niður hlíðar Esju..hlaupa án þess að stoppa alla leið niður.  Ekkert smá gaman og mikið adrenalínkikk!!  En mæli ekki með því fyrir þá sem eru með slæm hné.     

Esja001

mbl.is Esja eftir vinnu og á Jónsmessunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarbústaðaferð og myndir

SumarbústaðurinnYndisleg helgi að baki.    Fékk þá flugu í hausinn á laugardaginn að mig langaði upp í bústað.  Skrýtin þessi þörf sem kom yfir mig.  Ég var svo afslöppuð og sveitin togaði í mig - fast!   Ég tékkaði á hvort bústaðurinn væri laus og það var hann - en maður veit svo sem aldrei, mínir yndislegu foreldrar hefðu alveg eins hætt við að fara fyrir okkur systkinin Woundering.

Skelltum í tösku, hentum barni og hundi út í bíl,  versluðum grillmat og gúmmílaði og brunuðum upp í bústað.  Þvílíkur ró og friður í bústaðinum.  Vá hvað ég naut þess. 

 Lúkas litli Þetta var í fyrsta sinn sem Lúkas (hvolpur) kemur með  okkur og það var áberandi hvað hann var Fallegasturrólegur í bústaðnum alveg eins og við .  Honum leið greinilega jafnvel og okkur á þessum stað.

 

Á þjóðhátíðardaginn vöknuðum við mjög snemma, létum renna heitt í pottinn og skelltum okkur í hann.  Veðrið var æðislegt, algjört logn og um 15-16 stiga hiti.  Sól  öðru hvoru.  Við Olli vorum í tvo tíma í pottinum ( með smá hléum).  

Olli með bleika boltanÍ sólbaði

Að klöngrast undir rafmagnsgirðingu

Að halda stjórninniHahaha

Olli í fjörunni í Hvalfirði

Á leið í fjöruna

Lúkas flotti

Helgi stóri og ..

Að skoða rauða kónguló

 Fórum svo öll í göngutúr niðrí fjöru þar sem hundurinn fékk að hlaupa og Olli skoðaði rauðar kóngulær á steinunum.  Hitinn var þá kominn upp í 18-20 stig.    

Vorum komin í bæinn um kl. 18:00. Misstum af öllum herlegheitunum í miðbænum en ég græt það svo sem ekki.  Við hefðum ekki getað eytt þessari helgi betur.   Joyful  Íþróttaálfurinn

ÁFRAM ÍSLAND!  (horfði á leikinn í gærkvöldi og er svooo stolt)


Bréf frá Hr. Tippi:

Í tilefni klámumræðunnar:   

Ég, herra Tippi, fer hér með fram á kauphækkun með meðfylgjandi
rökstuðningi:

Starf mitt felst í miklu líkamlegu erfiði. Ég vinn oft á miklu dýpi. Ég
tek áhættuna af því að reka hausinn inn fyrst í öllum verkum sem ég geng í. Ég fæ ekki frí um helgar eða á hátíðisdögum. Ég vinn við rakamettaðar aðstæður. Ég fæ ekki borgað fyrir yfirvinnu. Ég vinn á dimmum vinnustað með lélega loftræstingu. Ég vinn við mjög hátt hitastig. Það kemur fyrir að ég er krafinn um að vinna í bakgarðinum sem mér finnst ekki þrifalegasti staður í heimi. Ég er iðulega krafinn um vinnuframlag þótt allir sjái að ég er verulega slappur. Mér er skipað að fara ítrekaðar ferðir inn á þennan dimma og raka vinnustað þótt allir viti að það endar alltaf með því að ég kasta upp. Starf mitt gerir mig berskjaldaðan gagnvart hættulegum sjúkdómum.

Virðingarfyllst: Hr. Tippi


Svar frá stjórn:

Kæri Hr. Tippi.
Eftir að hafa metið beiðni þína og farið yfir þau rök sem þú leggur fram hefur stjórnin ákveðið að hafna beiðni þinni af eftiröldum ástæðum:
Þú vinnur aldrei í 8 tíma samfellt. Þú fellur iðulega út af og sofnar í
vinnunni, jafnvel eftir mjög stuttar vinnulotur. Þú hlýðir ekki alltaf
skipunum stjórnandans. Þú heldur þig ekki alltaf á þínum vinnustað og það hefur oft sést til þín við að heimsækja aðra vinnustaði. Þú tekur aldrei af skarið í vinnunni, og þarft þá á fullmikilli handleiðslu að halda. Þú roðnar alltaf þegar þú ert beðinn að vinna. Þú hefur jafnvel mætt til vinnu með ostaslettur á hálskraanum. Þú skilur frekar subbulega við vinnustaðinn þegar þinni vakt lýkur. Þú ferð ekki alltaf eftir öryggisreglum eins og t.d. þeim að vera í réttum hlífðarfatnaði við vinnu. Það vita það allir að þú munt láta af stöfum löngu áður en þú verður 65 ára. Þú getur ekki unnið tvöfaldar vaktir. Þú átt það til að yfirgefa vinnustaðinn áður en þú hefur lokið því verkefni sem fyrir þig var lagt. Og eins og allt þetta sé ekki nóg, þá er því við að bæta að þú hefur þráfaldlega sést á sífellu rápi inn og út af vinnustaðnum, berandi tvo mjög grunsamlega poka.

Virðingarfyllst: Stjórnin  tippalingur

Benni að meika það..

Benerl  Frábært hjá Benedikt Erlingssyni! Hann fór heim með þrjár styttur í kvöld!  Sigurvegari kvöldsins. Æðislegt! Enda stórkostlegur listamaður.

Ég þekkti Benna þegar hann var fjórtán ára stráklingur  "í hestunum" ..stórskemmtilegur strákur og hefur lítið breyst.    Þó var hann lægri í loftinu í þá daga, hafði meira hár og röddin var  mjórri. Grin

  Erlingur Benediktsson var æðislegur, mikið er karlinn skemmtilegur, sonurinn á ekki langt að sækja það.  Það var stórgaman að horfa  á Grímuna, mjög vel heppnað og létt yfir.

Óska öllum til hamingju sem stóðu að Grímunni og einnig óska ég öllum þeim listamönnum sem unnu til verðlauna innilega til hamingju. 


mbl.is Benedikt Erlingsson var sigurvegari Grímunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kíktu á stjörnuspánna þína..hahaha...

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp
og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið.
Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi
eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur
sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað,
með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.
Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig,
nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum.
Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur
og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt
og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú
hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki,
en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar
en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan
í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur,
enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því
einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er
annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr
einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika
þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum,
alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn,
enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig
eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan
innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða
í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir
ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Þori varla að segja í hvaða merki ég er - þetta passar svo svakalega vel við mig ..híhí!  Jú okey..er bogmaður...Blush.  Einhverjir fleiri sem fundu sig þarna????? Grin


Er þessi vísbending sönn?

Það er ómögulegt að setja sig í spor foreldra Madeleine.  Gæsahúðin og hrollurinn sem maður fær Foreldrar Madeleinevið tilhugsunina um að barninu manns sé stolið er eflaust bara lítið brot af þeim hryllingi sem foreldrar Madeleine eru að upplifa.

  Ég get ekki ímyndað mér hvort foreldrarnir óski þess að hún  finnist látin á þessum stað sem vísað er á svo þeir alla vega viti hvar hún er niðurkomin eða hvort foreldrarnir vonist til að þetta sé falsvísbending.   Þetta er hræðilegt mál og því miður alls ekki einsdæmi.  


mbl.is Portúgalska lögreglan lokar af svæði þar sem Madeleine er leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tek ofan fyrir þessari konu!

Gengið var um 600 km yfir grænlandsjökul. Þvílíkt afrek!   Marta er einstæð móðir sem greindist með illkynja brjóstakrabbamein en eftir að hafa lokið erfiðri meðferð þá ákvað hún að ganga til styrktar krabbameinsfélags Íslands.   Markmið ferðarinnar var  að safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini og vekja konur til umhusunar um mikilvægi þess að fara reglulega í skoðun.

Þetta vekur mig alla vega til umhugsunar..og ætla ég nú að panta mér tíma í skoðun og hvet ég aðrar konur sem hafa látið það dragast að fara í skoðun að gera það líka.


mbl.is Marta Guðmundsdóttir kemur til Reykjavíkur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr óþekku stelpunni í þá góðu

paris-hilton Segið svo að fangelsisvistin sé henni ekki til góðs.   Ja nema þetta séu "látalæti". Hún má þó búast við því að  fá minna umtal fyrir vikið.  Heimurinn hefur ekki eins mikinn áhuga á góðverkum og strákapörum. 

Paris Hilton á svo smátt og smátt  eftir að "hverfa" úr sviðsljósinu og eftir nokkur ár man enginn eftir henni.  En hvað skiptir það máli. Wink


mbl.is París segist ætla að hætta heimskupörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir geta bara ekki flogið...

...sama hvað þeir reyna! Ég hef sjálf reynt þetta .. en mér tókst aldrei að fá bílinn til að fljúgaPouty.   *hóst* stundum veit ég ekki hvort blaðamenn mbl. eru að reyna að vera fyndnir, tvíræðir eða einfaldlega allt of oft klaufalegt orðalag? Fljúgandi bíll


mbl.is Ökumaður á ofsahraða reyndi að ná flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskrift og veisla...

Fríður hópur Jæja gott fólk! Nóg búið að vera að gera, er hálfslöpp að blogga en kannski verður maður bara svona á þessum árstíma.  Útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari sl. laugardag. Hvað maður er stoltur Útskriftin var haldin með viðhöfn í Íþróttaakademíunni Keflavík, snittur og herlegheit.  Þetta var ægilega gaman og mikil stemning.

  Ég var ekki með neitt útskriftarboð (enda búin að halda upp á próflokin) en fékk þrjá blómvendi og svakalega fallegan módelhring frá foreldrum mínum.  Svo á víst ein gjöf eftir að koma.

  Á laugardagskvöldinu var okkur svo boðið í grillútskriftarveislu til Kalla og Önnu mágkonu.  Anna var nefnilega að útskrifast sem tölvunarfræðingur úr HR.Anna DÚX !  Í yndislegu veðri í garðinum stóðu Kalli og Jón Pétur ( danskennari og nágranni)  og grilluðu á þremur grillum. Sætu bræður mínir Þvílíkur dásemdarmatur..grillaðar nautalundir, kjúklingabringur, svínasteik, fylltir tómatar, grillaðar kartöflur, æðislegt salat..ofl. ofl.  Ég vildi vera eiturhress á sunnudeginum svo við drifum okkur heima rúmlega tólf á miðnætti. 

 "Vaknaði líka hálfátta á sunnudagsmorgninum og fór í göngutúr með hundinn Joyful"

Og það kom heil rúta..


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband